Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 247
BÚNAÐAKRIT
245
byggingu og hlutfallagóða (harmoniska) byggingu.
Kýrin þarf að liafa gleitt sett rif og góðar útlögur,
þ. e. hvelfcl rif. Sé þetta fyrir hendi, þá er trygging
fyrir því, að kýrin hafi mikið þenslurými. Þá þarf
kýrin að vera djúp, þ. e. hafa mikla kviðdýpt aftur
við júgrið. Kýrin á að vera kramarhúslöguð. Að ofan
þráðbein, lárétt lína frá herðum aftur á halarót, en að
neðan frá framfótum og aftur að afturspenum hein
lína, hallandi aftur. Sé kýrin með góðar útlögur, glcitt
sett rif og mikla dýpt, þá hefur hún eiginleika til þess
að breyta miklu af gróffóðri í mjólk, og er það mikils-
verður eiginleiki hér, þar sem innlent fóður er mjög
fyrirferðarmikið. Fyrir bolinn er gefið 30% af heild-
ardóminum.
Til eru kýr, sem hafa marga þá kosti til að bera,
sein hér hafa verið nefndir, en eru þó ekki mjólkur-
lagnar, og eru þá fremur holdasöfnunargripir. Þessar
kýr eru oft með vanþroskaðar mjólkuræðar og brunna
og stífa og óþjála húð. Nii er mér kunnugt um það,
að þessir eiginleikar eru ekki nógu öruggir til þess
að dæma um mjólkurlagni kúnna, en þó þótti mér rétt
að gefa fyrir þessa eiginleika 15% af heildardóminum.
Höfuðið á kúnni er mjög áberandi líkamshluti og
þess vegna ekki rétt að láta sér alveg á sama standa
um hann. Auk þess er því þannig háttað með allar
skepnur, að liöfuðlagið segir oftast eitthvað til um
hvernig beinabygging líkamans er. Ég legg áherzlu á
það, að kýrin sé með fremur stuttan en breiðan haus
og sterklega augahoga. Fyrir höfuðið er aðeins gefið
5% af heildardóminum.
Á þessu fyrrnefnda svæði voru haldnar sýningar
í 26 nautgriparæktarfélögum. Sýndar voru samtals
2709 kýr og 132 naut, eða 2841 nautgripur. Þegar
lokið var sýningum i hverju nautgriparæktarfélagi,
var skráður verðlaunalisti, og var þar tilgreinl, hvaða
verðlaun hver einstakur gripur fékk, og hve mörg stig