Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 304
302
BÚN AÐARRIT
hvort óskað væri eftir sýningum, en nautgriparækt-
ardeildir eru starfandi í eftirtöldum hreppabúnaðar-
félögum:
Búnaðarfélagi Kjósarhrepps,
Búnaðarfélagi Kjalarneshrepps,
Búnaðarfélagi Mosfellshrepps,
Búnaðarfélagi Garða- og Bessastaðahrepps (ásamt
þátttöku úr Hafnarfirði),
Búnaðarfélagi Vatnsleysustrandarhrcpps.
öll félögin, að undanskildu hinu síðastnefnda, óslc-
uðu eftir sýningum. Var í fyrstu gert ráð fyrir, að
sýningarnar yrðu haldnar í júní, en réttara þótti
síðar að fresta sýningum til hausts, vegna hugsan-
legrar smithættu, þar sem blóðsótt (dysenterie) í
nautgripum hafði stungið sér niður á nokkrum stöð-
um i héraðinu fyrr um vorið. Sýningarnar voru haldn-
ar sem hér segir: í Hafnarfirði, Garða- og Bessastaða-
hreppi 1. sept., í Kjósarhreppi 4. sept., í Kjalarnes-
hreppi 6. sept. og í Mosfellshreppi 8. sept. Var ég for-
maður dómnefndar á öllum sýningunum, en búnaðar-
málastjóri var viðstaddur sýninguna í Kjósarhreppi
að ósk minni, og flutti hann þar erindi að sýningu
lokinni. í öllum hreppunum var komið saman um
kvöldið eftir sýningu. Var þá dómum lýst og verðlaun
afhent.
Við útlitsdóm kúnna notaði ég einkunnastiga Hjalta
Gestssonar, ráðunautar, en ég hafði um vorið verið með
honum á noldcrum sýningum á Suðurlandi, þar sem
hann dæmdi eftir þessum einkunnastiga. Við verð-
launaveitingar á kýrnar var tekið tillit til útlitsdóms-
ins ásamt afurðum þeirra síðustu tvö eða þrjú árin,
en í mörgum tilfellum ná skýrslurnar ekki lengra
aftur. Ennfremur var í sumum tilfellum stuðzt við
skýrslur fyrir líðandi ár. Sýningarnar voru vel sóttar.
Sést það í töflu I, ásamt tölu þeirra gripa, sem verð-
laun hlutu.