Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
I síldinni á Austfjörðum
>
Síldarsöltun á Reyðarfirði
Síld á Austfjörðum:
Spáð í sildina Morgunblaðið/J.F.
>
„í síldínni hverfa allir verkir“
SÍLDARSÖLTUN er nú í fullum
g-angi á Austfjörðum þó hlé verði
annað veifið vegna tunnuskorts.
Um 70 þúsund tunnur komu til
landsins um helgina og fleiri eru
á leiðinni. A sunnudag var búið
að salta 136 þúsund tunnur að
sögn Einars Benediktssonar að-
stoðarframkvæmdastjóra Síldar-
útvegsnefndar, þar af 113
þúsund tunnur á Austfjörðum.
Hæstu söltunarstaðirnir eru
Eskifjörður með 28.400 tunnur,
Fáskrúðsfjörður með 15.300
tunnur, Reyðarfjörður með
15.100 tunnur og Seyðisfjörður
með 14.100 tunnur.
Söltunin setur svip sinn á mannlíf
á Austfjörðum þessa dagana, eins
og við sáum á ferð okkar um firð-
ina í síðustu viku. Tunnuskortur var
þá farinn að gera vart við sig, víðast
hvar var verið að salta í síðustu
tunnumar. Varla var um annað
rætt en síldina, hve margar tunnur
búið væri að salta í og hversu marg-
ar tómar tunnur eftir. Fjöldi
aðkomumanna á ferli, boðið upp á
kraftmiklar kjötsúpur á öðrum
hverjum matsölustað, sem fólk
borðaði með góðri lyst meðan
síldarhreistug stígvélin biðu næstu
lotu.
„Menn eru almennt mjög ánægð-
ir með síldarsamningana hér um
slóðir og engan óraði fyrir því að
það tækist að semja þetta vel, bæði
hvað snertir verð og magn“ segir
Pétur Olgeirsson framkvæmdar-
stjóri Tanga hf. á Vopnafirði. „Við
vorum búnir að missa vonina um
samninga, en það er kraftaverki
líkast að 200.000 tonn skyldu hafa
náðst og ég held að enginn okkar
síldarsaltenda hafi reiknað með
sama verði í dollurum og í fyrra“
segir Pétur.
Skemman tæmdist á
augabrag’ði
„Þetta er þrælastarf, en stúlk-
urnar hér eru hörkuduglegar."
Friðjón Vigfússon, einn af eigend-
um Verktaka á Búðareyri segir
sfldarvertíðina hafa farið rólega af
stað meðan óvissa var með sölu.
En um leið og samið var fór allt
úr böndum, full skemma var af
tunnum á Reyðarfírði í eigu Síldar-
útvegsnefndar og tæmdist skem-
man á augabragði um leið og
fréttist af samningum. „Það varð
allt vitlaust" segir Guðjón Hjaltason
í Söltunarstöðinni Eljunni Eskifirði.
Svo virðist sem söltunarstöðvamar
hafi slegist um tunnumar og saltað
í gríð og erg þar til þær vom allur
uppumar. Þá tók við nokkra daga
tunnuskortur.
„Það þarf alltaf að vera að hengja
einhvem" segir Unnar Björgúlfsson
hjá söltunarstöðinni Friðþjófi á
Eskifirði. „Nú átti að hengja Síldar-
útvegsnefnd fyrir skort á tunnum,
en það er mjög eðlilegt að sitja
ekki uppi með tunnubirgðir í
landinu áður en vitað er um söluna,
athyglisverðara finnst mér hve
skjótt er hægt að bregðast við og
koma tunnum til landsins. Margir
hafa líka unnið það mikið við söltun-
ina að það er þeim kærkomið að
UM SEXTÍU manns eru á launa-
skrá hjá Norðursíld á Seyðisfirði
að sögn Hreiðars Valtýssonar.
Hreiðar er einn af eigendum
Norðursíldar og hittum við hann
og Hafstein Siguijónsson verk-
stjóra að máli.
„Við söltum og frystum síldina
jöfnum höndum, erum að frysta
fyrir Japansmarkað og salta fyrir
Rússana, búnir að fylla upp í aðra
samninga."
Þeir segjast vera mjög heppnir
vinna við annað, t.d. að pækla."
