Morgunblaðið - 20.11.1986, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
67
Enski bikarinn:
Létt hjá
Forest
Frá Bob Hennossy, fróttarítara Morgun-
blaösins á Englandi.
Nottingham Forest gerði góða
ferð til Bradford í gœrkvöldi og
vann 5:0 í deildarbikarnum.
Yfirburðir Forest voru miklir eins
og mörkin gefa til kynna. Carr,
Medgod, Clough, Mills og
Fairclough skoruðu mörkin.
Norwich tapaði heima fyrir
Everton 1:4. Barham skoraði fyrir
heimamenn, en Sheedy, Sharp,
Steven og Heath fyrir Everton.
Coventry og Liverpool gerðu
markalaust jafntefli, en leik Cam-
bridge og Tottenham var frestað.
Kvennahandbolti
-1. deild:
Stórsigur
• Ámi Indriðason, sem fókk rauða spjaldið í leiknum í gi
og Einar Jóhannesson fylgjast með.
Morgunblaðið/Þorkell
er, stöðvar hér Einar Einarsson á fyrstu mínútunum. Guðmundur Guðmundsson
Víkingar fóru
létt með Stjörnuna
Leikmenn Vfkings virðast hafa
frískast heilmikið við sigurinn
gegn St. Ottmar í Evrópukeppn-
inni á sunnudaginn, en Stjörnu-
menn hafa liklega ekki haft alveg
jafn gott af tapinu gegn Dinos
Slovan ytra. í gœrkvöldi burstuðu
nefnilega Víkingar Stjörnuna með
sjö marka mun f fyrstu deild,
25:18, og fœrast við það upp að
hlið Blikanna á toppi deildarínnar
með átta stig eftir fimm leiki.
Leikurinn var jafn framan af og það
var ekki fyrr en um tíu mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik að Víking-
ar sigur frammúr. Fram að því
hafði Gylfi Birgisson, stórskytta
Stjörnunnar, reynst þeim erfiður.
Hann skoraði 4 fyrstu mörk liðs
síns í leiknum og átta mörk alls -
ekkert þeirra úr víti.
Um miðjan fyrri hálfleik fékk
Árni Indriðason rauða spjaldið og
bjuggust þá margir við að varnar-
leikur Víkings hryndi. En Sigurður
Ragnarsson, sem tók stöðu Árna
í vörninni, var frammúrskarandi
góður og þar við bættist að Árni
fékk óáreittur að stjórna liði sínu
þar sem hann stóð aftan við vara-
mannabekkinn.
Leikurinn tók því að þróast
Víkingum í hag og smátt og smátt
náðu þeir yfirburðastöðu eftir að
hafa haft 11:9 yfir í hálfleik. Vörn
Víkings var mjög góð í leiknum og
ALOHAígolfi:
Gekk illa fyrsta
keppnisdaginn
- Frakkar léku vel og eru fyrstir
ÞAÐ gekk ekki nógu vel hjá sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur á fyrsta
degi ALOHA-mótsins í gær en
mótiö er haldið á ALOHA vellin-
um á Spáni. Sveitin lék í gær á
159 höggum og er í 12. sæti eftir
fyrstu 18 holumar.
Frakkar léku ótrúlega vel í gær
og eru í fyrsta sæti. Francois lllouz
lék þeirra best eða á 70 höggum
sem er tveimur undir pari vallar-
ins. Félagar hans léku á 74
höggum og 79 höggum en þar sem
aðeins tveir telja lék franska sveit-
in á 144 höggum, eða á pari.
Sigurður Pétursson lék best af
íslendingunum í gær en hann not-
aði 79 högg. Lék fyrri níu holurnar
á 38 höggum en þær síðari á 41
höggi. Hannes Eyvindsson og
Ragnar Ólafsson lóku báðir á 80
höggum í gær. Hannes á 43 og
37 en Ragnar á 42 og 38.
