Morgunblaðið - 20.11.1986, Side 27

Morgunblaðið - 20.11.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 27 Mynd 2: ÓLÖGLEG ÁVANA- OG FÍKNIEFNI SEM LAGT VAR HALD Á 1972 - 85 25 500 mörg dæmi eru um misnotkun amfetamíns á árum seinni heims- stytjaldarinnar á íslandi. Ein af niðurstöðum samstarfshópsins frá 1970, sem um var getið, var að óeðlilega mikið væri um lyfjaávís- anir á amfetamín og barbitúrsýru- lyf. í könnuninni frá 1974 höfðu um 4% reynt amfetamín. Hér verð- ur auðvitað að taka fram að upp úr 1974 fer að bera á ólöglegum innflutningi amfetamíns, samfara hertu eftirliti með lyfjaávísunum og miðast rannsóknin við það. Skv. tölum toll- og löggæslu virðist sem misnot.kun á ólöglega innfluttu amfetamíni hafi minnkað eða jafn- vel horfið á árunum 1975-76 til 1980. Amfetamíns verður vart 1981 og eftir það hefur toll- og löggæsla lagt hald á umtalsvert magn ár- lega. í rannsókninni höfðu 4% á aldrinum 16-36 ára reynt amfet- amín en flestir höfðu reynt það á áttunda áratugnum, eingöngu um 1% hafði reynt efnið 1981-84. Um 3% höfðu reynt LSD 1974 en þeir sem kváðust árið 1984 hafa prófað efnið höfðu allir neytt þess á átt- unda áratugnum. Um neyslu annarra efna, t.d. heróíns og morfíns er mjög erfitt að segja, þar sem mjög fáir kváðust hafa reynt þau. Ef miðað er við tíðni, þ.e. hvað hver og einn hefur oft neytt kanna- bis og amfetamíns, kemur í ljós að vananeytendur, miðað við framan- greinda viðmiðunarreglu, voru 1974 10%, en 4% 1984. Um 9% aldurs- hópsins 16-36 ára hafði reynt kannabis síðustu 12 mánuðina fram að gerð könnunarinnar. Um 7% höfðu neytt þess síðast fyrir einu til §órum árum og 8% fyrir meira en 5 árum. 2A hlutar þeirra sem reyndu kannabis í fyrsta skipti á árunum 1968-74 höfðu ekki neytt þess síðustu ár. Þessar tölur benda til að kannabisneysla sé fyrst og fremst tímabundin, gagnstætt t.d. áfengisneyslu. Svo virðist sem neyt- endur þessara efna séu á aldrinum 15-40 ára. Tiltölulega sjaldgæft er að eldra fólk hafi reynt efnið. Þar sem flestir reyna efnið í fyrsta skipti fyrir og um tvítugsaldurinn er ólíklegt að þessi aldurshópur og eldra fólk hafi komist í snertingu við efnið. Ástæðan er auðvitað sú að kannabisnotkun virðist hafa verið svo til óþekkt um 1970, en þá var 37-40 ára aldurshópurinn 23-26 ára. Niðurstaðan verður því í stuttu máli þessi: Kannabisneysla og líklega neysla annarra ólöglegra ávana- og fíkniefna er bundin við ákveðinn aldur. Útbreiðslan hefur verið sveiflukennd og breytileg eftir neyslutíðni. Síðustu tvö árin virðist hún hafa verið vaxandi en gæti bráðlega farið niður á við ef hún fylgir neysluþróun á öðrum Norð- urlöndun (sjá nánar síðar). Hefur þeim fjölgað sem leitað hafa sér aðstoðar vegna neyslu ólöglegra fíkniefna? Áfengisdeildir og meðferðar- stofnanir hafa síðustu ár birt tölur um neyslu sjúklinga á ólöglegum fíknefnum. Á meðferðarstofnunum SÁÁ hefur verið safnað upplýsing- um um sjúklinga sem þar dvelja. Þar kemur fram (2), að 1985 kváð- ust 14,3% vistmanna hafa neytt kannabis nær daglega í 1 ár eða lengur. Árið 1985 var greindur á geðdeild Landspítalans 591 sjúkl- ingur með aðalgreiningu „alcoholis- mus“, en 62 sjúklingar með aðalgreiningu „önnur fíkniefna- notkun en áfengi" (3). Hlutfallið er m.