Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
Fiskmarkaðarnir í Bretlandi og Þýzkalandi;
Islenzk skip seldu fyrir
196 milljónir í nóvember
Gámasölur í Bretlandi að verðmæti 159 milljónir
ÍSLENZK fiskiskip seldu í
síðasta mánuði um 3.460 lestir
af ferskum fiski í Bretlandi og
Þýzkalandi fyrir samtals um 196
milljónir króna. Á sama tíma
voru seldar 2.650 lestir úr gám-
um í Bretlandi fyrir samtals 159
milljónir króna. Upplýsingar
vantar um sölu fisks í gámum til
Erindi en ekki grein
í gær var birt hér i blaðinu,
erindi sem Jónas H. Haralz
bankastjóri Landsbanka íslands
flutti í byrjun síðasta mánaðar á
ráðstefnu Verzlunarráðs íslands
um fjárfestingu og erlent sam-
starf. Vegna mistaka var ekki
greint frá því að hér var um
erindi að ræða, en ekki grein,
eins og skilja mátti af kynningu.
Á þessu er beðist velvirðingar.
annarra landa en Bretlands, en
samtals nemur fyrr greind sala
256 milljónum króna.
í nóvembermánuði voru samtals
seldar 2.650 lestir úr gámum að
verðmæti 159,2 milljónir króna.
Mest af því var þorskur, 1.811 lest-
ir, 332 lestir voru af ýsu, 39 af
ufsa, 80 af karfa, 200 af kola og
187 af öðrum tegundum. Meðalverð
fyrir þorskinn var 56,63 krónur á
kíló, 69,77 fyrir ýsu, 36,45 fyrir
ufsa, 40,83 fyrir karfa, 71,81 fyrir
kola og 76,40 krónur fengust að
meðaltali fyrir aðrar tegundir.
Skipin lönduðu samtals 1.516
lestum í Bretlandi að verðmæti
95,4 milljónir króna. Alls lönduðu
14 skip afla sínum í þessum mán-
uði í Hull og Grimsby og var
meðalverð í flestum tilfellum hátt.
Hæst meðalverð fyrir aflann fékk
Kambaröst SU, 73,78 krónur á
hvert kíló. Þrjú önnur skip náðu
meðalverði yfir 70 krónur, Hólma-
nes SU, Sunnutindur SU og
Krossanes SU. Samtals varð meðal-
verð 62,92. Meðalverð fyrir þorsk
var 63,23, ýsu 70,31, 40,20 fyrir
ufsa, 42,66 fyrir karfa, 65,88 fyrir
kola og 61,88 að meðaltali fyrir
aðrar tegundir.
íslenzk skip lönduðu alls 13 sinn-
um í Þýzkalandi í nóvember,
samtals 1.942 lestum að verðmæti
101,5 milljónir króna. Langmest af
aflanum var karfi eða 1.011 lestir.
Meðalverð fyrir einstaka farma var
misjafnt eða frá 39 krónum á kíló
upp í 66 krónur. Hæst meðalverð
fékk Engey RE, 65,93 krónur og
næsthæst meðalverð fékk Ýmir hf,
60,96. Meðalverð fyrir þorsk var
60,76, ýsu 56,85, ufsa 50,01, karfa
52,07 og aðrar tegundir 52,60 að
meðaltali.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 200 kílómetra suður af Hornafirði en
viðáttumikil 960 millibara djúp lægð sem þokast austnorðaustur
en 1015 millibara hæð er yfir norðaustur-Grænlandi. Svalt verður
áfram.
SPÁ: í dag veröur áfram noröaustanátt á landinu en þó mun hæg-
ari en í gær. Él verða um austan- og noröanvert landið en búast
má við aö það létti til suðvestanlands. Hiti verður við frostmark
með suöur- og austurströndinni, en -1 til -4 stiga frost annars
staöar á landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Fremur hæg breytileg vindátt og él víða um land,
einkum þó á miöum og annnesjum. Frost verður -3 til -6 stig á
norðanverðu landinu en -1 til -3 stig fyrir sunnan.
LAUGARDAGUR: Austan- og norðaustanátt og fremur kalt. Þurrt
sumstaðar vestanlands en annars él.
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r / r
r r r / Rigning
r r r
* / *
/ * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastlg:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
== Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
■f m r
w r
w W' m
MEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri -2 snjókoma
Reykjavik -1 skýjaó
Bergen 9 rigning
Helsinki -2 alskýjað
Jan Mayen -10 skýjað
Kaupmannah. 10 alskýjað
Narssarssuaq -7 skýjað
-Nuuk -6 snjókoma
Osló 2 þoka
Stokkhólmur 4 rignlng
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 10 mistur
Aþena 16 helðskýjað
Barcelona 15 mlstur
Berifn 10 léttskýjað
Chlcago 2 alskýjað
Glasgow 10 rlgnlng
Feneyjar 10 hálfskýjað
Frankfurt 5 súld
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas 21 léttskýjað
London 12 skýjað
Los Angeles 12 heiðsklrt
Luxemborg 1 þoka
Madríd 11 léttskýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Miami 21 skýjað
Montreal 1 ' rjgning
Nice 14 heiðskfrt
NewYork 14 rigning
París 6 heiðskirt
Róm 13 þokumóða
Vfn vantar
Washington 9 skýjað
Winnipeg -11 skafrenn.
