Búnaðarrit - 01.01.1952, Side 169
BÚNAÐARRIT
167
D. Grýður nr. 545, 10 v., eign Þorsteins Þórarins-
sonar, Holti. Hún var sýnd 1949 með afkvæmum og
lilaut þá I. verðlaun fyrir þau. Lýsing á afkvæmum
hennar þá og ættartala er birt í 64. árg. Búnaðarritsins,
bls. 240. Tafla 2 D sýnir, að afkvæmi Grýðar eru fram
úr skarandi væn, útlögugóð, bakbreið og lágfætt. Dæt-
ur hennar eru miklar afurðaær. Tvær þeirra áttu nú
lirútlömb, er lögðu sig með 19.25 kg kjöt, og ein var
með 2 gimbrar, er vógu á fæli 35 kg. Uggi, sonur henn-
ar, hefur tvívegis hlotið I. verðlaun fyrir afkvæmi,
og Svarri hlaut I. verðlaun sem einstaklingur. Vetur-
gömlu gimbrarnar undan Grýði eru með afbrigðum
vænar, að vega 68 kg hvor og vera tvilembingar. Nú
fórst fyrir að vega Grýði sjálfa, en 9 vetra gömul vó
hún 75 kg. Hjalti Gestsson segir, að afkvæmi Grýðar
hafi ÖJl verið ágæt.
Grýður hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi eins og 1949.
E. Skessa nr. 550, 1 v., eign Árna Kristjánssonar,
Holti, er dóttir Goða nr. IX frá Grænavatni og Lang-
brókar, sem var dóttir Prúðs nr. IX frá Grænav. Er því
% Grænavatnsblóð í Skessu. Tal'la 2 E sýnir vænleika
og mál afkvæma Skessu, nema mál og þunga vantar
á son hennar, sem seldur var að Gunnarsstöðum á
Langanessströnd. Afkvæmin eru ágætlega væn, útlögu-
góð og bakbreið. Skessa er sjálf ágæt afurða ær, 3 ein-
lembingshrútar undan henni vógu að meðalt. 46 kg, 2
eini. gimbrar 49.5 kg og tvær tvilembingsgimbrar 42
kg. Sjáll' hefur Skessa verið léttust 67 kg', en þyngst
84 kg að haustlagi og hefur aldrei verið lamblaus.
Þótt afkvæmi Skessu væru væn, þótti Hjalta Gestssyni
þau tæplega nógu gallalaus lil þess að veita henni I.
verðlaun, ekki sízt vegna þess, að hrúturinn fullorðni
var elcki viðstaddur, og varð liann því að byggja á
lýsingu hans einni saman.
Skessa hlaut II. verðlaun fyrir aflcvæmi.