Búnaðarrit - 01.01.1952, Side 287
BÚNAÐARRIT
285
Þar eru kýr, sem ef lil vill líkjast meir þeirri kú, sem
við viljum, að allar islenzkar kýr líkist, en nokkurs
staðar annars staðar á landinu. Þarna er því kann-
ske fjöregg íslenzkrar nautgriparæktar geymt. Ann-
izt það því vel og geymið það vel.
4. Nf. A.-Eyjafjallahrepps, Rangárvallasýslu. í þessu
félagi eru allgóðar kýr og að nokkru leyti sérstæður
kúastofn. Af þeim kúm, sem ég hef séð í þessu l'élagi
eru kýrnar á Þorvaldseyri sérstæðastar. Þær eru mjög
lágfættar, hafa sumar frarn úr skarandi yfirlínu og
óvenju mikið rými. Þær hafa mjög mikla holdsöfn-
unar eiginleika, en samfara því eru þetta góðar mjólk-
urkýr. Vegna þess, hve þær eru holdsamar og rúm-
miklar, geta þær þrifizt vel og mjólkað á fremur léttu
fóðri. Það bagar mjög starfsemi félagsins, hve margir
bændur í hreppnum standa utan við það.
5. Nf. V.-Eyjaf jallahrepps, Rangárvallasýslu. Félag-
ið starfar í 5 deildum, og eru starfshættir þar þannig,
að liver deild er eins og sjálfstætt lelag'. Ein þessara
deilda, hin stærsta þeirra, félagsdeild Merkurbæja,
hefur unnið ágætt kynbótastarf. Þar er nautið As-
rauður frá Ásatúni í Hrunamannahreppi, og hefur
hann nú verið notaður þar í 5—6 ár. Hann er nokkuð
hrcinræktað Kluftanaut og ætti að gefa dætur með
háa mjólkurfitu og sæmilega nythæð. Annars er þarna
annað naut, sem ég vænti mér meira af, en það er
Glæsir frá Kanastöðum. Hann er einnig af Kluftakyni
og skyldleikaræktaður út frá Hetlu 19 í Hörgsholti.
Allt í kringum liann í ætt hans eru einstaklingar með
mjög mikil afurðaafköst. Með þeim nautastofni, sem
l'élagið á, ættu að verða talsverðar kynbætur í félag-
inu á næslu áruin, sérstaldega ef deildirnar tækju upp
samstarf og létu nautin vera eilt ár í hverri deild.
6. Nf. A.-Landeyjalxrepps, Rangárvallasýslu. Merki-
legast við nautgriparæktina i þessu félagi er kúabú
Diðriks Sigurðssonar á Kanastöðum. Hann er bróðir