Aðrir síldarsaltendur taka í sama
streng. „Tunnuleysið er ekki
alslæmt" segir Friðjón Vigfússon,
„við getum gefið okkur tíma til að
hugsa um tunnumar, unnið við
pæklanir og undirbúið næstu töm.“
Fullvinnsla síldarinnar
Um 20 söltunarstöðvar em nú
fyrir austan, þar af 10 við Reyðar-
§örð og Eskifjörð. „Ég tel ekki
vafamál að söltunarstöðvamar em
of margar" segir Gunnlaugur Ing-
varsson, eigandi Bergsplans á
Reyðarfirði. „En þær litlu eiga jafnt
rétt á sér og hinar stærri." Hann
telur Síldarútvegsnefnd hafa unnið
mjög gott starf varðandi skipulagn-
ingu söltunarinnar og náð mjög
góðum samningum erlendis, en
með starfsfólk, flestir em fastráðn-
ir en einnig er talsvert um að
húsmæður komi í síldarsöltunina
og skólanemar salta einnig sumir
hveijir eftir að skóladegi Iýkur. í
verbúðunum býr aðkomufólk, en
um 20 manns koma frá Akureyri,
Eyjafírði og Fljótsdalshéraði.
„Þetta er allt mjög duglegt fólk,
en við leggjum áherslu á að vinna
venjulegan vinnudag, frá 8 á
morgnanna til sjö á kvöldin, söltum
ekki allan sólarhringinn."
Hreiðar Valtýsson og Hafsteinn Siguijónsson
„Erum mjög heppnir með fólk“
mikið starf væri enn óunnið varð-
andi kynningu á síldinni erlendis
og koma henni á markað. „Hráef-
nið okkar er dýrt, en við ættum að
vera samkeppnisfær varðandi full-
vinnslu sfldarinnar, þar sem vinnu-
laun hér em lág miðað við
nágrannaþjóðimar. Það ætti að
geta verið talsverð framtíð í því
fyrir okkur að fullvinna sfldina hér
á landi, þegar það er haft í huga
að skynsamlega hefur verið staðið
að veiðum að undanfömu og gera
má ráð fyrir auknum afla á næstu
ámm.“
Verktakar á Reyðarfirði em með-
al þeirra sem hafa fullunnið sfldina.
„Við höfum verið með marineringu
á innanlandsmarkað" segir Friðjón
Sigfússon einn af fjórum eigendum
Verktaka. „Við emm að reyna að
komast í útflutning, höfum t.d. selt
„Ágætt að grípa í þetta“
„Engin rosaleg
síldarkerling“
„Það vantaði mannskap í morgun
svo ég ákvað að grípa í þetta.“
Valborg Mikaelsdóttir vinnur á
skrifstofunni hjá Strandasfld, en
brá sér í svuntuna og saltaði í
nokkrar tunnur. Hún segir að það
sé ólíkt meira upp úr þessu að hafa
en vera á skrifstofunni, „það var
kona hér um daginn sem fékk átta
þúsund krónur fyrir daginn, en ég
er nú engin rosaleg síldarkerling!“
sfldarsalöt og marineraða sfld í
Norrænu undanfarin ár, en þetta
er frekar þungur markaður.
En hvað segir söltunarfólkið?
Hvemig er að vinna í síldinni?
„Gaman, í síldinni hverfa allir verk-
ir“ sagði einn viðmælandi en annar
kvað þetta hundleiðinlega vinnu.
Við ræddum við nokkra starfsmenn
söltunarstöðvanna.
„í síldinni hverfa allir verkir“
„Þetta er
hálfgert gullæði“
SIGGERÐUR Pétursdóttir er
með afkastamestu sildarsöltun-
arstúlkunum hjá Verktökum á
Búðareyri ásamt stöllu sinni
Birnu Björnsdóttur. Þær segjast
hafa fengið allt að 10 þúsund
krónur fyrir daginn.
Birna er húsmóðir en skreppur í
síldina á haustin, en Siggerður vinn-
ur hjá Verktökum allt árið um
kring. „Ég tók þátt í síldarævintýr-
inu á táningsárum" segir Siggerð-
ur, „þá var allt skorið, saltað og
lagt niður. Sú vinna var miklu
skemmtilegri en það er miklu meira
upp úr þessu að hafa, þetta er hálf-
gert gullæði."
-Eruð þið ekki þreyttar eftir dag-
inn?
„Nei, nei, í síldinni hverfa allir
verkir, maður fínnur einn og einn
sting en gleymir honum í hita leiks-
ins.“
J