Búnaðarrit - 01.01.1952, Síða 199
B tl N A Ð A R R I T
197
til fulls nauðsyn tilraunastarfseminnar i þágu land-
búnaðarins, sérstaklega á búfjárræktarsviðinu. Vænt-
anlega kemur sá skilningur, og mun Búnaðarfélag ís-
lands gera sitt til að auka bann, þótt það hér eflir
leggi ekki hönd að sjálfum tilraununum á sama hátt
og það hefur gert á undanförnum áratugum.
Andvirði Sámsstaða verður lálið renna óskert i hús-
hyggingarsjóð Búnaðarfélags Islands.
Hólmur. Frú Valgerður Helgadóttir, ekkja Bjarna
sál. Runólfssonar, gaf Búnaðarfélagi Islands Hólm í
Landbroti til þess þar að stofna og starfrælcja smíða-
skóla. Þetta hefur síðan«verið gert, en húsakostur
hefur verið ónógur og slaðið starfseminni fyrir þrif-
um. Unnið hefur verið að því að bæta hann og varið
til ])ess kr. 193034.09.
Nú er svo komið, að gott verkstæði með góðuin
smíðatækjum er þar og aðstaða lil smíðanámsins góð.
Húsnæði er þar sæmilegt fyrir 6—8 nemendur vetrar-
langt.
Veturinn 1950—51 voru þar þessir nemendur:
Börkur Benediktsson, Barkarstöðum, V.-Hún.
Gunnar Jónsson, Mánaskál, A.-Hún.
Helgi Arnason, Skorrastað, S.-Múl.
Sigurður G. Helgason, Hrappsstöðum, N.-Múl.
Tómas Þórhallsson, Ásgarði, S.-Þing.
Séra Gísli Brynjólfsson hefur kennl bókleg l'ræði
við skólann, en Valdimar, bróðir Bjarna, cr skólastjóri,
en hann er trésmíðameistari og hefur kennt smíðarnar
og farizt það prýðilega úr hendi.
Sýnir reynslan, að nemendur l'rá Hólmi eru mjög
þarfir menn í sveitunum, en víða cr þar vötnun á smið-
um tilfinnanlegri nú, þar sem víða stendur yfir endur-
bygging á bæði íbúðar- og útihúsum og heita má, að
yl'ir standi ný landnámsöld, þar sem verið er að ljreyta
gömlu torfbyggingunum í varanlegri og hagkvæmari