Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 57
57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
Larry Hagman:
„Ég gæti aldrei búið í Dallas!“
Bandaríski leikarinn Larry
Hagman er ekki par hrifínn
af borginni Dallas, sem hann þó
er samofínn við í hugum flestra
sjónvarpsáhorfanda.
„Það eru allir vopnaðir í Dall-
as. Hver einasta kona sem ég
þekki þar er með byssu í töskunni
og flestir karlamir geyma byssu
í bflnum“, sagði Hagman fyrir
skömmu í bresku útvarpsviðtali
og hann bætti við að í saman-
burði við hina raunverulegu
olíufursta í Dallas væri J.R. gunga
ein.
Hagman sagði að ofbeldi væri
að færast í aukana og að ekki
batnaði ástandið meðan sífellt
fleiri ólöglegir innflytjendur
flykktust til borgarinnar, flestir
með óskráð skotvopn — jafnvel
vélbyssur. „Fólk gengur með vopn
undir því yfírskyni að þau séu
aðeins til öryggis, en síðan fær
það sér í glas, fer að rífast við
einhvem og áður en nokkur fær
rönd við reist er einhver búinn að
draga upp Uzi og skýtur á allt
sem fyrir er, því hann vill ekki
skilja eftir vitni. Þetta em ekki
ýkjur, því nákvæmlega þetta hef-
ur gerst. Ekki bætir úr skák að
skipulögð glæpastarfsemi hefur
aukist og ofbeldið með henni."
Þegar Hagman var spurður
hvort hann gæti búið í Dallas svar
hann: „Góður Guð, nei! Ég vinn
bara þar.“ Hann er heldur ekki
hrifínn af bænum Plano þar sem
Southfork-búgarðurinn er. „Ég
gæti ekki búið á stað eins og
Southfork. Þetta er leiðindastaður
þar sem ekkert gerist.
Hagman sem dvelst í Dallas tvo
mánuði á ári sagði að í fyrstu
hefði andað köldu milli borgarbúa
og sjónvarpsfólks. „En eftir að
þátturinn varð jafnvinsæll og raun
ber vitni, breyttist þetta og nú er
manni fagnað hvar sem maður
fer. Það er næstum því eins og
maður sé frændi allra“.
„Nú orðið em gjaman haldnar
grillveislur og hanstélssamkvæmi
og fólk virðist hafa gaman af því
að umgangast okkur, eins og við
væmm Ewing-fjölskyldan.“
Leikarinn bætti því við að kon-
umar í Dallas væm ekki ósvipaðar
þeim, sem lýst væri í þáttunum.
„Mér finnst konur Dallas-borgar
alveg yndislegar. Þær em alltaf
óaðfinnanlegar til fara og það er
ekki óvanalegt að sjá konur bera
skartgripi fyrir milljónir Banda-
ríkjadala á betri kaffihúsum í
miðri viku. Þær tala mjög blíðlega
hver við aðra, en oftar en ekki
em egghvassar athugasemdir í
hverri setningu. — Dallas er at-
hyglisverð borg, en hún á sér sínar
skuggahliðar og þær er ekki endi-
lega að fínna í skuggahverfun-
um.“
Brúðhjónin borin í burðarstólum
hringja bjöllum og
kínverja (ekki mennska)
Þegar komið er inn í rauðan sal-
inn gnævir rittáknið „Tvöfold sæla“
yfír öllu, en íslendingar kannast
e.t.v. við það af eldspýtustokkunum
„Double Happiness".
Þar votta brúðhjónin himni og
jörð lotningu eisn og siður er og
hneigja sig svo hvort fyrir öðm.
Brúðguminn lyftir slæðunni frá andliti brúðarinnar.
Sjálf giftingin fer fram að því
loknu, þegar brúðguminn lyftir
slæðu frá andliti brúðarinnar.
Að sögn ferðaskrifstofunnar hef-
ur þessi 2.000 ára gamla athöfn
notið mikilla vinsælda meðal ferða-
manna, þar sem athöfnin „helgi
hjónabandið og geri það jafn end-
ingargott og Kínamúrinn".
HUGSAÐU UM ÖLL DÝRMÆTU AUGNABLIKIN
í/efðu cfemaní
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
JQ
«0
©
3
£
(0
XX
(0
£
a>
>_
n
3
>
I
(0
‘55
o>
>>
«o
(0
3
tr
Ui
LÆKKAÐ VERÐ
Afsl.
Málning ......... 15%
Penslar, bakkar,
rúllusett ........ 20%
Veggfóður og veggdúkur. 40%
Veggkorkur ....... 40%
Veggdúkur somvyl . 50%
LÆKKAÐVERÐ
til hagræðis fyrir þá sem eru að
BYGGJA - BREYTA EÐA BÆTA
Líttu við í LITAVERI því það hefur
ávallt borgað sig.
m
3
c
Q>
o>
cr
*<
<Q
(O
I
<
©
*
©
TJ
©
c
© '
0«
a-
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
--..W
HWdý BARNAFATNAÐUR
Nýkomnar úlpur og leikfimibolirnir vin-
sælu. Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Póstsendum.
Leikfimibolir stærðir
6-16.
Verð kr. 720—930.
Bílastæði á bak við hús-
ið. Innakstur frá Skúla-
götu.
Úlpur stærðir 6—16.
Verð kr. 3.100—3.400.
ALSPORT
Hverfisgötu 105.
Sími 23444.