Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 112
110
BÚNAÐARRIT
í Dalasýslu voru sýndir 147 hrútar veturgamlir. Þeir
vógu 75.1 kg að meðaltali. Af þeim lilutu 26 fyrstu
verðlaun eða rúml. 18%, en 25 voru taldir ónothæfir.
1 Mýrasýslu voru sýndir 128 hrútar veturgamlir, er
vógu 69.6 kg að meðaltali. Aðeins 15 þeirra hlutu I.
verðlaun, eða tæp 12%, en 47 fengu engin verðlaun
eða 37%.
í Snæfellsnessýslu voru sýndir 111 hrútar veturg.,
er vógu að meðaltali 71.5 kg. Sextán þeirra fengu I.
verðlaun, en 32 engin verðlaun.
Hrútar á Suðurlandi voru nú rýrari en búast mátti
við, enda var fé þar yfirleitt rýrt í haust. Veturgamlir
hrútar í þeim lireppum, sem nú sýndu í Rangárvalla-
sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu, voru nú dálítið létt-
ari en á sýningunum 1947, en yfirleitt þyngri en 1943.
Fullorðnu hrútarnir voru nú svipaðir að þunga og
1947, aðeins þyngri í sumum hreppunum, en léttari í
öðrum, en nú voru þeir yfirleitt nokkru vænni en 1943
(sbr. Búnaðarrit 58. og 61. árg.). Af sýndum hrútum
í Rangárvallasýslu hlutu 20% fyrstu verðlaun, en rúm
14% voru ónothæfir. í Vestur-Skaftafellssýslu fengu
15.5% af sýndum hrútuin I. verðlaun, en 21% voru
ónothæfir. Það ber að athuga, að nú féllu niður sýn-
ingar í Mýrdalnum, en þar hafa hrútar verið betri en
austan Mýrdalssands.
Fyrstu verðlauna hrútarnir og fjárræktin
í hverri sýslu.
Tafla A—H sýnir fyrstu verðlauna hrútana eftir sýsl-
um og hreppum. Þar eru gefnar eftirtaldar upplýsing-
ar um hvern íyrslu verðlauna hrút: Ætterni, þar sem
það er þekkt, aldur, þungi, helztu mál og hver var eig-
andi lians, er hann var sýndur. Þar er einnig gefið
meðaltal af þunga og málum þessara hrúta i hverj-