Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
31
Filippseyjar;
Ráðherra vikið
úr stj órninni
— situr áfram sem sérlegur ráðgjafi forsetans
Manila; AP, Reuter.
CORAZON AQUINO, forseti Filippseyja, tilkynnti f gær að nýr ráð-
herra, Jaime Ferrer, tæki við embætti sveitastjómamálaráðherra
af Aquilino Pimentel, er sæti þó áfram f ríkisstjóminni sem sérleg-
ur ráðgjafi hennar í þjóðmálum. Búist er við að tilkynnt verði um
frekari breytingar á stjórninni á næstunni.
Pimentel, sem hefur lengi verið
í vinfengi við Aquinofjölskylduna,
sagði við fréttamenn f Manila í
gær, að sterk öfl innan hersins
hefðu haft hom í síðu hans og talið
hann of vinstrisinnaðann. Hann er
fjórði ráðherrann sem er látinn víkja
úr embætti eftir að forsetinn fór
fram á það að allir ráðherramir 25
segðu af sér 23. nóv. sl. Talið er
líklegt að Augusto Sanchez, verka-
lýðsmálaráðherra, verði næst settur
af. Forsetinn hélt í gær fund með
verkalýðsleiðtogum og sögðu
nokkrir þeirra að Aquino hefði beð-
ið þá um að benda sér á menn, er
gegnt gætu embætti verkalýðs-
málaráðherra.
Að minnsta kosti 8 manns hafa
fallið í átökum skæruliða og hers-
ins, síðan vopnahléssamningur sem
taka á gildi 10. des. var undirritað-
ur, að því er hin ríkisrekna frétta-
stofa sagði í gær. Samkvæmt
upplýsingum frá hemum féllu að
meðaltali 10 á dag í slíkum átökum
fyrir undirritun samningsins.
Þeir aðilar er tóku þátt í samn-
ingsviðræðunum fyrir hönd
kommúnista komu fram í sjónvarpi
á þriðjudag og sögðust m.a gjaman
vilja ná fram breytingum á þjóð-
félaginu, án þess að beita valdi.
Ennfremur að þeir mjmdu ekki
krefjast þess, að herstöðvum
Bandaríkjamanna á eyjunum yrði
lokað þegar í stað, enda þótt þeir
teldu veru bandarískra hermanna í
landinu vera til tjóns.
Ekkja verkalýðsleiðtogans, Rol-
ando Olalia, er ráðinn var af dögum
í síðasta mánuði fór á fund Aquino
forseta í forsetahöllinni í gær. Hún
sagði að loknum þeim fundi, að lög-
reglan væri komin á spor morðingja
manns hennar, en vildi ekki segja
hvort hermenn ættu þar hlut að
máli. Hún sagði að forsetinn hefði
lofað að aðstoða syni hennar við
að fá atvinnu.
Kennarar í Manila gerðu verkfall
í gær og féll kennsla niður í öllum
framhaldsskólum borgarinnar og
tveimur gmnnskólum, þannig að
94.000 nemendur fengu frí. 1.500
kennarar söfnuðust saman við ráð-
hús borgarinnar til að vekja athygli
á kröfum sínum. Þeir segjast ekki
he§a kennslu aftur fyrr en borgar-
yfírvöld standi við gefin loforð um
ýmsar aukagreiðslur þeim til handa.
Banamenn Indiru
Gandhi;
Dauðadóm-
amir vom
staðfestir
Nýju Delhi, AP, Reuter.
D AUÐ ADÓM AR yfir þremur sik-
hum, sem árið 1084 myrtu Indiru
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, voru staðfestir í gær fyrir
dómstóli í Nýju Delhi. Verða
mennirnir hengdir innan 90 daga
nema máli þeirra verði áfrýjað
til hæstaréttar.
Sakbomingamir, Satwant Singh,
sem réð Indiru Gandhi bana, og
vitorðsmenn hans, Balbir Singh og
Kehar Singh, voru ekki viðstaddir
dómsuppkvaðninguna en Qórði
samsærismaðurinn, Beant Singh,
féll fyrir kúlum öryggisvarða Ind-
iru.
Málareksturinn gegn mönnunum
hefur verið nokkuð umdeildur og
Rajiv Gandhi, sonur Indira og eftir-
maður í embætti, hefur krafist þess
af þinginu, að skýrsla um rannsókn-
ina verði ekki birt opinberlega.
Stjómarandstæðingar á þingi krefl-
ast þess hins vegar, að hún verði
birt og segja, að stjómin sé að reyna
að fela, að samsærið hafi verið
miklu víðtækara en af er látið. Þá
er það haft eftir ónafngriendum
mönnum, að komið hafi í ljós við
rannsóknina, að öryggisvörslunni
um Indira hafi verið stórlega áfátt.
Nígería:
Gulusótt breiðist út
- bólusetning hafin
Lagos, Nigerfu; Reuter.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Nígeríu, Koye Ransome-Kuti, stað-
festi á fréttamannafundi í höfuðborginni Lagos í gær, að gulusótt
hefði borist til fjögurra fylkja landsins, en sagði enga ástæðu til
ótta og að læknar ynnu nú að þvi að einangra sýkt svæði.
Hann sagði að 10 milljónir
skammta af bóluefni væra til í
landinu eða á leið til þess. Ran-
some-Kuti hélt því fram, að
gulusóttin hefði ekki borist til borg-
anna enn og sagðist ekki geta
staðfest tölur, er Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin, WHO, hefur birt
þess efnis, að 470 þorpsbúar hafi
þegar látist af völdum gulu.
Talið er að gulan hafi komið upp
í Benuefylki og breiðst út þaðan
til nálægra fylkja. Ekki era menn
sammála hvenær sóttin kom upp
og sagði ráðherrann nú, að álitið
væri að fyrstu tilfellin hefðu verið
skráð í september, en ráðuneyti
sitt hefði ekki fengið að vita um
málið fyrr en 11. nóv. viku eftir
að fréttastofufregnir um 100 látna
höfðu borist til höfuðborgarinnar.
Læknafélag Nigeríu hefur sakað
stjómvöld um að bregðast ekki rétt
við. Heilbrigðisráðherrann lagði
áherslu á að fylkin bæra sjálf
ábyrgð á aðgerðum gegn farsótt-
inni, en lofaði stuðningi ríkisstjóm-
arinnar. í dag er boðaður fundur
fulltrúa fylkjanna fjögurra sem
gulusóttin hefði breiðst út í og
nágrannaríkjanna fimm, til þess
að samræma aðgerðir. Bamahjálp
Sameinuðu þjóðanna, WHO og
ríkisstjóm landsins hafa lagt fram
fé til kaupa á bóluefni og verður
þegar hafin bólusetningarherferð á
sýktu svæðunum. Ransome-Kuti
ráðlagði löndum sínum að ferðast
ekki til þessara svæða og sagði að
erlendum ferðamönnum er ferðast
þyrftu þangað, yrði séð fyrir bólu-
setningu á flugvöllum innanlands.