Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 212
210
BÚNAÐARRIT
svör“. í eftirfarandi er í megindráttum gerð grein fyrir
störfum mínum eins og þeim má skipta i flokka.
1. Búnaðarblaðið Freyr.
Svo er til ætlazt, að ritstjórn Freys sé aðalstarf mitt.
Hana hef ég að sjálfsögðu annazt, en þar að auki
unnið í spjaldskrá og ýmsum öðrum atriðum af-
greiðslunnar og haft umsjón með fjárreiðum öllum
fyrir hlaðið, svo og útsendingu þess. Útgáfunefndin
hefur haldið einn fund á árinu, en ég hef oft snúið
mér til hennar viðvíkjandi ýmsum efnum, hagsmuna
eðlis og efnis vegna, og l'engið úr þeim leyst, án þess
að fundir hafi verið haldnir.
Á þessu ári hefur gengið mun betur að útvega
pappír en um undanfarin ár, en verð hans og svo
allur útgáfukostnaður, hefur hækkað geysilega. Þá
hefur verð mynda og myndamóta og hækkað mjög,
en sökum þess að lesendur óska þess eindregið, að
mikið og gott myndaval sé í blaðinu, er hæpið að
rýra þann þátt, þótt svo kunni að fara, að einhvers
staðar verði að spára til þess að gera útgáfukostnað-
inn viðráðanlegan.
Upplag Freys var 4200 eintök á árinu, en áskrif-
endur rúmlega 4000.
Blaðið skiptist sem hér segir:
Lesmál, ásamt myndum, samtals . . 370 síður
Auglýsingar ........................... 92 —
Forsiðumyndir ......................... 14 —
Efnisyfirlit ........................... 4 —
Á árinu 1951 rituðu 09 höfundar í blaðið, en þar
að auki annáls- og fréttaritarar, svo að á þessu ári
hefur tala samverkamanna verið hærri en nokkru
sinni fyrr. Að öðru leyli er ástæða til að nefna, að
ritstjórninni hafa borizt fleiri bréf en noklcru sinni