Búnaðarrit - 01.01.1952, Side 297
BÚNAÐARRIT
295
Nautastofn félagsins er ekki svo góður seni skyldi.
Þó er þarna eitt I. verðlauna naut, Brandur frá Unn-
arholtskoti, og má vænta góðs af lionum. Ennfremur
cr Bakki líklegur til þess að gefa góða raun. Hinir
hafa allir eitthvað gott við sig, en ekki þori ég að benda
á neinn þeirra sérstaklega, sem líklegur sé til þess
að halda því, sem áunnizt hefur og bæta það, sem sér-
staklega á vantar.
Ég álít, að Nf. Hrunamannahrepps eigi að lialda á-
fram að rækta Kluftakynið. En það þarf sérstaklega
að gæta sín með nautavalið í framtíðinni, ef vel á að
l'ara. Mér dettur helzt í hug, að félagið ætti að reyna
að fá naut undan Repp eða Víðkunni og einhverri
beztu Reppsdótturinni.
Lýsa III í Unnarholtskoti hlaut Huppuhornið að
þessu sinni, en það er farandgripur, sem veita skal
heztu kúnni á hverri sýningu. Páll Zóphóníasson, sem
mætti á þessari sýningu, úthlutaði þessum verð-
launum.
23. Nf. Biskupstungnahrepps, Arnessýslu. Hér er lít-
ið félag í stórri sveit. En þó eru hér nokkrar mjög góð-
ar kýr og líklegar nautsmæður. Kúastofninn er að
talsverðu leyti af Kluftakyni. Fyrst var Kluftabrandur
notaður þar í mörg ár, en síðan synir hans, Búri frá
Reykjavöllum og Torfi frá Torfastöðum, og ýmsir
aðrir.
Nautastofn félagsins er allgóður, en varla má búast
við miklum kynbótum, nema því aðeins, að fleiri bænd-
ur taki þátt í kynbótastarfinu.
24. Nf. Laugardalshrepps, Arnessýslu. Þetta félag
hefur verið svo lítið, að það hefur eiginlega verið ó-
starfhæft vegna smæðar sinnar. Ef áhugamönnuin
tekst að skipa sér þar saman um lcynbæturnar, þá
má vel vænta þar kynbótaárangurs, því að þar er
slæðingur af ágætum kúm.
25. Nf. Grímsneshrepps, Árnessýslu. Hér er ennþá