Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 303
BÚNAÐARRIT
301
fyrst allra maíina, hve Nf. Hraungerðishrepps hefur
komizt langt í kynbótum þennan síðasta áratug.
Að lokum vil ég geta formanna þeirra tveggja naut-
griparæktarsambanda, sem eru starfandi hér á Suð-
urlandi, en það eru þeir Lýður Guðmundsson, bóndi
í Litlu-Sandvik í Flóa, formaður Nautgriparæktar-
sambands Árnessýslu, og Eggert Ólafsson, bóndi á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum, formaður Nautgriparækt-
arsambands Rangárvalla- og V.-Skaftafellssýslu. Á
árinu 1950 voru næstum því hálft fimmta þúsund árs-
kýr á skýrslum hér á Suðurlandi, og, að starfsemin
er þetta mikil, má eingöngu þakka starfsemi nautgripa-
ræktarsambandanna. Að stofnun þeirra og starfrækslu
hafa að vísu margir ötulir menn unnið, en engir frem-
ur en formennirnir, þeir Lýður og Eggcrt, og fyrir
það eiga þeir þakkir skilið.
Ritað á Selfossi í desemher 1951.
Hjalti Gestsson frá HælL
Um sýningarnar í Gullbringu- og Kjósarsýslu segir
Ólafur Stefánsson ráðunautur þetta:
Nautgripasýningar í Kjalarnesþingi 1951.
Á öndverðu árinu 1951 fór búnaðarmálastjóri þess
á leit við mig, að ég yrði í stað nautgriparæktarráðu-
nautar Búnaðarfélags íslands á nautgripasýningum,
sem halda átti þá á árinu í Kjalarnesþingi.
Bar ég síðan erindi þetta undir stjórn Búnaðar-
sambands Kjalarnesþings, sem leyfði góðfúslega fyrir
sitt Ieyti, að ég tæki sýningarnar að mér. Tjáði ég
því næst búnaðarmálastjöra, að ég skyldi vera á sýn-
ingunum, og hafði ég síðan samband við formenn bún-
aðarfélaganna á svæðinu, þar sem nautgriparæktar-
deildir eru starfandi, til þess að fá vitneskju um það,