Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 68

Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 68
^ STERKT KORT jólab^ jólfl&)flJ Bókaverslunin ISAFOLD Austurstræti 10 ■ Sími 14527 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Nesco selur 3.800 geislaspil- ara til Bretlands íslenskt fyrirtæki, Nesco Manufacturing hf., afgreiðir í þessum mnauði fyrstu 3.800 Nesco-geislaspilarana til Laskys, sem er ein af þremur stærstu hljómtækjaversianakeðjum í Bretlandi. Er Laskys fyrsta stór- fyrirtækið utan Norðurlandanna sem gert hefur umboðssamning við Nesco og á síðasta ári náði það um 20% markaðshlutdeild Innlánsstofnanir; Lausafjár- staðan nei- kvæð um 2.800 milljónir kr. LAUSAPJÁTSTAÐA innláns- stofnana var neikvæð um 2.824 milljónir króna í lok síðasta mán- aðar og hafði versnað um rúmlega 1.000 milijónir króna frá fyrra mánuði.. Á 12 mánuðum hefur lausafjár- staða bankanna versnað um 1.161 milljón krónur, en frá ársbyijun til loka október um 816 milljónir króna, samkvæmt bráðabirgðayfir- liti Seðlabankans. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hækkuðu innlán hjá við- skiptabönkunum að meðaltali um 24%, mest hjá Alþýðubankanum, um 47,5%, en minnst hjá Útvegs- bankanum eða um 10,7%, fyrstu tíu mánuði ársins. Útlán hækkuðu að meðaltali um um 14,5%, mest hjá Alþýðubankanum en minnst hjá Útvegsbankanum. Sjá nánar: „ Lausafj árstaðan versnaði í október um 1.068 millj- ónir króna“ B1. fyrir geislaspilara í Bretlandi. í ár er gert ráð fyrir að Bretar kaupi um 175 þúsund geislaspil- ara, sem þýðir að fyrsta sending Nesco er um 2% af áætlaðri sölu á þessum markaði. Nesco hefur á undanfömum ámm verið að byggja upp fram- leiðslu- og sölustarfsemi á erlendum mörkuðum og vegnað vel á Norður- löndum. Nesco framleiðir hljóm- burðartæki, sjónvörp og myndbandstæki og notar til þess undirverktaka, aðallega í Japan. Vörumerkin Nesco og Xenon eru þau vörumerki sem fýrirtækið notar aðallega á framleiðsluna og eru bæði íslensk merki. Nesco framleið- ir einnig fyrir aðra dreifingaraðila undir þeirra merkjum, svo sem myndbandstæki fyrir Tandberg í Noregi og er Nesco nú ekki minni framleiðandi en t.d. Luxor í Svíþjóð og Salora í Finnlandi hvað varðar myndbandstæki og stærsti norræni framleiðandinn á sviði geislaspilara. Sjá nánar í viðskiptablaði Bl. Morgunblaðið/Kr. Ben. Frá síldarsöltun hjá Þorbirni hf. í Grindavík. Verið er að salta sérstaka tilraunasöltun fyrir Þýzkalandsmarkað. Mokveiði á síldinni MOKVEIÐl var á síldarmiðunum á Austfjörðum í gær og aflinn þá sá mesti á einum degi frá upp- hafi vertíðar, aUt að 3.000 lestir. Orn Traustason í veiðaeftirlitinu sagði, að aUir bátar væru með afla, ýmist á leið suður fyrir land eða biðu löndunar á Austfjörðum. í gækvöldi hafði verið saltað í um 175.000 tunnur og um 31.600 lest- ir voru komnar á land. Á þriðjudag hafði mest verið saltað á Eskifírði, 30.582 tunnur, 17.698 á Fáskrúðsfírði, 17.184 á Seyðisfírði og 16.702 í Grindavík. Hæstu ein- stöku söltunarstöðvamar voru Fiski- mjölsverksmiðja Homafjarðar með 12.375 og Pólarsíld og Pólarsær á Fáskrúðsfírði með 13.684 tunnur. „Það er allt að kafna í síld," sagði Öm Traustason í veiðaeftirlitinu í samtali við Morgunblaðið. „Það er vaðandi demantssíld inni á nánast öllum fjörðum fyrir austan og bátam- ir rétt fara frá bryggju til að fylla sig. Það er helzt að tunnuskortur dragi úr söltun enda er smávegis af sfldinni farið að fara í bræðslu, en verð fyrir hana þannig virðist vera allt að 2,70 krónur á kflóið," sagði Öm Traustason. Fjórir afíahæstu bátarnir nú eru Ágúst Guðmundsson GK með 1.359 lestir, Steinunn SF með 1.080, Björg Jónsdóttir ÞH með 1.042 og Suðurey VE með 1.002 lestir. Mesti leyfílegur afli á bát er 1.400 lestir. Kristján Thorlacius, formaður BSRB: Ottast að samninffsrétt- armáJmu sé stefnt í hættu ÞING BSRB samþykkti í gær ályktun þar sem fagnað er við- ræðum við ríkisvaldið um frumvarp til laga um samnings- rétt opinberra starfsmanna. Fól þingið stjórn Bandalagsins i samráði við formenn aðildarfé- lagana að taka endanlegar ákvarðanir um samkomulag við ríkisstjórnina um samningsrétt- armálið. Þá samþykkti þingið einróma breytingar á skipulagi Bandalagsins, þar sem reglur um aðild félaga að BSRB cru mjög rýmkaðar. Opna þær