Búnaðarrit - 01.01.1952, Síða 174
172
BÚNAÐARRIT
Tafla 4 C sýnir vænleika og mál afkvæma Kúts. Þau
eru fram úr skarandi væn og mælast ágætlega, nema
tvævetri hrúturinn, sem ekki náði I. verðlaunum. Af-
kvæmi Kúts cru þéttvaxin, fram úr skarandi holdgóð,
lágfætt með stuttan, l'remur sveran haus og fram úr
skarandi fríð. Þau bera með sér mjög mikla kyn-
festu. Þéssi hópur, að undanteknum Snúð, er fram úr
skarandi vel gerður. Bæði ærnar og lömbin yega ótrú-
lega mikið, þvi að allar eru kindurnar smávaxnar.
Hér hefur verið unnið afrek í sauðfjárrækt, sem
sýnir, hvaða árangri má ná, þótt beitilandið sé létt og
margar lcynslóðir bænda hafi talið sér og niðjum sín-
um trú um, að ómögulegt væri að rækta þar vænt fé.
Vænleiki lambanna undan Kút cr sámbærilegur við
það, sem gott er talið í landkostasveitum, og sama
má segja um ærnar. Það var óvenjufagur systra-
hópur. Aldrei fyrr munu hafa verið til í Austur-
Skaflafellssýslu jafnmargar ær 1 vetra jafnvænar og
vel gerðar undan sama hrút eins og þessar dætur
Kúts.
Kútuv Lll hlaut 1. verðlaun fijrir afkvæmi.
Tafla 5. Afkvæmi áa úr Sauðfjárræktarfélagi Mýrahrepps.
i 2 3 4
A. Móðirin Bleikja nr. 120 11 V. 57.0 92.0 20.0 133.0
Synir: Flosi 3 v 86.0 109.0 25.0 131.0
Frosti, 1 v 70.0 101.0 22.0 126.0
Ifætur: 4 ær, 2 v, 4 v. og tvær 6 V. 52.2 91.8 19.3 130.5
B. Móðirin Grein nr. 285, 8 v. 61.0 101.0 20.0 130.0
Sonur: Reynir, 4 v 90.0 109.0 25.0 129.0
Dætur: 4 á:r, 4 v., 3 v., tvær 2 V. 55.8 93.8 20.2 125.5
C. Móðirin Snekkja nr. 234, 9 V. 57.0 92.0 17.0 132.0
Sonur: Siniður, 2 v 80.0 101.0 21.0 130.0
Dætur: 3 ær, 2 v og 3 v 54.7 93.7 18.7 117.0
1 gimbrarlainb 33.0 75.0 15.0 110.0
A. Bleilcja nr. 120, eign Bjarna Þorleifssonar, Við-
borðsseli, var sýnd með afkvæmum 1949 og hlaut þá