„Við erum auðvitað mjög
óhressir meö þennan fyrsta dag
en það þýðir ekkert að leggjast í
volæði. Við ætlum okkur að gera
betur á morgun og þá daga sem
eftir eru,“ sagði Björgúlfur
Lúðvíksson liösstjóri í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hann bætti því við að GR-sveit-
in væri ekki óvön því að byrja illa
á þessu móti en sækja sig síðan.
„Við lékum mjög vel daginn fyrir
keppnina er við tókum æfinga-
hring. Þá léku strákarnir á 150 en
því miður telur það víst ekki. Við
erum fjórum höggum lakari en við
stefndum að fyrir fyrsta daginn
þannig að við verðum að taka okk-
ur verulega á og það ætlum við
að gera," sagði Björgúlfur.
Frakkar eru efstir á 144 höggum
síðan koma Þjóðverjar á 149, Wa-
les á 151, Belgía á 151, England
á 153, Spánn á 154, Sviss á 155,
Danmörk á 156 og síðan Noregur,
Svíþjóð og Skotland á,158 högg-
um. ísland, Finnland og Lúxem-
borg hafa leikið á 159 höggum og
á eftir þeim koma írland, (talía,
Austurríki, Júgóslavía, Holland og
Portúgal.
um leið var sóknarleikur Stjörn-
unnar mjög slakur. Einar Jóhann-
esson, Sigurður Ragnarsson og
Hilmar Sigurgíslason voru aðal-
mennirnir í vörninni en í sókninni
lék hinn stórefnilegi Bjarki Sigurðs-
son Sigurjón Guðmundsson
Stjörnumann grátt í horninu. Hann
var bestur Víkinga í sókninni ásamt
Árna Friðleifssyni og Karli Þráins-
syni. Kristján Sigmundsson var
einnig ágætur í markinu.
Hjá Stjörnunni ríkti algjört lán-
leysi. Gylfi Birgisson var þeirra
langbestur og Hannes Leifsson lék
einnig vel fyrir liðið þó honum
gengi illa að skora. Þá var Haf-
steinn Bragason ágætur og gætti
Guðmundar Guðmundssonar
mjög vel í vörninni. En í heild var
þetta leikur sem Stjörnumenn vilja
örugglega gleyma hið fyrsta.
Dómarar voru Björn Jóhannes-
son og Sigurður Baldursson. Þeir
voru afspyrnuslakir í fyrri hálfleik
en fóru að sýna sitt rétta andlit
þegar á leið.
MÖRK VÍKINGS: Karl Þráinsson 8/3,
Árni Friöleifsson 5, Bjarki Sigurðsson 5,
Hilmar Sigurgíslason 3, Siggeir Magnús-
son 3, Guömundur Guömundsson 1.
MÖRK STJÖRNUNNAR: Gylfi Birgisson
8, Hannes Leifsson 3/2, Skúli Gunnsteins-
son 3, Páll Björgvinsson 2, Einar Einars-
son 1, Hafsteinn Bragason 1.
SUS/GA
Víkings
Víkingsstúlkurnar áttu ekki í
erfiðleikum með slakt lið Ár-
manns í 1. deild kvenna í hand-
knattleik í gærkvöldi og sigruðu
með yfirburðum, 30:16.
Víkingur tók leikinn strax í sínar
hendur og í hálfleik var staðan
14:9. Einstefnan hélt áfram í seinni
hálfleik og stúlkurnar í Ármanni
máttu þola fjórða tapiö í röö, en
þetta var annar sigur Víkings.
Mörk ÁRMANNS: Ellen Elnarsdóttir 8/3,
Margrót Hafsteinsdóttir 2, Elísabet Al-
bertsdóttir 2, Guöbjörg Ágústsdóttir 2,
Halla Grétarsdóttir 1, Bryndís Guömunds-
dóttir 1.
