Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 141
BÚNAÐARRIT
139
Hofshreppur. Hrútarnir þar eru flestir ættaðir úr
Strandasýslu. Þeir eru svipaðir að gæðum og i hrepp-
unum utar í sýslunni. Sýningin var vel sótt úr inn-
hluta sveitarinnar. Beztu hrútarnir voru Prúður Stef-
áns á Hlíðarenda, Hrani á Grindum og óðinn á Ós-
landi, allir miklum kóstum búnir.
Hólahreppur. Þar var sýning ágætlega sótt, en hrút-
xir fremur lclegir. Af 58 hrútum sýndum hlutu aðeins
8 fyrstu verðlaun, en 20 voru dæmdir ónothæfir, tafla
I. Stakkur á Sleitustöðum, frá Stakkanesi í Hrófbergs-
hreppi, er ágætur hrútur, sömuleiðis Gestur Péturs í
Efra-Ási, frá Gestsstöðum í Hrófbergshreppi. Bezti
hrúturinn i sveitinni var þó talinn Hvítkollur Guð-
mundar á Hrafnhóli, keyptur frá Hrófá í Strandasýslu,
en að líkindum lengra fram ættaður frá Stakkanesi.
Hvítkollur er framúrskarandi jafn, þéttvaxinn, hold-
mikill og þolslegur hrútur. Hann hlaut heiðursverð-
laun, kr. 100.00, sem Hólahreppur lagði sérstaklega
fram til verðlauna á hezta hrút sveitarinnar.
Viðvikurhreppur. Sýning var þar fremur vel sótt.
Hrútarnir voru flestir ættaðir úr Strandasýslu, en
nokkrir lir Þingeyjarsýslu. Að vænleika og gæðum yfir-
leitt voru þessir hrútar svipaðir og hrútarnir í Hóla-
og Hol'shreppi. Hrútar Hermanns á Lóni báru af öðr-
um. Hlutu þrír þeirra I. verðlaun, allir frá Óspaks-
eyri, tafla B. Beztur þeirra var Spakur, framúrskar-
andi útlögugóður og vel gerður yfirleitt.
Akrahreppur. Þar voru sýningar framúrskarandi
vel sóttar. Sýndir voru 143 hrútar eða því nær allir,
sem til voru í sveitinni. Þessir hrútar voru næstum því
allir ættaðir úr Aðaldals- og Reykjadalshreppi í Suður-
Þingeyjarsýslu. Yfirleitt voru þeir lakari en hrútar,
sem Eyfirðingar höfðu keypt i Þingeyjarsýslu milli
Slcjálfandafljóts og Jökulsár. Aðeins 17 hrútar fengu
fyrstu verðlaun eða 12% af sýndum hrútum, en 49
voru ónothæfir eða rúmlega 34%. Að óathuguðu máli