Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 101
BÚNAÐARRIT
99
Mér þykir mjög ólíklegt, að aðrir hrútar, sem
fengnir voru hingað í sveit, liafi verið hreinræktaðir
frá Möðrudal. (Ég dreg það sérstaklega af bréfi, sem
Þorbergur skrifaði föður mínum 1918).
Þessi þriðji hrútur frá Hólum var undan minni
hrútnum frá Möðrudak Þorbergur taldi sig elcki fá að
jafnaði eins þung lömb undan þeim hrút, eins og þeim
fyrsta, en líkaði þau ekki síður til lifs, voru svip-
falleg, hraust og gott að fóðra þau. Kindur undan síð-
ari hrútnum sagði liann að hefði ágæt þolþrif, en ekki
sams konar söfnunarþrif.
Þennan þriðja hrút frá Hólum taldi Þorbergur
heldur lítinn, en mjög feitan og það svo að hann ótt-
aðist að hann gengi ekki hingað frá Hólum, þegar
hann var Jamb. Þessi hrútur var ekki stór en svip-
fallegur og reyndist vel. Fyrsti hrúturinn frá Hólum
var ekki eins svipfallegur og ekki stór, en harðgerður.
Mér þykir liklegt að þannig hafi hitzt á að fáir hrútar,
sem hingað komu í sveit, hafi verið eins kyngóðir og
þessi fyrsti sízt eins og „Dalur“. Það höfðu margir
austan úr sveitum orð á því að féð okkar líktist meira
hreinkynja Möðrudalsfé en a. m. k. víða annars stað-
ar, eftir að féð var allt orðið út al þessum hrútum.
Árin 1926—27 fengum við tvo hrúta (Jökul og
írsa) og tvær ær af Jökuldalskyni af fé Guðmundar
Snorrasonar, sem hann kom með þaðan að austan, frá
Stuðlafossi. Guðmundur sagðist hafa verið að vigta
féð og sagðist liafa lagt kapp á að hafa hrúta undan
þyngstu og beztu ánum. Þessar kindur frá Guðmundi
höfðu sömu litareinkenni og Möðrudalsféð og voru
líkar því, en fullt svo langar og háar, einkum miðað við
gildlcika. Árið 1927 liöfðum við „Rák“ undan hrút úr
Laxárdal frá Hallgrími Þorbergssyni. Þessi Laxár-
dalshrútur var á allan liátt mjög fallegur og svipgóð-
ur. Móðir Ráks var út af beztu ánum okkar.
Til grundvallar þvi, hvernig erfðakostir hrútanna