ö.o. 9:1. Ofangreind skipting er í raun mjög erfið því torvelt er að aðgreina hlut hinna svokölluðu ólöglegu fíkniefna í vímuefnavandamáli þeirra sem leita sér meðferðar. Nið- urstöður rannsókna benda til að sterk fylgni sé milli áfengisneyslu, lyfjamisnotkunar og neyslu ólög- legra fíkniefna, þannig að þeir sem neyta mikið ólöglegra fíkniefna nota yfirleitt mikið áfengi og lyf. Varðandi meðferð hefur þessi skipt- ing einnig takmarkað gildi. Hafa menn látist af völdum neyslu ólög- legra fíkniefna? Menn hafa deilt um það hér á landi hvort dæmi séu um dauðsföll af völdum ofneyslu ólöglegra ávana- og fíkniefna á íslandi. Skil- greining á hugtakinu „dauðsfall af völdum ávana- og fíkniefna" - „nar- komani" dauðsfall - er umdeilanleg og þess vegna ekki undarlegt þó menn greini á um tölur. Hægt er að flokka slík dauðsföll í megin- dráttum í þrennt. Í fyrsta lagi dauðsföll af völdum eitrana (intoxication). í öðru lagi vegna sjúkdóma sem eru óbein afleiðing langvarandi neyslu, s.s. lifrar- skemmdir, vefjaskemmdir í hjarta og lungum o.s.frv. Mjög erfitt er að skipa í þennan flokk nema að undangengnum læknis- og lyfja- fræðilegum rannsóknum. 1 þriðja lagi eru dauðsföll tengd ákveðnum aðstæðum, t.d. þegar um er að ræða slys og þegar sjálfsvíg'eru framin undir áhrifum. Við kannanir á dauðsföllum er tveimur seinni flokkunum oftar en ekki sleppt vegna skilgreiningaerfíðleika, en komið hefur í ljós að fyrsti hópurinn tekur til um 90% skráðra dauðs- falla af völdum ávana- og fíkniefna. Rannsóknarstofa Háskólans sendir sýni til Réttarefnafræðideildar rannsóknarstofu í lyfjafræði þegar upplýsingar frá Rannsóknarlög- reglu ríkisins, sem sér um rannsókn voveiflegra dauðsfalla, gefa ástæðu til að ætla að hinn látni hafi hugsan- lega neytt fíkniefna og/eða lyfja. Einnig er það gert ef engin vísbend- ing er um það hvernig dauða bar að höndum. Á árunum 1977-81 (4) komu til Rannsóknarstofu ( lyfja- fræði sýni úr 497 réttarkrufning- um. Þar af var gerð tæmandi lyfjaleit í 93 tilfellum. Talið var að 107 þessara tilfella mætti rekja til banvænna eitrana. Alkóhól átti þátt í 54 eða í um 50% tilfella, barbitúr- sýrusambönd í um 20% tilfella. Með alkóhóli eru benzódíazepínsambönd talin hafa valdið 10 banvænum eitr- unum. Koloxíð eitt sér eða ásamt. alkóhóli er skráð fyrir rúmlega 20% af banvænum eitrunum. Niðurstað- an er sú að koloxíð, alkóhól og lyf með slævandi verkun valda nær öllum banvænum eitrunum hér á landi. ísland stingur í stúf við önn- ur Norðurlönd m.t.t. tíðni dauðs- falla af völdum sterkra verkja- stillandi lyfja, s.s. morfíns. Hér á landi er ekkert dæmi um andlát af völdum morfíneitrunar, en hér eru helmingi tíðari miðað við Noreg dauðsföll af völdum geðdeyfðar- lyfla. í einu tilfelli frá 1982 greind- ist morfín með fenemali (barbitúr- sýra) en morfínið var ekki talið dánarorsök. Af framangreindu er ekki hægt að fullyrða um nein dauðsföll af völdum ólöglegra ávana- og fíkni- efna á Islandi. Er meira magn og sterkari fíkniefni nú á boðstólum á Is- landi? Á mynd 2 koma fram upplýsing- ar um magn helstu ávana- og fíkniefna sem lagt hefur verið hald á frá upphafi fýrir utan LSD og amfetamín. Þessum myndum ber saman um miklar sveiflur síðustu 3-4 árin. Þessar tölur endurspegla fyrst og fremst árangur toll- og löggæslu, en einnig gefa þær okkur vísbendingar, sérstaklega þegar þær eru notaðar samhliða öðrum tölum, um fíkniefnasölu og dreif- ingu, hvaða efni eru á boðstólum og að einhveiju leyti í hvað miklum mæli. Á tímabilinu 1971-85 hefur verið lagt hald á um 79 kg af hassi og eru það um 88% af öllum upp- tækum efnum frá upphafi. Sam- svarandi tala af marihuana er 7,5 kg, sem er um 9% af heildarmagni frá upphafi. Að árinu 1979 undan- skildu var að meðaltali lagt hald á u.