Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
Hylli lýðsins
Ingvi Hrafn tók óstinnt upp þá
ákvörðun Útvarpsráðs að færa
fréttatíma sjónvarps enn á ný aftur
til kl. 20.00 og deildi hart við Ingu
Jónu formann Utvarpsráðs en enginn
má við ríkisvaldinu og nú virðist mér
sem silfurfatið hafi færst til Stöðvar
2. Lítum nánar á dagskrána. í fyrra-
kveld kl. 20.00 efndi Páll Magnússon
fréttastjóri Stöðvar 2 til Návígis í sjón-
varpssal þar sem þau Jóhanna Sigurð-
ardóttir alþingismaður og Siguijón
Benediktsson tannlæknir tókust á um
laun tannlækna, tryggingagreiðslur,
skattaskil og ábyrgð alþingismanna.
Ég hygg að mörgum sjónvarpsáhorf-
andanum hafi farið eins og undirrituð-
um er horfði á fréttir Stöðvar 2
klukkan 7:30 mitt í öllu bamagarginu
og síðan á Návígið klukkan 20.00.
Ég er að vísu enn á þeirri skoðun að
heppilegasti fréttatíminn sé klukkan
átta þvi þá er heimilið komið í sæmi-
lega ró en þegar tekist er á um
kosningabombur á borð við tann-
læknamálið er svo sem hægt að kíkja
á fréttatímann klukkan hálf átta með
öðru auganu. Og svo má ekki gleyma
því að það eru fleiri feitir bitar er
kjamsa má á í Návígi en blessaðir
tannlæknamir; hvað um apótekarana
er fá 10.000 kall fyrir að afhenda eitt
pilluglas yfir búðarborðið (sjaldgæft
krabbameinslyf) og hvað um Moggann
í gær, þar eru athyglisverðar greinar
er vekja upp fjölmargar spumingar
er eiga fullt erindi í Návígi; þannig
ritar Sigþór Magnússon námsstjóri
grein á blaðsíðu 42 er hann nefiiir:
Þurfa einkaskólar á rangtúlkun að
halda, en í grein þessari fullyrðir höf-
undur að samkvæmt strangri laga-
túlkun finnist vart einkaskóli á íslandi
og í bráðsnjallri grein Júlíusar Sólnes
prófessors er birtist á blaðsíðu 24 seg-
ir svo um virðisaukaskattinn: Nú mun
verið að innrétta heila hæð hjá ríkis-
skattstjóra fyrír allt það starfslið.sem
á að fást við VASK-inn (kostuleg nafn-
gift hjá Júlíusi). Gert er ráð fyrir 40
nýjum stöðugildum hjá ríkinu vegna
þessa. Þá má búast við stóraukinni
vinnu hjá öllum fyrirtækjum vegna
útreikninga á skattinum og skila
vegna hans. Reynsla t.d. Dana af
þessu er þungbær. Þar er algengt.að
fyrirtæki þurfi sérstakan starfsmann
til þess eins að fást við virðisauka-
skattinn. Danskir kaupsýslumenn.sem
ég hef spurt um virðisaukaskattinn,
Ijúka allir upp einum rómi, f guðanna
bænum takið ekki upp VASK. Svo
fámenn þjóð hefur ekkert við slíkt að
gera.
Ég gæti svo sem vitnað í fleiri at-
hyglisverðar greinar í Miðvikudags-
mogganum er hver um sig drægi þann
er hér ritar frá tuttugufréttum ríkis-
sjónvarpsins til Návígis Stöðvar tvö
en má ekki ljóst vera Ingvi Hrafti að
þú verður að efna til návígis í sjón-
varpssal klukkan 18:30? Samkeppnin
er hafin af fullum þunga og þá sigrar
sá sem bregst skjótar við kröfum
markaðarins fremur en pólitíkusanna
í þar til skipuðu kommisararáði.
