Morgunblaðið - 23.02.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1985
45
■ i
■ i
Fyrstu frímerkin koma út 20.
marz nk. Verða það fjögur blóma-
frímerki í verðgildunum 800, 900,
1600 og 1700 (aurar). Eru þau að
stærð og allri gerð framhald af
þeim flokki blómafrímerkja, sem
út hefur komið síðan 1983. Sjá
annars meðfylgjandi mynd.
Evrópufrímerki í tveimur verð-
gildum koma út 3. maí, en nafn-
verð þeirra hefur enn ekki verið
gefið upp. Verða þau helguð tón-
listarári Evrópu. Á ég von á, að
þessi frímerki veki athygli meðal
safnara.
Garðyrkjufélag íslands verður
aldargamalt á þessu ári. Einn af
frumkvöðlum þess og formaður
fyrstu tíu árin var Schierbeck
landlæknir, sem var kunnur garð-
og trjáræktarmaður. Af þessu til-
efni kemur út frímerki 20. júní, að
verðgildi 20 kr. Vel fer á því, að
myndefni þess verður aldargamalt
tré, sem Schierbeck gróðursetti í
garði sínum á horni Aðalstrætis og
Kirkjustrætis.
Sama dag kemur út annað frí-
merki, 25 kr., í tilefni Alþjóðaárs
æskunnar. Ekki kæmi mér á óvart,
að myndefni þess þætti nokkuð
sérstætt meðal íslenzkra frl-
merkja.
10. sept. munu koma út tvö frí-
merki í flokknum „Merkir íslend-
ingar" með myndum af Jóni Guð-
mundssyni ritstjóra og séra Hann-
esi Stephensen. Gjarnan hefði
mátt minnast þessara manna fyrr
I þessum flokki. Báðir voru þeir
miklir stuðningsmenn Jóns Sig-
urðssonar I frelsisbaráttu íslend-
inga á síðustu öld og komu mjög
við sögu þjóðfundarins 1851.
Sennilega muna fáir nú eftir sr.
Hannesi á Ytra-Hólmi, þó að hlut-
ur hans væri ekki smár. Vonandi
kannast aftur á móti flestir íslend-
ingar enn við Jón Guðmundsson,
hinn skelegga ritstjóra Þjóðólfs,
sem fórnaði öllum embættisframa
sínum á altari frelsisbaráttu okkar
eftir þjóðfundinn 1851.
Sama dag, þ.e. 10. sept., er ætl-
unin að gefa út þrjú almenn frí-
merki með myndum af sæfífli,
smokkfiski og trjónukrabba. Eru
þau af sams konar gerð og dýra- og
fuglafrímerkin, sem hófu góngu
sína 1980. Trúlega fer þessum
flokki senn að ljúka, enda munu
margir sammála um það, að stærð
þessara frímerkja sé ekki heppileg.
Hin 15. okt. á svo að koma ut 100
krónu frímerki með mynd af mál-
verki eftir Jóhannes S. Kjarval.
Enda þótt útkomu þessa frímerkis
beri upp á aldarafmælisdag lista-
mannsins, er það ekki hugsað sem
minningarfrímerki af því tilefni.
Jóhannesar S. Kjarvals verður
örugglega minnzt síðar í flokki
Merkra íslendinga.
Loks munu hin árlegu jóla-
frímerki koma út 14. nóvember.
Þau teiknar að þessu sinni Snorri
Sveinn Friðriksson.
Hallargarðurinn
HUSI VERSLUNARINNAR
BORÐAPANTANASIMI HELGARINNAR 30400
ÖRN ARASON LEIKUR KLASSÍSKAN GÍTARLEIK FYRIR MATARGESTI
ATH.: OPNUM KL. 18 F. LEIKHÚSGESTI
ÞAD SEM MAT-
REIÐSLUMENN
MÆLA
MEÐ UM HELG-
HaHargaröurinn
Ul ICI UCDCI I IklADIfcikiAO
Úrval forrétta Hallar-
garösins:
Reyktur áll meö hræröu eggi.
Smjörsteiktir humarhalar
meö sinnepskryddaðri hum-
arsósu.
Snigiadiskur meö gljáöum
brauösnittum.
Nautahryggsneiö meö svepp-
um og rjómapiparsósu.
Aliönd a la Orange.
Heilsteiktur nautaframhrygg-
ur meö chateaubriand-sósu.
Súkkulaöiterta meö mokka-
kremi.
HUSI VERSLUNARINNAR
P
II
HAWI
I f
II
Laugardag 23. febrúar 16 ára og eldri kl. 10—3. —
Sunnudag 24. febrúar krakkaskemmtun kl. 3—6. .—-—
Stórkostleg hátíð sem engínn má láta fram hjá sér fara
Stórkostleg Wham dagskrá \ 15- hver gestur fær Wham glaöning.
** Bezta Wham lagiö verður kosið.
WHAM video.
WHAM merki fyrir alla. VeiOiaUn.
WHAM wnan rakin Wham bolir, handklæöi, plötur, video, plakot og fl.
ZZ... New Models sýna Wham fatnað frá versl. Quadro
WHAM video.
WHAM merki fyrir alla.
WHAM sagan rakin.
WHAM spurningar um Wham lögin.
WHAM happdrætti.
WHAM danssýning.
WHAM tískusýning.
WHAM drykkur.
FORSALA
aðgöngumiða í versl. Hjá Hirti og í L-116
frá kl. 10—6.
'r&iti
Miðaverö laugardag kr. 250,-.
Miöaverö sunnudag kr. 150,-.
PS. Eina sanna Freestyle landskeppnin hefat í Traffic 3. ágúat. Skráning hafin.
Hljómplötudeild Karnabæjar. t^jj\KARNABÆ I ^ PAI H MI