Búnaðarrit - 01.01.1952, Side 138
136
BÚNAÐARRIT
ingum, og líka vegna þess, að færra var af óþolandi
illa gerðum einstaklingum i hrútum Hörgdæla.
Arnarneshreppur. Þar var sýning allsæmilega sótt.
Hrútarnir, sem flestir voru ættaðir úr austanverðum
Bárðardal, voru misjafnir að gæðum, en þó flestir
þungir. Beztur þeirra var Jökull Hermanns í Litlu-
Brekku, frá Bjarnastöðum í Bárðardal. Næstur hon-
um stóð Lútur Jóns í Syðra-Brekkukoti, einnig frá
Bjarnastöðum, og þar næstur var Lalli Jóns á Ytri-
Bakka, frá Engidal, ágætlega gerður hrútur.
Árskógsstrandarhreppur. Þar var iasólt sýning, enda
fátt fé þar í sveit. Hrútarnir voru yfirleitt vænir og
sumir ágætir. Bezlur þeirra var Fífill í Götu, frá Skútu-
stöðum, metfés einstaklingur. Næstur honum stóð
Bangsi á Litlu-Hámundarstöðum, frá Jóni Péturssyni
á Gautlöndum, einnig ágætlega gerður hrútur. Hrút-
arnir í þessuin hreppi voru yfirleitt ættaðir úr Mý-
vatnssveit.
Svarfaðardalshreppur. Sýningin var framúrskarandi
vel sótt. Hrútarnir voru því nær allir ættaðir úr Keldu-
hverfi. Þeir voru margir ágætlega gerðir. Að þunga
stóðu þeir þó að baki hrútum í nokkrum hreppum
sýslunnar, sjá töflu 1, en að vaxtarlagi og holdafari
stóðu þeir næstir hrútum Öxndæla. Fyrstu verðlauna
hrútarnir í Svarfaðardal voru margir framúrskarandi
þéttvaxnir og lágfættir, tafla A, smáir að vallarsýn,
en þungir rniðað við stærð. Smári Sigurvins á Skeiði,
frá Tóvegg, er framúrskarandi skepna, tafla A. Aðra
ágæta I. verðlauna hrúta má nefna, Spak Jóns á Hofi,
frá Tóvegg, Prúð á Göngustöðum, Hrana á Þverá, Spalc
á Auðnum, alla frá Hólum í Kelduhverfi, og Gul Ein-
ars á Skeiði, frá Keldunesi. Það er áberandi, hvað
hrútarnir frá Hóli, Tóvegg og Keldunesi báru af öðrum
hrútum, þó að nokkrir góðir hrútar væru ættaðir frá
öðrum bæjum í Kelduneshreppi. Það er eðlilegt, að