þ.b. 5 kg af hassi árlega 1977-82. Árið 1984 voru 7 kg tekin og um 9 kg á síðasta ári. Ef tekið er mið af þeirrí hassolíu sem náðst hefur virðist ekki hafa borið á neyslu hennar fyrr en upp úr 1977, og virðist hún hafa verið lítil fram til ársins 1982, en þá náðjst stór send- ing, rúmlega 400 g. Árin 1982-84 voru tekin að meðaltali um 370 g á ári. Hassolían er aðeins um 3% af heildarmagni. Tilkoma hennar gefur vísbendingu um breyttar inn- flutningsaðferðir, starfsaðferðir fíkniefnalögreglunnar og/eða neysluvenjur. Ferlar kókaíns og hassolíu eru sambærilegir. Eftir 1977 var lagt hald á kókaín í fyrsta skipti. Aukning varð 1982-83 og árin 1983-84 var magnið að meðal- tali um 20 g. Af öðrum efnum hefur mest borið á amfetamíni, sem fyrst var lagt hald á 1974 og árlega til 1978. Eftir það bar lítið á amfet- amíni, þar til árið 1981. Það magn sem lagt hefur verið hald á af amfetamíni hefur aukist mikið 1983-84. Lítið eða ekkert hefur borið á heróíni á Islandi enn sem komið er. Árið 1983 var lagt hald á 0,3 g af heróíni við innflutning. Síðasta haust var svo tekið á Schiphol flug- velli í Amsterdam nokkuð af efni sem talið var heróín - og var aug- lýst í fjölmiðlum sem slíkt. Seinna kom í ljós að um sterkt amfetamín var að ræða. Ekki þótti ástæða til að leiðrétta það í fjölmiðlum. Tæplega er hægt að tala um eig- inlegt framboð annarra efna en kannabisefna. Framboð amfet- amíns og LSD er mjög sveiflukennt og á sama hátt eftirspumin. Efni eins og kókaín virðist, enn sem komið er, vera flutt inn eingöngu til eigin nota. Standa „hvítflibb- ar“ að einhverju leyti bak við inn- flutning- og dreif- ingu fíkniefna? Þessi staðhæfíng heyrist oft í fjölmiðlum. Það sem kemur fram í rannsóknum er að því oftar sem viðkomandi hefur neytt efna, því líklegra er að hann sé með efni á boðstólum sem hann getur boðið vinum sínum og kunningjum. Það kom fram í könnuninni að eingöngu 7% þeirra sem neytt höfðu ólög- legra fíkniefna fengu efnið hjá ókunnugum - langflestir fengu efnið hjá vinum eða kunningjum. Eitt aðaleinkenni menningarkima fíkniefnaneytenda er það hve lokað- ir þeir eru. Á íslandi virðist salan og mikil neysla fyrst og fremst bundin við ákveðna hópa, sem hafa svipaðan félagslegan bakgrunn. Ekkert dæmi fyrirfinnst í íslenska dómskerfinu um að svokallaður hvítflibbi hafí staðið að fíkniefna- sölu. Auðvitað sannar það ekki að slíkt geti ekki hafa átt sér stað en á meðan það er ósannað verður staðhæfíngin að teljast röng þó hún geti haft aðdráttarafl fyrir fjöl- miðla. Þeir sem fengið hafa dóma fyrir innflutning á fíkniefnum eru fyrst og fremst neytendur sem neytt hafa fíkniefna f miklum mæli og (jármagna sína eigin neyslu með sölu og innflutningi. (1) Athuga skal að þar sem grein- arnar byggja á fyrrgreindri skýrslu verður farin sú leið að geta ekki