möguleika fyrir starfsmenn ríkis og bæja að skipuleggja sig í félögum hvort sem er eftir starfsgreinum Bæjarstjórn Grindavíkur: Andvíg sameiginlegri Vatnsveitu Suðurnesja Grindavík. BÆJARSTJÓRN Grindavíkur hélt aukafund síðastliðinn laug- ardag og var fundurinn samráðs- fundur bæjarfulltrúa vegna fyurirhugaðrar stofnunar Vatn- sveitu Suðurnesja og Vatns- verndunarfélags Suðurnesja. Voru bæjarfulltrúar á einu máli __a um að Grindavíkurbær ætti ekki að taka þátt í sameiginlegri Vatnsveitu Suðurnesja. Eins og fram kom í fréttum fyr- ir skömmu var samþykkt tillaga á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum að kanna möguleika á sameiningu allra vatnsveitna á "y*- Suðumesjum í eitt fyrirtæki og stofna Vatnsvemdunarfélag á Suð- umesjum. Áttu sveitar- og bæjar- stjómir að skila umsögn þar að lútandi fyrir áramót. Að sögn Jóns Gunnars Stefánssonar, bæjarstjóra Grindavíkur, voru bæjarfulltrúar einhuga um, að Grindavíkurbær afsalaði ekki af sér neinum vatns- réttindum til hinna sveitarfélag- anna þannig að þáttaka í sameiginlegri Vatnsveitu fyrir Suð- umes kemur ekki til greina af hálfu Grindvíkinga. „Á hinn bóginn voru bæjarfull- trúar sammála um að mikil þörf væri á að stofnað yrði Vatnsvemd- unarfélag Suðumesja," sagði Jón Gunnar. „Þáttaka í því félagi verð- ur greidd eftir höfðatölureglunni að helming, en hinn helmingurinn fer eftir stærð landssvæðis, sem þýðir að Grindavíkurbær þarf að greiða 31% af kostnaði félagsins. Mikil þörf er á auknum vísindaleg- um rannsóknum á ferskvatnslaginu undir Reykjanessvæðinu og ■ eins mengunarhættu sem fylgir auknum umsvifum í atvinnumálum á svæð- inu. Sú hugmynd kom upp, að setja skatt á það vatn, sem fer til notkun- ar utan Grindavíkur til að standa straum af kostnaði Grindavíkurbæj- ar vegna þáttöku í Vatnsverndunar- félagi Suðumesja," sagði Jón Gunnar að lokum. Kr. Ben. eða eftir búsetu. Yfirlýst stefna stjómar BSRB er að fá frumvarp um samningsréttar- málið samþykkt á Alþingi fyrir jólafrí þingmanna, en til þess þarf að leggja frumvarpið þar fram ekki seinna en í byrjun desember. Á þinginu voru frumvarpsdrögin mik- ið gagnrýnd, einkum fyrir þá sök að listar yfir þá sem ekki mega leggja niður vinnu ef til verkfalls kemur, lágu ekki fyrir frá viðsemj- endum nema að mjög takmörkuðu leyti. Töldu margir þingfulltrúar að erfítt væri að taka afstöðu til frum- varpsdraganna meðan óljóst væri hversu takmarkaður verkfallsrétt- urinn yrði og því var samþykkt breytingartillaga frá Þuríði Back- man um að stjórn Bandalagsins hefði samráð við formenn aðildarfé- laganna við athugun og mat á þessum listum. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, varaði mjög við því að breyt- ingartillagan yrði samþykkt. Sagðist hann óttast, að tillagan stefndi því markmiði í hættu að frumvarpið yrði tilbúið nægilega fljótt, þar sem formenn myndu þurfa að hafa samband við stjómir félaganna áður en þeir gætu lagt blessun sína yfir listana og það væri tímafrekt. Eftir að breytingartillagan hafði verið samþykkt með 76 atkvæðum gegn 35, flutti Kristján tillögu um að formenn félaganna hyrfu ekki til síns heima eftir þinglok í gær- kveldi, heldur yrðu til staðar til þess að fara yfir listana og fundur formanna aðildarfélaga BSRB yrði haldinn á sunnudaginn kemur. Var sú tillaga samþykkt einróma. „Ég hef þá trú að þetta þing verði talið í röð merkustu þinga Bandalagsins. Skipulagsbreyting- amar sem samþykktar voru hér marka þáttaskil í starfsaðferðum okkar og ég vona að sú afgreiðsla sem samningsréttarmálið fékk fái góðan endi. Ef svo verður, markar þetta þing þáttaskil í sögu Banda- lagsins," sagði Kristján meðal annars er hann sleit þinginu um kvöldmatarleytið í gærkveldi. Vodka og bjór milli þilja SMYGL fannst um borð í Lax- fossi þegar skipið kom til Reykjavíkur á mánudag. Smygl þetta var vodka og bjór. Laxfoss kom til Vestmannaeyja á sunnudag eins og fram hefur komið í fréttum, því þá vildi svo óheppilega til að skipið sigldi á bryggjuna þar. Þegar skipið kom til Reykjavíkur degi seinna fundu tollverðir 80 flöskur af vodka og 10 kassa af bjór. Varningurinn var falinn milli þilja á skrifstofu skipsins og í vélarrúmi. Átta skip- veijar hafa viðurkennt að eiga drykkjarföngin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.