Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 90
88
BÚNAÐARRIT
áttu þeir sízt betra fé en sveitirnar fyrir austan
„Sand“. Og löngu eftir það höfðu þeir jafnaðarvigt
dilka fyrir neðan okkur, og voru þá oft aumastir
allra aumra. En eftir 1940 eru þeir flest öll árin fyrir
ofan okkur, stundum mikið, t. d. 1948, metárið okkar,
þegar við höfðum 13,10 kg, hafa þeir 14,14 kg.
Skal ég nú snúa mér að árinu í ár og samanburði
þess við fyrri ár, ásamt hverri sveit fyrir sig. Eins og
áður hef ég Höfn ekki með i jafnaðarvigtinni, af þeirri
ástæðu, að tiltölu litið af þeirra lömbum koma til inn-
leggs. Það verður ekki fyrr en við vinnum úr skýrsl-
um fjárræktarfélaganna.
Jafnaðarvigt allra sveitanna fjögurra er i ár 12,47.
Lón ...................... með 13,58 kg
Mýrar ..................... — 12,65 —
Suðursveit ................ — 12,02 —
Nes ....................... — 11,62 —
Eins og ég hef áður gelið um, er við þessa jafnað-
arvigt það að athuga, að nýrmörinn fylgir hjá sum-
um, en ekki sumum, sein munar talsverðu, sérstak-
lega á vænum dilkum. Ef gert er ráð fyrir, að til jafn-
aðar muni það á heildinni um V2 kg og því yrði bætt
við þá dilka, sem mörinn var tekinn úr, yrði jafn-
aðarvigtin í
Lóni ........... 13,58 kg. Enginn mör tekinn.
Mýrum .......... 13,15 — Allur mör tekinn.
Suðursveit . . . 12,27 — Tekinn að hálfu leyti.
Nesjum ......... 12,12 — Allur mör tekinn.
Hins vegar, ef enginn mör hefði fylgt eins og að
undanförnu, áætla ég að jafnaðarvigtin hefði orðið:
í Lóni .................... 13,08 kg
á Mýrum ..................... 12,65 —
í Suðursveit ................. 11,77 —
í Nesjum..................... 11,62 —