Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 292
290
BÚNAÐARRIT
stofninn. En fram undir þetta hafa heyin verið of
létt og sumarlandið of lélegt til þess að góðar kýr hafi
notið sín vel. Eigi þetta félag að taka forystuna í
kynbótum, þá þarf meðferð kúnna að batna og skýrslu-
haldið að verða almennara.
19. Nf. Hraungerðishrepps, Árncssýslu. 1 Hraun-
gerðishreppi er eitthvert bezta nautgriparælctarfélag
á Suðurlandi. Það hefur starfað óslitið með nokkuð
aímennri þátttöku síðan 1912. Skýrsluhald er þar með
bezta móti og mjög almennur áhugi fyrir kynbóta-
starfinu. Það er ekki tækifæri lil þess að rekja sögu
félagsins hér, en á árunum eftir 1930 gætti mest áhrifa
frá Gamla frá Hjálmholti. En árið 1941 keypti félagið
Repp frá Kluftum, og hefur það notað hann síðan.
Auk þess hefur félagið notað tvo syni hans og tvo
dóttursyni. Yngri kýrnar og kálfar og kvígur i uppvexti
eru flestar út af Repp. Eins og að framan er getið,
þá hefur Repp og synir hans stórbætt kúastofninn í
Hraungerðishreppnum og aukið kynbótagildi hans
svo, að ekkert nautgriparælctarfélag á Suðurlandi get-
ur nú afhent jafnmarga og jafngóða kynbótagripi og
það á ári hverju. Þegar Repp kom í félagið, var bústofn
félagsins allmikið ræktaður, og þá voru margar ágætar
kýr í sveitinni, sérstaldega í Hjálmholti. Kýrnar voru
yfirleitt nokkuð stórar, holdskarpar og grófbyggðar,
með stór en síð júgur. Þær voru mjólkurlagnar, en
varla nógu fituháar. Með Repp og sonurn lians hefur
bygging kúnna heldur batnað, og þó er það aðallega
bygging kúnna, sem er verulega ábótavant. Nythæð
og mjólkurfita er núna orðin það góð, að varla er á
öðru betra völ annars staðar. 1 félaginu eru nú margar
glæsilegar nautsmæður, og spillir það elclci, að þær eru
flestar undan Repp og Hnifli. En það, sem sérstaklega
ber að benda á, er það, að í Hraungerðishreppi er lang-
bezti nautastofn, sem til er í nokkru félagi hér á Suður-
landi. Repp er ennþá í fullu gildi, og er sjálfsagt að