Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 218
216
BÚNAÐARRIT
gagn. En góðrar leiðsögu er mikil þörf, og þarf helzt
lcunnugan mann í hvern bíl.
1 júlí flutti ég nolckra fyrirlestra fyrir garðyrkju-
námsflolcka Reykjavíkurbæjar. 18.—21. júlí fór ég
norður i Skagafjörð ásamt Kristjáni Eldjárn þjóð-
minjaverði vegna byggðasafns Skagafjarðarsýslu.
Frá 25. júlí til 6. ágúst var hér milcill erlendur leið-
angur á ferð með 180 þátttakendum. Voru þar kon-
ur frá Noregi , Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Fær-
eyjuin. Þurftu þær á leiðsögumanni að lialda, er gæti
gert sig sæmilega skiljanlegan á Norðurlandamálun-
um við þær, og leyfði stjórn Búnaðarélags íslands, að
ég yrði valinn til þessa. Fóru þessar norrænu konur
víða um, sunnan lands og norðan, og lengst að Mý-
vatni. Veður var gott meðan þær dvöldust hér og allt
upp á hið fcgursta, þátttakendur undantelcningarlaust
stórhrifnir af landi og þjóð — enda vel á móti þeim
tclcið alls staðar. Aldrei fyrr hef ég komizt i hann
jafnkrappan við að svara fyrirspurnum frá þessum
stóra hópi. Allar virtust mér lconurnar prýðilega
menntaðar, og elcki fáar höfðu lcynnt sér íslenzlc mál-
efni og menningu, áður en lagt var upp í ferðina,
sumar árum saman. Frá mörgum þeirra hef ég síðan
frétt, og telja ])ær þessa íslandsferð sína lil minnis-
stæðustu viðburða, og margar þeirra hafa haldið marga
fyrirlestra um land okkar og þjóð, síðan þær komu
heim. Hygg ég, að sjaldan hafi meiri landlcynning
orðið af heimsólcn hingað en af þessari. En hvenær
talca íslenzkar húsmæður sig til, í hæfilega stóran hóp,
og ferðast til Norðurlanda sér til gleði og menningar?
Um miðjan ágúst fór ég að Hvammi í Dölum til
skrafs og ráðagerða um skipulag á nánasta umhverfi
prestssetursins.
24. ágúst fór ég norður í Slcagafjörð samkvæmt
beiðni byggðasafnsstjórnarinnar og var í þeirri ferð
til 1. október. Var ég aðallega í Glaumbæ og vann að