Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 266
264
BÚNAÐARRIT
særailegt. Fremur eru þær lausmjólkar, en ekki lekar.
Höfuðið er fremur langl, en þó ekki ógerðarlegt,
rúmlega 10% af kúnum hyrndar, liúðin dálitið
óþjál.
í Hjálmholti hafa verið ágætar kýr uni langt skeið,
og alla tíð síðan fyrir miðja 19. öld hafa þar verið
stundaðar kynbætur, enda hafa komið þaðan margir
happagripir. Hnífill mun þó vera fyrsta nautið, sem
fætt er í Hjáhnholti, sem hlýtur I. verðlaun fvrir af-
kvæmi, en það er trúa mín, að á eftir komi mörg fleiri.
Að sýningu lokinni keypti Nf. Skeiðahrepps Hnífiþ
og tel ég það vera skynsamlega ráðstöfun hæði hjá
kaupanda og seljanda, því að í Hraungerðishreppi
myndi Hníl'ill aldrei lyfta neinu Grettistaki, en á Skeið-
unum er hann líklegur til að stórbæta fituna i stofn-
inum, en það er einn veikasti þátturinn í eiginleikum
Skeiðakúnna.
3. Hængur frá Hjálmholti, fæddur 14. febrúar 1946,
eign Nf. Hraungerðishrepps. Faðir Hængs var Bjartur
frá L.-Reykjum í Hraungerðishreppi. Að Bjarti stóðu
ekki neinir atkvæðagripir, en ekki heldur neinir ó-
happagripir. Sjálfur reyndist Bjartur allvel til undan-
eldis. Dætur hans, sem voru 23 á aðalskýrslu árið
1950, mjólkuðu að meðaltali 3181 kg mjólk með
3.74% mjólkurfitu eða 11900 fitueiningar. Þær eru
mjólkurlagnar, en tæplegá nógu fituháar, eru fáar vel
byggðar og margar með gallað júgurlag. Móðir Hængs
er Skjalda 64 í Hjálmholti. Hún er nú einhver afurða-
hæsta kýr á landinu og hefur mjólkað síðastliðin 4 ár
að meðaltali 5190 kg með 4.50% fitu eða 23358 fitu-
einingar. Skjalda er dóttir Repps og Sneglu 39, sem
nefnd var hér að framan (amma Hníl'ils). Á sýning-
una komu 14 dætur Hængs. Þær eru að sjálfsögðu
ungar og óþroskaðar. Þó fengu 7 þeirra II. verðlaun,
5 III. verðlaun og aðeins 2 engin verðlaun. Saman-
hurður á dætrum Hængs, Hnífils og Repps á sama aldri
J