Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
19
og góð skopteikning. Nú hefur Sig-
mund úr miklu að moða. Frægir
kappar þinguðu í návist íslenzkra
drauga og heimsbyggðin beið í of-
væni, rétt eins og heimamenn um
allt land bíða eftir nýjum kosning-
um, sem ekki eru langt undan.
Bankar hrynja og hafskip sökkva,
íjölmiðlarnir flæða yfir, og ég veit
ekki hvað, en allt kemur þetta við
sögu í þeim 126 myndum, sem sko-
tið er á loft í Stjömustríði Sig-
munds. Þessi útgáfa í ár er mjög
lík þeim fyrri, en viðfangsefni Sig-
munds eru, eins og gefur að skilja,
síbreytileg og þróast í takt við
þjóðlífið ár frá ári. Hinn persónu-
legi stfll listamannsins heldur sér
og þar er allt með sínu lagi.
Enn einu sinni vil ég þakka þess-
um sérstæða snillingi fyrir framlag
hans til geðheilsu landsmanna og
fyrir það, hvemig hann tuktar þá
til, sem við stjómvölinn fikta. Menn
sem Sigmund em nauðsynlegir,
óborganlegir, í hvaða þjóðfélagi
sem er.
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Ragnar Lár
Myndiist
Valtýr Pétursson
Sú var tíðin, að allir þeir, sem eitt-
hvað til þekktu á myndlistarsviðinu,
könnuðust við teiknarann Ragnar
Lár. Hann var sem sé mikilvirkur á
sínu sviði og kom fólki oft í gott skap
með teikningum sínum. Ragnar hélt
tvær sýningar á málverkum og grafík
hér í borg fyrir ekki alls löngu, jafn-
framt því sem hann stundaði auglýs-
ingateiknun norður á Akureyri, en
það var hans brauðstrit. Ragnar Lár
fór í Handíða- og myndlistarskóla
íslands og síðan komst hann í kynni
við hinn hlédræga málara, Gunnar
Gunnarsson yngri, og mun vera sá
eini af núlifandi og starfandi mynd-
listarmönnum, sem naut tilsagnar
Gunnars.
Ragnar Lár er liðtækur málari, það
kemur skýrt fram á þeirri sýningu,
sem hann hefur komið fyrir í MIR-
salnum við Vatnsstíg 10, en ég man
ekki eftir að nokkur íslenzkur mynd-
listarmaður hafi sýnt þar verk sín
áður. Þama eru gvassmyndir, teikn-
ingar, vatnslitamyndir, klippimyndir,
grafík og olíumáiverk. Af þessu má
sjá, að Ragnar Lár leggur gjörva
hönd á margt, og auðvitað verður
árangur nokkuð misjafn. Að mínu
áliti nær Ragnar beztum tökum á
viðfangsefni sínu í sumum af vatns-
litamyndunum, ennfremur sýnast
olíulitimir falla vel að þeim stíl, sem
Ragnar virðist hafa þróað með sér
upp á síðkastið. Þama er einnig nokk-
uð af eldri grafík, og er það ekki eins
forvitnileg framleiðsla og sumt það,
sem Ragnar hefur fengizt við að und-
anfömu. Sem sagt, ágæt myndlist á
köflum, en svo annað sem ekki er
eins gott, en það má auðvitað segja
um alla listamenn. Ég festi hugann
einkum og sér í lagi við tvær litlar
vatnslitamyndir, sem mér fundust
tærar perlur, sem eins og glóðu í
þessu umhverfi.
Ragnar Lár er nú aftur fluttur suð-
ur yfír heiðar og kominn í sitt
upprunalega umhverfi. Þessi búsetu-
flutningur ætti að hafa áhrif á eins
viðkvæman málara og Ragnar er. Það
verður því fórvitnilegt að sjá, hverju
fram vindur hjá honum á næstunni,
en þessi verk hans í MÍR-salnum em
vel þess virði að eftir sé tekið. Ég vil
færa Ragnari Lár beztu þakkir fyrir
skemmtilega stund á sýningu hans.
