Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
4
46
Alþingishátíðarkvik-
mynd Lofts Guðmunds-
sonar endurgerð
KVIKMYND Lofts Guðmunds-
sonar sem tekin var á Alþingis-
hátíðinni árið 1930 hefur verið
endurgerð og tónsett. Af því til-
efni efndu forsetar Alþingis til
kvikmyndasýningar í Tónabíói
sl. laugardag. Aukamynd á sýn-
ingunni var stutt mynd sem tekin
var af för íslenskra þingmanna
til Kaupmannahafnar árið 1906.
Þessi mynd var sýnd á fyrstu
bíósýningunni á íslandi, í
Reykjavík Biograftheater eða
Gamla Bíói, í Fjalakettinum 2.
nóvember það ár.
í ávarpi á sýningunni í Tónabíó
sagði Þorvaldur Garðar Kristjáns-
Sjöjólalög
ÚT er komin ný hljómplata,
„Jólasnjór“ með átta jólalögum
og eru sjö þeirra eftir G.R. Lúð-
víksson með texta eftir Sigur-
björgu Axelsdóttur.
A plötunni leikur Om Hafsteins-
son trompetleikari „Heims um ból“
tíg Freyr Friðriksson 10 ára Vest-
mannaeyingur syngur sönginn um
kynni sín af jólasveininum.
Útgefandi plötunnar er hljóm-
sveitin GRL en hljómplatan er
framleidd í fjórum litum, hvitum,
rauðum, bláum og svörtum.
(Úr fréttatilkynningu)
son, forseti sameinaðs Alþingis, að
kvikmynd Lofts hefði verið talin
glötuð í fjörutíu ár, þegar hún kom
óvænt í leitimar í Hveragerði um
áramótin 1982-83. Alþingi tók að
sér að kosta viðgerð á myndinni.
Hún var afrituð og skilti með skýr-
ingartexta sem birtast á milli atriða
voru tekin upp á nýtt. Einnig var
Jón Þórarinsson, tónskáld, fenginn
til að velja tónlist við myndina og
semja upphafs- og lokastef. Jónas
Þórir Þórisson lék tónlistina inn á
myndina á bíóorgel, með hliðsjón
af þeim tíðaranda sem var við líði
á tímum þöglu myndanna. Umsjón
með lagfæringu myndarinnar höfðu
Erlendur Sveinsson, og Ásdís Egils-
dóttir sem leiðrétti texta.
Þingmannaförin er fimm
mínútna löng þögul kvikmynd, án
skýringartexta. Þetta er að sögn
Þorvaldar Garðars elsta kvikmynd
sem varðveist hefur af íslendingum.
Hana tók konunglegur danskur
hirðljósmyndari, Peter Elfelt, sem
var brautryðjandi í danskri kvik-
myndagerð. í upphafsatriði
myndarinnar sést farþegaskipið
Botnía leggja að bryggju í Kaup-
mannahöfn. Þrátíu og þrír Alþingis-
menn ferðuðust með skipinu en
tveir þingmenn voru þá fyrir í Kaup-
mannahöfn. Sýnd er heimsókn
þeirra í háskólann og Tívolí. Einnig
sjást þingmennimir aka í vagnalest
með Friðriki 8. Danakonungi og
fleiri þekktum persónum.
Það var mikill handagangur í öskjunni á basarnum og margt fólk sem dreif að. Morgunbiaðið/Jón Sig.
Blönduós:
Eldri borgarar halda basar
Blönduósi.
ELDRI borgarar á Blönduósi
voru með basar í Hnitbjörgum
sl. laugardag. Til sölu var alls-
kyns varningur sem eldri
borgarar hafa gert i handa-
vinnutímum i vetur.
Það var mikill handagangur í
öskjunni á basamum. Fjöldi fólks
dreif að úr héraðinu til að skoða
og kaupa. Þegar upp var staðið
höfðu komið inn um 100 þús. kr.
sem renna í ferðasjóð eldri borg-
ara. Þessi ferðasjóður kemur sér
ákaflega vel því eldri borgarar
bregða sér árlega í heimsóknir til
jafnaldra sinna í öðmm hémðum.
Fyrirhugað er að vera með sölu
á handavinnumunum tvisvar í
viku fram að jólum eða þá daga
sem handavinnutímamir em.
Mjög góð þátttaka hefur verið í
föndumámskeiðunum og er að
Allskyns varoingur var til sölu og þegar upp var staðið voru um
100 þús. kr. komnar í ferðasjóð eldri borgara.
jafnaði 30 manns sem taka þátt gamla fólkið en að öðm leyti ann-
í þeim. ast Elísabet Sigurgeirsdóttir og
Kristín Húnfjörð var með Agnes Jóhannsdóttir fondumám-
keramiknámskeið í haust fyrir skeiðin. J5„ gig