Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 294
292
BÚNAÐARRIT
á yeturna og betri sumarbeit á sumrin en hingað til.
Það er og verður alltaf höfuðskilyrði fyrir raunhæfum
kynbótum, að skepnunum sé gefinn kostur á að skila
fyllstu afurðum.
21. Nf. Gnúp/jerjahrepps, Árnessýslu. Hér er eitt af
elzlu nautgriparæktarfélögunum, og hefur það starfað
vel og mcð nokkuð almennri þátttöku. Árangurinn af
kynbótastarfinu var þó ekki mikill lengi vel, þangað
til Brandur frá Husatóftum var keyptur í félagið 1936.
Undan honum komu margar ágætar mjólkurkýr með
háa nyt og sæmilega fitu og flestar þeirra vel byggðar.
Einhver bezta kýrin undan Brandi er Hosa Steinþórs
á Hæli, og er hún þrautmjóllcurlagin, vel byggð og
endingargóð kýr. Annað happanautið í félaginu var
Klufli, sonur Hupjtu 12 á Kluftum og Kalda frá Kald-
bak í Hrunamannahreppi. Hann var keyptur árið 1937
og var notaður þar mikið í 11 ár. Hann bætti stór-
lega kúastofninn í félaginu, bæði hvað snerti afurða-
semi og byggingu, því að Klut'ti var eittlivert falleg-
asta naut, sem ég hef séð hér á landi. Þriðja happa-
nautið í félaginu var Hral'nkell, sonur Mána frá Kluft-
um og Kollu 50 á Hrafnkelsstöðum. Hann jók lil muna
afurðasemi kúnna, en byggingu þeirra bælli hann ekki.
Hrafnkell yar notaður í 10 ár í félaginu, og eru því
mjög margar kýr lil undan honum. Það fer ekki hjá
því, þegar nokkur góð naut fylgja hvert á eftir öðru,
að stofninn fær við það nokkurt kynbótagildi. Enda
er það svo í nautgriparæktarfélagi Gnúpverjahrepps,
að þar eru nokkrar ágætar naulsmæður. Nautastol'n
félagsins jiar er Hka mjög álitlegur, þó að eklcert naut
sé þar með reynslu á bak við sig. Má þar nefna Hjört
frá Loftsölum, son Bílds og Hafeyjar, Tígul frá Sltriðu-
felli, son Felds Mánasonar frá S.-Langholti og Drafnar
á Skriðufelli, Sorta frá Langholtsparti, son Repps og
Lulcku Sólbrandardóttur frá Garðakoli í Mýrdal, og
yngsta son Skjöldu 64 í Hjálmholli, undan Hring frá