Form o g tjáning
í hinu litla Galleríi Hallgerði stend-
ur nú yfir afar geðþekk sýning á
klippimyndum eftir Valgerði Érlends-
dóttur, en hún er búsett norður á
Siglufirði, og mætti því segja að hún
væri komin í kaupstað með fram-
leiðslu sína, innlegg af ágætri gerð.
Valgerður mun hafa tekið þátt í
nokkmm samsýningum, en ef ég veit
rétt, hefur hún aðallega stundað
textíllist og meðal annars lagt stund
á þá iðju í sjálfri Prag.
Allt það, sem Valgerður sýnir að
sinni, er unnið á þessu ári, og hún
sýnir eingöngu klippimyndir i Gallerí
Hallgerði. Þessi verk láta ekki mikið
yfir sér, en era afar vönduð og nostur-
lega unnin. Þama er hvergi farið yfir
strikið, allt er hnitmiðað, hvort heldur
er í litameðferð eða notkun forms. A
stundum finnst manni vandvirknin
jafnvel jaðra við hreint nostur, en ef
betur er að gáð, kemur í ljós að iista-
konan notfærir sér þá tækni, sem hún
ræður yfir, til að tjá fastmótaða
myndbyggingu, sem er til orðin af
hnitmiðuðum vinnubrögðum, sem eins
og vaxa fram úr hugarheimi hennar.
Það em 28 verk á þessari sýningu,
og fara þau ágætlega í hinum þrönga
sýningarsal, sem vart er stærri um
sig en meðal forstofa í nýbyggingum
þeirra múmðu hér i sveit. Þrátt fyrir
smæðina er þessi sýningarstaður
ágætur, ef vel er með farið og ekki
hrúgað þar inn, eins og um austur-
lenskan basar væri að ræða. Það er
viss menningarblær yfir þessari sýn-
ingu Valgerðar, sem ætti að verða
henni til mikils frama. Þetta em að
vísu ekki nein átakaverk í nútima
skilningi, en þau bera með sér þokka
og em vel gerð og tjá skemmtilega
lífssýn, sem vemlega er þörf fyrir á
seinustu og stystu dögum ársins.
Valgerður tileinkar syni sinum —
tíu ára — sýningu þessa, en hann
svaraði, er móðir hans spurði: „Hvað
er mynd?“ með titli sýningar Valgerð-
ar Erlendsdóttun „Form og tjáning."
. ..JOLATILBOÐ
FJOLSKYLDUNNAR
FRA PANASONIC
Nú, þegar fjölskyldan slær saman í
eina veglega jólagjöf, ermikið atriði að
vanda valið. Á tímum gylliboða er
nauðsynlegt að staldra við og hugsa
sig vel um, því nóg er framboðið og
ekki vantar hástemmdu lýsingarorðin.
Við viljum þess vegna benda ykkur á
Panasonic sem vænlegan kost,
sérstaklega þegar það er haft í huga,
að Panasonic myndbandstækin fara
sigurför um heiminn og eru í dag
lang-mest keyptu tækin. Einnig má
minna á, að sem stærsti myndbands-
tækjaframleiðandi heims, eyða þeir
margfalt meiri peningum í rannsóknir
og tilraunir en nokkur annar framleið-
andi. Það þarf því engum að koma á
óvart að samkvæmt umfangsmestu
gæðakönnun sem framkvæmd hefur
verið hjá neytendasamtökum í sjö
V-Evrópulöndum varð niðurstaðan sú,
að myndbandstækin frá Panasonic
biluðu minnst og entust best allra
tækja. Þessar staðreyndir segja meira
en hástemmt auglýsingaskrum.
Jólatilboð á NV-G7 frá
37.850,-
m s :m
WJAPIS
BRAUTARHOLT 7 SÍMI 27133