Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 291
BÚNAÐARRIT
289
er sá, að ])ær eru of fitulágar. Nautastofn félagsins ér
a/Igóður, en það, sem jþarf fyrst og fremst til Ress að
einhverjum áfanga verði náð, er víðtækara starf og
aukið samstarf deildánna.
16. Nf. Gaiilverjabæjarhrepps, Árnessýslii. í þessu fé-
lagi er nokkuð almennt skýrsluhald og talsverður
áhugi á nautgriparækt. Hér eru líka nokkrar álitlegár
kýr, án þess þó, að hér sé um nokkurn samstæðan
stofn að ræða. Guðmundur Jóhanriesson á Arnarhóli
á 5 af þeim 12 kúm, sem fengu I. verðlaun. Hanri
hefur mjög glöggt auga fyrir skepnum, og að hann á
svona góðar kýr er meira honum sjálfum að þakka
en þeim félagsskap, sem liann hefur starfað í. Það
naut, sem hefur gefið beztan árangur i félaginu, er
Þáttur frá Kluftum. Hann var undan Ósk Huppudóttur
á Kluftum. En því miður liafa starfshættir ielagsins
verið þannig fram að þessu, að félagið starfar í deild-
um með eigin naulahald, og þess vegna verða náutin
þar aldrei gömul og alltof fáir hafa þeirra not. Nuna
eru nokkur álitleg naut í félaginu, og ef deildirnár
tækju upp samstarf um nautin, þá mætli búast við
skjótum árangri.
17. Nf. Stokkseijrarlirepps, Árncssýslu. Hér vár mjög
vont veður á sýningardagirin og því fáar kýr sýridar.
Annars eru allgóðar kýr í hreppnum, en samstarf
vantar milli þeirra tveggja deilda, serii þar éru starf-
andi.
18. Nf. Sandvíkurhrepps, Árnessýslu. í þessari sveit
er fremur gott félag, en meðlimir þess þó of fáir tii
þess, að vel sé. Hér eru inargar, goðar kýr, enda liafá
hér oft verið góð naut og þeirra notið lengi við. Núna
síðast var Máni frá Túnsbergi þar í mörg ár. Hanri
var sonur Klaufar á Túnsbergi, sem um margra ára
skeið var afkastamesta kýrin hér á Suðurlandi, "o'g
Mána frá Kluflum. Máni hækkáði vérulega fituna í
kúastofninum, og að ýriisu öðru léyti bætti hárin
19