LýÖhyllin
Ég má til með að minnast á þátt
Ragnheiðar Davíðsdóttur í gegnum
tíðina er hljómar á þriðjudögum á
rás 2. í þætti þessum rekur Ragn-
heiður með sérstæðum hætti sögu
íslenskrar dægurtónlistar, þannig
lék hún í síðasta þætti lög Bubba
Morthens allt frá ísbjamarblúsinum
til Serbans. Þótti mér einkar fróð-
legt að skoða feril Bubba sem að
sjálfsögðu var mættur á staðinn
eldhress að vanda. Er leið að lokum
spjallsins leit Bubbi fram á veginn
til listsigra framtíðar. Ekki er nú
allt sem sýnist í henni veröld og
er Bubbi lýsti glæstum framtíðar-
vonunum hvarflaði hugurinn til
notalegs spjalls er Hemmi Gunn
átti við Sigurð Sigurðsson fyrrum
íþróttafréttamann á Bylgjunni
síðastliðinn sunnudag. Sigurður
lýsti því er hann hætti frétta-
mennsku: Menn, sem höfðu hringt
þrisvar á dag og hrópað elsku vin-
ur, hættu að hringja. Skrýtin
reynsla að deyja svona í lifanda lífi.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Rás 2:
Gyðinga-
stúlkan
frá
Brooklyn
■■i^H í þætti Helga
Q Q 00 Más Barðasonar
{ kvöld mun
hann fjalla um bandarísku
söngkonuna Barböru
Streisand. Hann velur
nokkur gullkom af hljóm-
plötum hennar í gegn um
árin, en hún hóf sig upp
úr sárri fátækt og varð ein
skærasta stjama Banda-
ríkjanna á leiksviði, í
kvikmyndum og söng.
Barbra Streisand hefur
tvívegis hlotið Óskarsverð-
laun fyrir söng sinn og leik,
en plötur hennar hafa selst
Barbra Streisand.
í tugmilljónum eintaka.
Hún hefur komið víða við
á ferli sínum og er jafnvíg
á rokk, jazz og sígild dæg-
urlög. Má nefna að fyrir
tæpu ári söng hún nokkur
lög úr vinsælustu söng-
leikjum álfunnar og er sú
plata ein hin söluhæsta þar
vestra í ár.
í þættinum í kvöld verða
flest kunnustu lög Streis-
and kynnt og leikin, þeirra
á meðal fáein jólalög. Auk
hennar koma við sögu lista-
menn á borð við Billy Joel,
Barry Gibb, Jim Steinman
og fleiri.
Stöð tvö:
Guðfaðirinn
■HH í kvöld verður
QQ00 stórmyndin The
Godfather sýnd
á Stöð tvö.
Myndin fjallar um
mafíufjölskyldu í Banda-
ríkjunum, hvemig kynslóð
tekur við af kynslóð.
Myndin hefst árið 1945
þegar Don Vito Corleone
(Marlon Brando) er á há-
tindi ferils síns, en hann
er fjölskyldufaðir einnar af
hinum fímm stóru „fjöl-
skyldum" mafíunnar í
Bandaríkjunum. Áhorfend-
ur kynnast honum fyrst í
brúðkaupi dóttur hans, en
jafnvel það aftrar honum
ekki frá því að sinna „við-
skiptum". Þess má geta að
Brando fékk Óskarsverð-
laun fyrir leik sinn.
Aðrir meðlimir fjölskyld-
unnar, Sonny, Tom og
arftaka Don Vitos, Michael
(A1 Pacino). Það er von
gamla mannsins að
Michael taki við fyölskyld-
unni og auði hennar án
þess að hann saurgi hendur
sínar á glæpaverkum. En
þegar Don Vito er sýnt til-
ræði neyðist Michael til
þess að taka við.
Kvikmyndahandbókin
hrósar myndinni í hástert
og segir hana bæði fyrsta
flokks skemmtan og kvik-
myndasögulegt listaverk,
enda fyllir myndin stjömu-
skalann.
