Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 177
BÚNAÐARRIT
175
Goðdalsfénu. Hann er ágætlega gerður sem einstak-
lingur.
Tafla 6 sýnir, að afkvæmi Prúðs eru allvæn, bak-
breið og fremur lágfætt. Þess ber að gæta, að vetur-
gömlu gimbrarnar voru allar dilkgengar, ein bafði átt
2 lömb, en misst annað. Hefðu þær verið geldar,
mundu þær að öllum líkindum hafa vegið 10 kg mcira
að meðaltali. Þessi afkvæmahópur var fríður, allir cin-
staklingarnir igulir á haus og fótum, vel vaxnir og
boldgóðir. Helzt mátti það að þeim finna, að brjóst-
rými sumra þeirra var ekki nógu mikið, vcgna þess
að bringan var ekki nógu útlögumikil aftur. Kynfesta
virðist vera i þessum ættstofni.
Prúðiir hlaut II. verðlaun fijrir afkvæmi.
Tafla 7. Afkvæmi Prúðs Sigurðar Guðmundssonar, Fossum.
1 2 3 4
Faðirinn Prúður, 3 v .... 101.0 113.0 26.0 128.0
Synir: 1 lirútur 1 v .... 76.5 100.0 24.0 130.0
3 lambhrútar .... 44.0 84.3 19.7 126.3
I)ætur: 10 ær 1 v 51.0 01.4 20.7 127.2
8 giinbrarlömb .... 37.7 82.0 19.3 120.5
Prúður á Fossum hlaut I. verðlaun sem einstak-
lingur 1950. Hann var keyptur frá Skarði i Grýtu-
bakkahreppi og er af vestfirzkum stofni, en ættin að
öðru leyli óþekkt. Prúður er hyrndur, fram úr skar-
andi holdakind og vel vænn, dökkgulur á haus og
fótum, en hefur þá galla að vera of finullaður og hafa
rauðgul hár í ullinni. Bæði kostir hans og gallar koma
fram í ríkum mæli í afkvæmum hans, sem sýnir mikla
kynfestu. Tafla 7 sýnir vænleika og mál afkvæmánna.
Þau eru svipuð að vænleika og afkvæmi Prúðs á Ei-
riksstöðum, en hafa ívið meira brjóstkassarými, að-
eins mjórra bak, cn eru enn lágfættari og holdþéttari.
Sum afkvæmanna hafa of fína ull og nokkuð af gulum
hárum viða í ullinni, þ. e. þau eru fædd gulflekkótt.