Frá löndun á fiskmarkaði i Englandi
Utgerðarfélag Skagfirðinga:
Auka verður tekjur
eða hlutafé til að
tryggja reksturinn
BOÐAÐ hefur verið til hluthafafundar í Útgerðarfélagi Skagfirð-
inga þann 8. desember næstkomandi. Fyrir fundinum liggur að taka
ákvörðim um fyrirkomulag rekstrar í nánustu framtíð. Eins og
málum er háttað i dag verður félagið ekki rekið til lengdar án veru-
legs taps nema hlutafé verði aukið. Ástæða erfiðrar rekstrarstöðu
Útgerðarfélagsins eru meðal annars óvænt vélarskipti f togaranum
Skapta, sem bræddi úr sér á þes
Útgerðarfélag Skagfirðinga á og
rekur þtjá togara, Hegranes,
Skapta og Drangey. Skipt var um
vél í Skapta í Busumer Werft í
Þýzkalandi og þar voru ennfremur
gerðar endurbætur á Drangeynni.
Vinna við bæði skipin dróst veru-
lega á langinn Útgerðarfélaginu til
talsverðs óhagræðis.
Félagið er í eigu Sauðárkróks-
bæjar, frystihúsanna við Skaga-
§örð, Hofósshrepps og nærliggjandi
hreppa og Kaupfélags Skagfirð-
inga. Sá háttur hefur verið hafður
i án.
á útgerðinni, að skipin hafa landað
öllum afla sínum heima. Það er hins
vegar ekki talið skila nægum hagn-
aði til að standa undir rekstrinum,
meðal annars vegna óvæntra út-
gjalda sem fólust í vélarskiptunum
í Skapta. Því mun það hlutverk
hlutahafafundarins að ákveða hvort
hlutafé verði aukið meira en aðal-
fundur hefur samþykkt eða rekstr-
inum verði breytt þannig, að
frysting um borð í Drangey verði
aukin og hvort farið verður út í
sölu á ferskum fiski.
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Yerkfall boðað
á kaupskipum
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur boðað til verkfalls hjá undir-
mönnum á kaupskipum skráðum i umdæmi félagsins frá og með 5.
janúar næstkomandi. Félagið fer fram á að lágmarkslaun háseta
verði um 27.000 krónur á mánuði og álag vegna yfirvinnu verði 80%
í stað 60%.
Síðastliðið vor fóru undirmenn á
kaupskipum á félagssvæði SR í
verkfall, en það var afnumið með
bráðabirgðalögum. Lágmarkslaun
þeirra þá voru 20.178 krónur á
mánuði og kröfðust þeir 27.000
króna lágmarkslauna. Kjaradómur
dæmdi í málinu á þá leið að undir-
mennimir skyldu fá sömu hækkanir
og samið var um á milli ASLÍ og
VSÍ.
Guðmundur Hallvarðsson, form-
aður Sjómannafélags Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að lítið hefði þokazt í samkomulag-
sátt. Tveir árangurslausir fundir
hefðu verið haldnir nýlega. Þá hefðu
útgerðarmenn sent um borð í skipin
hugmyndir sínar um kjarasamning,
sem hann teldi ekki koma til greina
sem grundvöll viðræðna. Loks gat
hann þess að ein útgerð á svæðinu
hefði flutt lögskráningu áhafna
sinna upp á Akranes, að því er virt-
ist til að komast hjá samningum
við Sjómannafélag Reykjavíkur.
Ibúa og hagsmunasamtök í miðbænum:
Afgreiðsla skipulags-
tillögnnnar verði frestað
Undir áskoranina skrifa Anna
Kristjánsdóttir, formaður íbúasam-
taka Vesturbæjar, Guðlaugur
Bergmann, formaður Gamla mið-
bæjarins, Guðmundur Gunnarsson,
formaður íbúasamtaka Skugga-
hverfis, Hildur Kjartansdóttir,
formaður íbúasamtaka Þingholta,
Hjörleifur Stefánsson, formaður
Torfusamtakanna, Hólmfríður R.
Ámadóttir, í stjóm íbúasamtaka
Vesturbæjar syðri og_ Ragnheiður
Þorláksdóttir í stjóm íbúasamtaka
Gijótaþorps.
STJÓRNIR sjö íbúa- og hags-
munasamtaka í Miðbæjarkvos-
inni eða við hana fara fram á
það við borgarstjórn Reykjavík-
ur að frestað verði að afgreiða
skipulagstillögu fyrir miðbæinn,
kvosina, sem tekin verður til
umræðu á borgarstjórnarfundi í
dag.
Farið er fram á að tillagan verði
tekin til endurskoðunar með hlið-
sjón af þeirri gagnrýni sem fram
hefur komið og með tilliti til
breyttra forsendna.