I
UTVARP
FIMMTUDAGUR
4.. desember
6.45 Veðurfregnir. Baen.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
— Páll Benediktsson,
Þorgrímur Gestsson og
Lára Marteinsdóttir. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál. Guömund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
9.00 Fréttir.
9.03 Jólaalmanakið. „Brúðan
hans Borgþórs", saga fyrir
börn á öllum aldri. Jónas
Jónasson les sögu sína (4).
Jólastúlkan, sem flettir al-
manakinu, er Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Kvikmyndasöngleikir.
Þriðji þáttur. Umsjón: Árni
Blandon.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn. Örorku-
bætur. Umsjón Sigrún
Björnsdóttir.
14.00 Miödegissagan:
„Glópagull", ævisöguþættir
eftir Þóru Einarsdóttur.
Hólmfríður Gunnarsdóttir
bjó til flutnings og les (3).
14.30 í textasmiðju Jónasar
Árnasonar.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Frá svæðisútvarpi
Reykjavíkur og nágrennis.
18.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónskáldatími. Leifur
Þórarinsson kynnir.
17.40 Torgiö — Menningar-
mál.
Umsjón: Óðinn Jónsson. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt
mál.
Endurtekinh þáttur frá
morgni sem Guömundur
Sæmundsson flytur.
19.35 Að utan.Fréttaþáttur
um erlend málefni.
19.50 Leikrit: „Orrustan við
Lepanto" eftir Howard Bar-
ker. Þýðandi: Sverrir
Hólmarsson. Leikstjori: Jón
Viðar Jónsson. Leikendur:
Margrét Ákadóttir, Sigurður
Skúlason, Erlingur Gísla-
son, Arnór Benónýsson,
Rósa G. Þórsdóttir, Ása
Svavarsdóttir, Róbert Arn-
finnsson, Hanna Marfa
Karlsdóttir, Gísli Alfreðsson,
Valdemar Helgason, Rand-
ver Þorláksson, Árni
Tryggvason, Sigurður Karls-
son, Örn Árnason, Jóhann
Sigurðarson, Harald G. Har-
alds, Sverrir Hólmarsson og
Aðalsteinn Bergdal. (Leikrit-
ið verður endurtekið nk.
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
5. desember
18.00 Litlu Prúðuleikararnir
(Muppet Babies). 20. þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá 30.
nóvember.
18.55 Skjáauglýsingar og dag-
skrá
19.00 Spftalalíf
(M*A*S*H). Tiundi þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyðar-
sjúkrastöð bandaríska
hersins í Kóreustriöinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Á döfinni
19.40 Þingsjá
Umsjónarmaöur Ólafur Sig-
urösson.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar
20.40 Unglingarnir i frumskóg-
inum
Þáttur um ungt fólk og fjöl-
breytt áhugamál þess, svo
sem fallhlifarstökk, golf,
vaxtarrækt, tónlistarnám,
söng og unglingabækur.
Umsjónarmaður Árni Sig-
urðsson. Stjórn upptöku
Björn Emilsson.
21.20 Sá gamli
(Der Alte). 25. Skyggna kon-
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Aöalhlutverk Sieg-
fried Lowitz. Þýðandi
Þórhallur Eyþórsson.
22.25 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.55 Seinni fréttir
23.00 Flekkað mannorð
(Notorious)
Bandarisk njósnamynd frá
1946. S/H. Leikstjóri Alfred
Hitchcock. Aðalhlutverk:
Ingrid Bergman og Cary
Grant.
Dóttir landráðamanns fellst
á að hjálpa stjórnarspæjara
að fletta ofan af ráöabruggi
samsærismanna í Suður-
Ameríku. Af þessum
kaupum leiðir að stúlkan
verður að giftast höfuð-
paurnum. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
00.45 Dagskrárlok.
STÖDTVÖ
FIMMTUDAGUR
4. desember
17.00 Myndrokk
18.00 Teiknimyndir
18.30 íþróttir
Umsjón Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir
19.55 Bjargvætturinn
(Equalizer). Bandarískur
glæpaþáttur.
