Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGURII. JÚNÍ 1985
3
Áburðarflugið hafið:
Svipuðu magni dreift
og undanfarin ár
f SIJMAR mun Landgræðsla ríkisins
dreifa svipuðu magni af áburði og
grasfræi og undanfarin ár, en helm-
ingi minna en á árunum 1974—79
Þegar þjóðargjafarinnar naut við.
Landgræðsluflugvélin Páll Sveins-
son byrjaði áburðardreifingu um
helgina á Reykjanesi en TF-TÚN
hóf áburðarflug í síðasta mánuði.
Flugmenn Flugleiða fljúga Páli
Sveinssyni í sjálfboðaliðsvinnu í
sumar eins og undanfarin ár.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri sagði að mest af áburðinum
væri dreift í friðaðar landgræðslu-
girðingar og á uppgræðslusvæði
Blönduvirkjunar. Hann sagði að
fyrirhugað væri að dreifa liðlega
1.100 tonnum af grasfræi og
áburði með Páli Sveinssyni og 500
tonnum með minni vélinni, TF-
TÚN.
Reynir gefur ungu kynslóðinni eiginhandaráritanir á Egilsstöðum.
Göngumaðurinn Reynir Pétur
Ingvarsson, vistmaður á Sól-
heimum í Grímsnesi, sem er á
leið sinni kringum landið var
kominn til Egilsstaða á hádegi á
laugardag og var þar vel tekið.
Var hann í gær í Jökuldalnum á
leið uppá Möðrudalsöræfi og
sagðist Halldór Kr. Júliusson,
forstöðumaður Sólheima, búast
við að Reynir myndi ná í Möðru-
dal í gærkvöld og ef allt gengi að
óskum yrði hann komin til Ak-
ureyrar á föstudagskvöld. Sagði
Halldór að söfnunin fengi enn
góðar viðtökur og hefði ferming-
ardrengur á Selfossi til að
mynda safnað þar 120 þúsund
krónum.
Kaupfélag Borgfirðinga:
Reynir Pétur f góðum félagsskap á Egilsstöðum.
i
Reynir
Pétur á
Möðru-
dalsöræfum
Kollafjörður:
Fyrsti haf-
beitarlax-
inn heimtur
FYRSTI hafbeitarlax sumarsins skil-
aði sér í gærmorgun í Laxeldisstöð
ríkisins í Kollafirði. Ekki er venju-
legt að laxinn sé farinn að heimtast
svona snemma.
Sigurður Þórðarson stöðvar-
stjóri í Kollafirði sagði að fyrsti
laxinn hefði aldrei komið fyrr en i
fyrravor, þegar sá fyrsti náðis't 6.
júní, en venjulega hefðu fyrstu
laxarnir ekki komið fyrr en eftir
20. júní. Sigurður var heldur
bjartsýnn á heimturnar í sumar,
þegar rætt var við hann í gær, en
sagði þó ekki gott að vera með
miídar spár fyrr en lengra væri
komið fram á sumarið.
Flutningur sláturfjár
boðinn út í fyrsta skipti
Seifossi, 10. júní.
í KJÖLFAR jarðhræringanna, sem
urðu sl. miðvikudag, 5. júní, hafa
fylgt nokkrir tugir minni jarð-
skjálftakippa. Þessar jarðhræringar
hafa fundist greinilega á Selfossi og
í nágrenninu. Styrkleiki sumra þess-
ara smáskjálfta hefur náð 2,5 á
Richterakvarða en flestir hafa verið
það litlir, að þeir fundust varla.
Upptök sjálftanna, sem urðu
strax í kjölfar skjálftans 5. júní,
voru fimm km vestur af Selfossi, í
kringum Kögunarhól við Ingólfs-
fjall. Upptök skjálftanna síðustu
daga hafa aftur á móti verið I
Hraungerðishreppi fyrir austan
Selfoss.
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur sagði þessa eftir-
skjálfta nokkru meiri en venja
væri til. „Það er eins og umhverfið
sé að laga sig eftir skjálftann 5.
júní, en þetta boðar ekkert stór-
kostlegt," sagði Ragnar. Hann gat
þess, að gott væri að fólk í strjál-
býli hringdi í veðurstofuna og léti
vita um skjálfta sem það fyndi,
slíkt hjálpaði til við skraningu
þeirra.
— SigJóns.
KAIJPFÉLAG Borgfirðinga hefur
boðið út flutninga sláturfjár að slát-
urhúsi félagsins i Borgarnesi næsta
haust. Bifreiðastöð kaupfélagsins
hefur hingað til séð um þessa llutn-
inga og er þetta í fyrsta skipti sem
þeir eru boðnir út.
Um er að ræða flutning 60—70
þúsund fjár af starfssvæði kaupfé-
lagsins, sem er allur Borgarfjörð-
ur og hluti Snæfellsness, að slát-
Suðurland:
Margir tugir
jarðskjálfta
urhúsinu í Borgarnesi. Þurfa þeir
að fara fram á sex vikum í slátur-
tíðinni í haust. Bjarni Arason,
formaður stjórnar Kaupfélags
Borgfirðinga, sagði að útboð fjár-
flutninganna færi fram sam-
kvæmt samþykkt aðalfundar fé-
lagsins í vor. Hann sagði að kaup-
félagið hefði þurft að halda úti
stærri bílaflota en nauðsynlega
væri vegna venjulegra flutninga,
og væri hluti hans verkefnalaus
stóran hluta ársins. Hefðu fjár-
flutningarnir ekki einasta verið
dýrir heldur hefði kaupfélagið líka
tapað á þeim. Með útboðinu væri
verið að athuga möguleikana á að
ná þessum kostnaði niður.