Búnaðarrit - 01.01.1952, Side 265
BÚNAÐARRIT
263
Það mun láta nærri, að fjórða hver dóttir Repps sé
hyrnd. Repp hefur aukið rýmið og bætt júgrið á kúa-
stofninum í Hraungerðishreppi og aukið hreysti hans.
Einn sonur og einn dóttursonur Repps fengu auk
þess I. verðlaun fyrir afkvæmi, og 11 synir hans II.
verðlaun, og á meðal þeirra eru naut, sem allar likur
eru fyrir, að muni ná hárri viðurkenningu síðar. Repp
er áreiðanlega eitthvert bezta naut, sem notað hefur
verið hér á Suðurlandi, og eiga bændur í Hraungerðis-
hreppi margfaldar þakkir skilið fyrir það, að þeir skuli
hafa leyft Repp að renna svo langt skeið, og vonandi,
að þeir beri gæfu til þess að eiga hann ennþá í nokkur
ár og nota hann skynsamlega til kynbóta.
2. Hnífill frá Hjálmholti, fæddur 9. marz 1943, eign
Nf. Hraungerðishrepps. Hann er sonur Repps, en móð-
ir hans var Dumba 56, Hjálmholti. Dumba varð ekki
gömul, og fékkst því lítil reynsla á hana, en hún var
dóttir Sneglu 39 í Hjálmholti, sem um langt skeið
var einhver bezta kýr landsins. Móðurfaðir Hnífils
var Adam frá Ketlu á Rangárvöllum. Hann mun ekki
liafa verið meira en meðalnaut, hvorki að ætterni
né í afkvæmum sínum. Föðurætt Hnífils cr skráð hér
að framan.
Á sýningunni voru sýndar með honum 25 dætur
hans. Hlutu 6 þeirra I. verðlaun, 11 II. verðlaun, 7 III.
verðlaun og aðeins ein engin verðlaun. Árið 1950 voru
19 dætur hans fullmjólka á skýrslum, og mjólkuðu
þær að meðaltali 2954 kg með 4.09% fitu eða 12078
fitueiningar. Hnifill virðist því bæta verulega fituna
í mjólkinni og auka fitueiningafjöldann um 500—600
fitueiningar, en mjólkurmagnið virðist hann ekki
auka.
Dætur Hnífils eru stórar, virkjamiklar kýr, nokkuð
langar, yl'irlína ójöfn, útlögur heldur góðar og sæmi-
lega djúpar. Malir og fótstaða er allgóð, júgurrými
gott, júgurlag og spena nokkuð misjafnt, en yfirleitt