Búnaðarrit - 01.01.1952, Qupperneq 91
BÚNAÐARRIT
89
Hefði þá jafnaðarvigt á öllu svæðinu verið um 12,30
kg, en var síðastliðið ár 11,99 kg. Þó þetta sé ágizkun
geri ég ráð fyrir, að hún sé nokkuð nærri sanni. Ef
við berum árin saman á þessum grundvelli verður
samanburðurinn á þessa leið:
Lón hafði í fyrra .. 12,55 kg, nú 13,08, munur 0,53 kg
Mýrar höfðu í fyrra 12,29---- 12,65 — 0,36 —
Suðursveit hafði í f. 11,53-- 11,77 — 0,36 —
Nes höfðu í fyrra .. 11,10— — 11,62 — 0,52 —
Eftir þessu hefur Lón og Nes bætt mestu við sig,
Suðursveit minnst og Mýrar þar á milli.
Hvernig sem á málið er litið er útkoman betri í ár
hjá öllum hreppunum en í fyrra, þótt enginn þeirra
nái metinu 1948, og er gott að rifja það upp.
Þá höfðu
Mýrar ........... 13,37 kg, á það vantar nú 0,72 kg
Lón ............. 13,29-----— — — 0,21 —
Suðursveit ...... 13,10 — — — — — 1,35 —
Nes ............. 12,41-----— — — 0,79 —
Lón er næst metinu, en Suðursveit fjærst. Lón hefur
tekið forustuna tvö undanfarin ár. Áður um nokkur
ár höfðu Mýrar hana.
Bezta jafnaðarvigt lijá einstaklingi er 17,25 kg, og
er úr Lóni. Það er að vísu ekki á mörgum lömbum,
aðeins 10, en heldur ekki af fleirum en 25 að taka.
Þessari vigt hefur enginn einstaklingur náð áður.
Þetta er því héraðsmet. Lægsta vigtin í ár á heimili
er 9,25 kg, og á heima í Nesjum.
Vigtin hefur að undanförnu verið jöfnust á Mýr-
um og er enn nokkuð jöfn, en það er hún líka nú i
Lóni. Þessar tvær sveitir eiga fáa vesalinga, sem eru
dragbítar á jafnaðarvigtina, eins og á sér stað i Nesj-
um og Suðursveit. Lón á t. d. tvö heimili með vigtina
milli 10 og 11 kg, Mýrar eitt, Suðursveit sex og Nes