Mörk VÍKINGS: Eiríka Ásgrímsdóttir 8/1,
Svava Baldvinsdóttir 6/1, Sigurrós Björns-
dóttir 4, Valdfs Birgisdóttir 4, Rannveig
Þórarínsdóttir 4, Jóna Bjarnadóttir 2, Vil-
borg Baldursdóttir 1, Margrót Hannes-
dóttir 1.
Uerdingen vann
Æ
I
Frá Sigurði Björnssyni, fréttarítara Morgunblaðsins f V-Þýskalandi.
BAYER Uerdingen sigraði Köln
með þremur mörkum gegn einu
í bikarkeppninni í V-Þýskalandi í
gærkvöldi. Atli Eðvaldsson étti
mjög góðan leik þó ekki tækist
honum að skora.
Uerdingen náði forystu strax á
tíundu mínútu með marki Bierhoff.
Um miðjan fyrri hálfleik jafnaði svo
Klaus Allofs úr víti og höfðu þá lið-
in sótt á víxl og leikurinn veriö
mjög opinn og skemmtilegur.
Meðal annars bjargaði Atli á
marklínu. Á næst síðustu mínútu
hálfieiksins skoraði Klinger annað
mark Uerdingen með skalla og um
Þýski handboltinn:
Kristján tekinn
úr umferð
Frá Jóhannl Inga Gunnarssynl, fréttamannl Morgunblaöaina f V-Þýakalandl.
ÞEGAR 12 mínútur voru eftir af
leik Dortmund og Gummersbach
f Bundesligunni í handknattleik í
gærkvöldi hafði Gummersbach 6
marka forystu. Þá voru Kristján
Arason og Netzel teknir úr um-
ferð, Gummersbach skoraði ekki
fleiri mörk og leiknum endaði
með jafntefli, 14:14.
Kristján skoraði 4 mörk og virð-
ist vera að finna sig. Essen vann
Diisseidorf 20:17, Alfreð Gíslason
skoraði 4 mörk fyrir Essen, en
Páll Ólafsson lék aðallega í vörn
Dusseldorf og skoraði ekki. Önnur
úrslit: Lemgo - Hameln 24:19, SchUtt-
erwald - Milbertshofen 20:18, Schwab-
Ing - Göttingen 27:22, Grosswallstadt -
Hofweier 24:16, Handewlck - Kiel 19:19.
miðjan síðari hálfleik gerði hinn 17
ára gamli Witeczek út um leikinn
með góðu marki.
Öruggur sigur
Vals á KR
VALUR vann KR mjög sannfærandi
f 1. deild handknattleiksins f Laug-
ardalshöllinni f gærkvöldi. Leikn-
um lauk með ellefu marka mun
32:20 eftir að staðan f hálfleik
haföi verið 13:9 Val í vil.
Það var aðeins í byrjun sem KR
veitti umtalsverða mótspyrnu.
Smám saman juku Valsmenn for-
skot sitt og eftir nokkurra mínútna
leik var útséð um það hver færi
með sigur af hólmi.
MÖRK VALS: Júlíus Jónasson 9/6, Stefan
Halldórsson 7/2, Þórður Sigurösson 5,
Pálmi Jónsson 4, Jakob Slgurösson 4,
Gisli Óskarsson 1, Geir Sveinsson 1.
MÖRK KR: Konráö Ólafsson 6/2, Guð-
mundur Pálsson 4, Sverrir Sverrisson 3,
Þorsteinn Guöjónsson 2, Guðmundur Al-
bertsson 1, Páll Ólafsson 1, Peter Paulsen
1, Ólafur Lárusson 1, Leifur Dagfinsson 1.
Jafntefli
Holland og Pólland geröu marka-
laust jafntefli f Evrópukeppni
landsliða f gœrkvöldi. Leikur
Belgfu og Búlgarfu fór 1:1.
Janssen skoraði fyrir Belga
Tanev fyrir Búlgara.
en
Staðan
STAÐAN f 1. deild karla í
handknattleik er nú þessl:
UBK
Víkingur
Fram
Valur
FH
Stjaman
KA
Haukar
KR
Ármann