sérstaklega heimilda nema í þeim tilvikum þegar notaðar eru aðrar heimildir en getið er um í skýrsl- unH (2) Heimild: SÁÁ blaðið - l.tbl. mars 1986. Tafla yfír kannabis- neyslu einstaklinga sem voru á Vogi 1985. Blandað er saman þeim sem kváðust hafa neytt kannabis nær daglega í 1 ár (2,9% af heild), 2 ár (6,3% af heild) og 5 ár eða lengur (5,1% af heild). Samtals 14,3%. (3) Skv. Ársskýrslu Landspítalans - 17.5.86 (4) Þrátt fyrir að þessar tölur séu komnar til ára sinna hafa meginnið- urstöðumar, sem fram koma í kaflanum, ekki breyst. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur ogstarfarhjá dómsmálaráðuneyt- inu. Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Um fræðslu sagði Aristóteles: „Þeir sem hugsað hafa um stjórnvísindi hafa sannfærst um að örlög ríkja eru komin undir upp- frasðslu æskulýðsins.“ Þetta eru orð sögð á örlaga- stundu. Þau eru áminning til ráðamanna sem gleymt hafa skyld- j um sínum gagnvart framtíð þjóðar- innar. ; Við felum eigin vonbrigði þegar á borð er borinn Bakaður f isk- ur með frauði 700 gr fiskur (flök) 1 matsk. sítrónusafí salt og pipar * * * 2 eggjahvítur 2 matsk. majones 'h bolli rifinn ostur 'A tsk. laukduft 1. Fiskflök eru roðflett. Þau eru skorin í stykki eða höfð heil og látin í smurt eldfast mót. Sítrónusafínn er settur á fiskinn og salti og pipar er stráð yfir hann. 2. Eggjahvíturnar eru' stífþeyttar með örlitlu salti (þær þeytast bet- ur), síðan er majones, rifnum osti og laukdufti blandað varlega saman við. 3. Eggjahvítublandan er síðan látin þekja fískinn. 4. Fiskurinn er bakaður í 225 gráðu ofni í u.þ.b. 20 mín. eða þar til frauð- ið hefur lyft sér og fengið ljósbrúnan topp. Berið fram með soðnum kartöfl- um. Þeir sem ekki þurfa að hafa áhyggjur af aukapundum bera hol- lenska sósu fram með fiskinum og nýta þannig eggjarauðumar. Hollensk sósa: 2 eggjarauður 1 matsk. heitt vatn 40 gr smjör eða smjörlíki 1—2 matsk. sítrónusafi 'h tsk. salt 1. Eggjarauðurnar eru hrærðar vel með heita vatninu. I vatnsbaði em rauðurnar hrærðar þar til þær rétt þykkna. 2. Því næst er bráðið smjörlíkið þeytt varlega saman við. Ef hitinn er of mikill og sósan aðskilst, má laga það með því að vinna hana upp í eggjarauðu. 3. Sítrónusafi er settur saman við sósuna og í hana bætt salti eftir smekk. Má freista liðsins á þessum síðustu og verstu tímum! Hér er Haframjöls- kaka 1 bolli haframjöl l'/2 bolli sjóðandi vatn xh bolli smjörlíki 1 bolli flórsykur 1 bolli púðursykur 1 tsk. vanilla 2 egg l'/2 bolli hveiti 1 tsk. matarsódi ‘A tsk. salt 3A tsk. kanill 'A tsk. múskat 1. Sjóðandi vatnið er sett með haframjölinu og látið standa í 1 klukkustund. Síðan er smjörlíki, syk- ur og vanilla hrært létt með eggjun- um. Haframjöli íbleyttu er bætt út ( og hrært vel saman við . Sigtið saman hveiti, matarsóda, salti, kanil og múskati, blandið vel saman við hræruna. Kakan er bökuð í smurðu ferköntuðu kökumóti við 190 gráðu hita í 50 mín. 2. Toppfrauð er sett á kökuna eftir að hún hefur verið bökuð. Brætt er í potti og hitað 'A bolli smjörlíki 1 bolli púðursykur 3 matsk. mjólk 1 bolli kókosmjöl Setjið á bakaða kökuna og bregð- ið undir grill þar til byijar að krauma í frauðinu. Berið kökuna fram heita eða kalda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.