Búnaðarrit - 01.01.1952, Síða 107
BÚNAÐARRIT
105
firði, girðingunni yfir Snæfellsnes og girðingunni úr
Hvannnsfirði í Langjökul. Allir hreppar í fyrrnefnda
hólfinu óskuðu eftir sýningum, en í því síðarnefnda
vildu eftirtaldir hreppar lieldur fá sýningar haustið
1952, vegna þess hve fátt fc þeir fengu 1950: Hauka-
dalshreppur, Eyjahreppur, Borgarhreppur, Stafholts-
tungnahreppur, Þverárhlíðarhreppur og Hvítársíðu-
lireppur.
Ég mætti af hálfu Búnaðarfélags Islands sem odda-
maður dómnefndar á öllum sýningum á ofannefndum
svæðum, nema í Fljótshlíðinni, en ]>ar mætti Hjalti
Gestsson ráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands.
Hann mætli einnig með mér á öllum öðram sýningum
á Suðurlandi. Héraðsráðunautur Skagfirðinga mætti
með mér á sýningunum í Skagafirði og Bjarni Arason,
ráðunautur Eyfirðinga í nautgriparækt, á sumum sýn-
ingunum í Eyjafirði.
Tafla 1 gefur yfirlit um sýningarnar. Þar er sýnt,
hve margir hrútar eru sýndir í hverjum hreppi, hvern-
ig þeir skiptast í verðlaunaflokka og hver var meðal-
þungi hrúta í hverjum verðlaunaflokki. Alls »voru
sýndir 1570 hrútar. Þar af voru 298 tveggja vetra og
eldri, og vógu þeir að meðaltali 81.2 kg. Veturgömlu
hrútarnir, 1272 að tölu, vógu 73.6 kg að meðaltali.
Aðeins 12 hrútar fullorðnir voru sýndir i Eyjafjarð-
arsýslu, en engir í Skagafjarðar-, Dala-, Snæfellsnes-
og Mýrasýslu. Veturgömlu hrútarnir voru þyngstir í
Eyjafjarðarsýslu, 78.0 kg að meðaltali. Af 396 vetur-
gömlum hrútum sýndum þar lilutu 71 fyrstu verð-
laun eða um 18%, og vógu þeir 83.1 lcg að meðaltali.
Engin verðlaun hlutu 86 eða um 22%.
1 Skagaíjarðarsýslu vógu veturgömlu hrútarnir, 370
að tölu, 73.9 kg að meðaltali, cða 4.1 kg minna en í
Eyjafjarðarsýslu. Af þeim hlutu 54 fyrstu verðlaun
eða tæp 15%. Þcir vógu 80.9 kg að meðaltali. Ónot-
hæfir voru dæmdir 112 eða 30%.