Búnaðarrit - 01.01.1952, Síða 264
262
BÚNAÐARRIT
Gullbrá á Kluftum Huppudóttir, en Gullbrá var undan
Mána Huppusyni frá Kluftum. Hann er því allmikið
skyldleikaræktaður út írá Huppu 12 á Kluftum. Hún
var langamma hans í föðurætt, en anima og lang-
amma hans í móðurætt. Frá föðurmóður sinni, Gull-
brá 23 á S.-Seli, mun hann hafa erft dugnað og
hreysti.
Repp mætti á sýningu 1946 með 20 dætur sinar og
hlaut þá I. verðlaun lyrir afkvæmi. Árið 1947 mætti
hann á landbúnaðarsýningunni í Reykjavík með 4
dætur sinar og einn son, Hnífil frá Hjálmholti, og
hlaut enn I. verðlaun fyrir afkvæmi. Vorið 1951 kem-
ur hann enn á sýningu og nú með 43 dætur sínar i
heimasveit, ásamt nokkrum, sem komu á sýningar
í öðrum sveitum. Af þessum 46 dætrum fengu 15 I.
verðlaun eða þriðji hluti, 17 II. verðlaun, 11 III. verð-
laun og aðeins 3 engin verðlaun, og voru þær allar
sárungar og óreyndar. Árið 1950 átti Rcpp 43 full-
mjólka dætur í Hraungerðishreppi, og mjólkuðu þær
að meðaltali 3280 kg mjólk með 4.06% feitri mjólk
eða 13322 fitueiningar. Það sama ár mjólkaði meðal-
kýrin í Hraungerðishreppi að Reppsdætrum meðtöld-
um 3029 kg mjólk með 3.80% feitri mjólk eða 11.516
l'itueiningar. Dætur hans mjólka yfir 2000 fitueining-
um meira að meðaltali en meðaltal kúnna undan
öðrum nautum í hreppnum, og þó hafa þær verið i
framför líka á undanförnum árum. Það er auk þess
Iiægt að fullyrða, að það er engin léleg kýr til undan
Repp.
Dætur Repps eru stórar, myndarlegar kýr með nokk-
uð ójafna yfirlínu, heldur iitlögugóðar, með gleitt selt
rif og vel boldjúpar. Malirnar eru yfirleitt nokkuð
grófar og beinaberar, fótstaðan að aftan of náin, júgrin
yfirleitt stór, en mörg of stutt og of sið, spenar heldur
góðir, enda gott að mjólka þær. Höfuðið er nokkuð
langt, en þó ekki ógerðarlegl, og húðin yfirleitt mjúk.
1