20.40 Tíska
(Videofashion).
21.10 Reyndiröu að tala við
Patty?
(Have Vou Tried Talking To
Patty?) Bandarísk kvikmynd
frá CBS.
Fimmtán ára aldurinn getur
verið erfiður, leyndardómar
hins gagnstæða kyns verða
sifellt áhugaverðari og
vandráðnari. Patty Miller
hefur eitt vandamál til við-
bótar, hún heyrir orðið illa
og þegar vinkonurnar eru
farnar að fá athygli finnst
henni hún vera útundan.
22.00 Guöfaöirinn I
(The Godfather l). Bandarisk
kvikmynd sem er leikstýrt
af hinum þekkta Francis
Ford Coppola. Aðalhlutverk
eru leikin af Marlon Brando,
Al Pacino, James Caan,
Richard Castellano, Diane
Keaton, Robert Duvall o.fl.
Mynd þessi fjallar um mafíu,
ættarhöföingjann Don Cor-
leone (Brando) og fjölskyldu
hans. Myndin byrjar áriö
1945 og er fylgst með lífi
þessarar fjölskyldu. Marlon
Brando hlaut Óskarsverö-
laun fyrir leik sinn i þessari
mynd. Myndin er ekki við
hæfi barna.
00.40 Dagskrárlok.
þriöjudagskvöld kl. 22.20).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Frægö. Þáttur í umsjá
Önnu Olafsdóttur Björns-
FIMMTUDAGUR
4. desember
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Siguröar Þórs Salvarssonar.
Meöal efnis: Barnadagbók
i umsjá Guöríöar Haralds-
dóttur að loknum fréttum
kl. 10,00, tónleikar helgar-
innar, Matarhornið, tvennir
tímar á vinsældalistanum
og fjölmiðlarabb.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist i
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Hingaö og þangaö um
dægurheima með Inger
Önnu Aikman.
15.00 Sólarmegin. Tómas
Gunnarsson kynnir soul- og
fönktónlist. (Frá Akureyri).
16.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Sigurðardóttur.
son. Lesari með henni:
Kristin Ástgeirsdóttir.
23.00 Túlkun í tónlist.
Rögnvaldur Sigurjónsson
sér um þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
17.00 Hitt og þetta. Stjórn-
andi: Andrea Guðmunds-
dóttir.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti rásar tvö.
Gunnlaugur Helgason kynn-
ir tíu vinsælustu lög vikunn-
ar.
21.00 Gestagangur hjá Ragn-
heiði Daviösdóttur.
22.00 Rökkurtónar. Stjórn-
andi: Svavar Gests.
23.00 Gyðingastúlkan frá
Brooklyn. Helgi Már Barða-
son velur og kynnir nokkur
gullkorn af hljómplötum
söngkonunnar Barböru
Streisand.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni -
FM 96,5
989
uaMsnan
FIMMTUDAGUR
4. desember
07.00—09.00 Á fætur meö
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blööin og
spjallar viö hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Tapaö fundið,
opin lína, mataruppskrift og
sitthvað fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aöi meö Jóhönnu Haröar-
dóttur.
Fréttapakkinn. Jóhanna og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast meö þvi sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
viö fólk.
Flóamarkaöurinn er á dag-
skrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síðdegispoppið og spjall-
ar viö hlustendur og
tónlistarmenn. Tónlistar-
gagnrýnendur segja álit sitt
á nýútkomnum plötum.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
siödegis. Þægileg tónlist
hjá Hallgrími, hann litur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk-
iö sem kemur viö sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist meö
léttum takti.
20.00—21.30 Jónina Leós-
dóttir á fimmtudegi. Jónina
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist aö þeirra
smekk.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Bjarni O. Guö-
mundsson stýrir verölauna
getraun um popptónlist.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tónlist
í umsjá fréttamanna Bylgj
unnar.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur.