Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
Danskur Nóbelsverðlaunahafi:
Alnæmishættan
stórlega ýkt
Væntir lækningar innan fimm ára
„INNAN fimm ára verður búið að finna lækningu við alnæmi," seg-
ir danski nóbelsverðlaunahafinn dr. Niels Jerne prófessor i viðtali
við danskt blað nýlega. „Hættan af völdum sjúkdómsins hefur verið
ofmetin og stórlega ýkt í fjölmiðlum.“
„Sá fjöldi fólks, sem látist hefur sóknir sínar á sviði ónæmisfræði.
úr alnæmi, er hverfandi lítill, ekki
síst þegar við höfum í huga dauða-
slysin á þjóðvegunum," segir Niels
Jeme, sem hlaut Nóbelsverðlaunin
í læknisfræði árið 1984 fyrir rann-
GENGI
GJALDMIÐLA
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR
hækkaði í gær gagnvart
flestum helztu gjaldmiðl-
um heims. Síðdegis í gær
kostaði sterlingspundið
1,4315 dollara í London
(1,4330), en annars var
gengi dollarans þannig,
að fyrir hann fengust
1,9740 vestur-þýzk mörk
(1,9730), 1,6495 svissn-
eskir frankar, (1,6450),
6,4825 svissneskir frank-
ar (6,4650), 2,2345 hol-
lenzk gyllini (2,3200),
1.371,00 ítalskar lírur
(1.368,50), 1,3835
kanadískir dollarar
(1,3818) og 162,25 jen
(161,82).
Verð á gulli hækkaði og
var það 391,10 dollarar hver
únsa (388,40).
Hann er nú eftirlaunaþegi og býr
í Suður-Frakklandi.
„Eg get ekki séð, að alnæmi sé
sú ógn sem af er látið, en það er
óneitanlega freistandi umíjöllunar-
efni fyrir fjölmiðlana," segir Niels
Jeme.
Hann trúir mátulega þeim spá-
dómum, að allt að ein milljón manna
muni deyja úr alnæmi á næstu 10
ámm.
„Þessi hætta, sem á að vera af
alnæmi, er stórlega ýkt,“ segir
hann. „Hún hefur því aðeins fengið
þessa umfjöllun, að vettvangur
hennar er á Vesturlöndum. Ef mal-
aría heijaði á okkur Vestur-
landabúa, hefðu menn fyrir löngu
unnið bug á henni," segir Jeme.
„Malaría og svefnsýki hafa hins
vegar heijað í Afríku um árabil og
leggja að velli milljónir manna á
hveiju ári,“ bætir hann við. „En
þar sem þessir sjúkdómar em ekki
til staðar í Evrópu og Norður-
Ameríku, er ekki lögð ýkja þung
áhersla á að uppræta þá, þó að
bæði sé vitað um upptök þeirra og
útbreiðslu."
Á þakkargjörðarhátíð
Reagan Bandarikjaforseti og fjölskylda hans héldu svonefnda þakkargjörðarhátíð hátíðlega í Kali-
foroíu um síðustu helgi. Standandi á myndinni talið frá vinstri eru Neil Reagan, bróðir forsetans
ásamt Bess konu sinni, þá Dennis Revell, eiginmaður dóttur forsetans, Maureen Reagan.sem stend-
ur þarna við hlið föður síns. Sitjandi eru Ron, sonur forsetahjónanna, þá forsetafrúin Nancy og yzt
til hægri Doris Reagan.
Endurminningabók um MI5:
ERLENT
Dómi um afhendingu
leyniskjala áfrýjað
London, Sydney, AP, Reuter.
BRESKA stjórnin hefur
ákveðið að áfrýja þeirri
Vopnasalan til íran
George Shultz fagnar
útnefningn Carlucci
. Washington, AP.
GEORGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur
látið i ljós ánægju með skipun
Franks Carlucci í stöðu örygg-
ismálaráðgjafa Reagans for-
seta. Kom þetta fram hjá
Charles Redman, talsmanni ut-
anríkisráðuneytisins i gær.
Sagði hann, að Shultz væri afar
ánægður með, að forsetinn
hefði skipað jafn reyndan og
hæfileikamikinn mann og
Carlucci i þessa stöðu.
Carluci hefur áður gegnt ýmsum
miklum ábyrgðarstöðum hjá
Bandaríkjastjóm. Fyrst var hann-
Frank Carlucci á leið fra skrifstofu sinni i Washington, eftir að
hann hafði verið skipaður i stöðu þjóðaröryggisráðgjafa Banda-
ríkjanna. „Ég er mjög stoltur af þvi að hafa verið valinn í þessa
stöðu,“ sagði Carlucci við fréttamenn.
sendiherra lands síns í þijú ár í
Portúgal. Síðan var hann m. a.
aðstoðarforstjóri leyniþjónustunn-
___ ^
Fékk Iransstjórn
vopn frá Belgíu?
Briissel, AP, Reuter.
BELGÍSKA ríkisstjórnin hefur fyrirskipað rannsókn vegna blaða-
frétta um að írönum hafi verið seld belgísk vopn allt frá upphafi
Persaflóastríðsins.
Dagblaðið Le Soir sagði í frétt
frá Kaupmannahöfn, að belgísku
vopnaverksmiðjumar Fabrique
Nationale de Herstal hefðu „vit-
andi eða óvitandi verið einn af
stærstu vopnasölunum", sem ír-
anir skiptu við. Önnur belgísk blöð
hafa einnig flutt fréttir um, að
Belgíumenn hafí stundað þessi
viðskipti.
Leo . Tindemans, forsætisráð-
herra Belgíu, vísaði þessum
fréttum á bug í fyrri viku og
sagði, að frá árinu 1980 hefðu
írönum aðeins verið seldir tveir
æfíngarifflar, en nú hefur hann
fyrirskipað rannsókn í málinu. A
hún að upplýsa hvort um hafí
verið að ræða ólöglegar leyfís-
veitingar eða ónógt eftirlit með
vopnaútflutningi.
Le Soir hafði fréttina eftir
dönskum sjómönnum, sem kváð-
ust hafa siglt með fallbyssur,
eldflaugar og varahluti til írans
frá Atnwerpen og Zeebmgge.
ar (CIA), er Jimmy Carter var
forseti og hann var aðstoðarvam-
armálaráðherra fyrstu tvö árin,
eftir að Reagan tók við stjómar-
taumunum.
Við skipun Carlucci í embætti
nú sagði Reagan, að reynsla
Carlucci gerði hann „einstaklega
hæfan" til að gegna embætti þjóð-
ar- öryggisráðgjafa. Carlucci
hefur lengi verið einn af nánustu
samheijum Caspars Weinbergers
vamarmálaráðherra og hefur það
vafalítið átt mikinn þátt í skipun
hans nú. Þannig var hann aðstoð-
arráðherra Weinbergers, á meðan
sá síðamefndi var ráðherra jrfír
fjárlaga- og hagsýslustofnun
Bandaríkjanna og síðar heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra í
stjómartíð Nixons.
Cariucci, sem er 56 ára að
aldri, fór úr stjóminni 1982 og
tók þá við forstjórastöðu hjá ráð-
gjafafyrirtækinu Sears World
Trade Inc. Hann mun láta af
þeirri stöðu nú, þegar hann tekur
á ný við mikilli ábyrgðarstöðu hjá
Bandaríkjastjóm.
ákvörðun ástralsks dómara,
að henni beri að afhenda
fyrrum starf smanni MI5-
gagnnjósnaþjónustunnar
leynileg skjöl. Njósnarinn
fyrrverandi er að reyna að
fá endurminningar sínar út-
gefnar en stjórnvöld í
Bretlandi gera hvað þau
geta til að koma í veg fyrir
það.
Philip Powell, dómari við hæsta-
rétt Nýja Suður-Wales í Astralíu,
ákvað á mánudag að taka ekki
tillit til mótmæla bresku stjómar-
innar við því, að Peter Wright,
fyrrum háttsettur maður í MI5,
og lögfræðingur hans fengju í
hendur leynileg skjöl. Hélt lög-
fræðingur stjómarinnar því fram,
að skjölin væm svo leynileg, að
jafnvel dómaranum væri ekki
treystandi fyrir þeim. Auk þess
hefði Wright gengist undir trún-
aðareiða þegar kom til starfa fyrir
MI5. Powell fékk samt skjölin í
hendur og eftir að hafa skoðað
þau sagði hann, að óhætt væri að
láta Wright fá þau þegar búið
væri að má út vissa kafla.
Þessum úrskurði ætlar breska
stjómin að áfrýja en Powell heldur
því fram, að í þessu máli hafí hon-
um borið skylda til að taka
hagsmuni Ástrala fram yfir hqgs-
muni Breta.
í leyniskjölunum umræddu er
m.a. fjallað um Sir Roger heitinn
Hollis, fyrrum yfirmann MI5, en
Wright fullyrðir, að hann hafí ver-
ið á mála hjá Sovétmönnum. Þá
hefur Wright einnig krafíst skjala,
sem Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra, studdist við árið 1981
þegar hún neitaði því, að Hollis
væri útsendari Sovétmanna eða
svokölluð „moldvarpa". Wright,
sem er liðlega sjötugur, býr nú á
Tasmaníu suður af ástralska meg-
inlandinu.
Annað mál þessu líkt hefur að
undanfömu verið rekið fyrir
hæstarétti Dyflinnarborgar á ír-
landi. Snýst það um bók eftir
annan fymirn starfsmann MI5,
Sir Roger Hollis. Var hann
„fimmti maðurinn", ein af „mold-
vörpum“ Sovétmanna?
Joan Miller, en breska stjómin
fékk lögbann sett á hana eftir að
hún var komin í verslanir á ír-
landi og Bretlandi. í gær var
lögbanninu hnekkt en ekki hefur
verið ákveðið hvort þeim úrskurði
verður áfrýjað.
Miller og Wright fjalla bæði um
þá spumingu, sem brunnið hefur
á vörum margra allt frá því síðari
stríði lauk: Hve mörgum „mold-
vörpum" tókst Sovétmönnum að
koma fyrir í bresku leyniþjón-
ustunni? í mörgum bókum hafa
menn velt því fyrir sér hvort um
hafí verið að ræða „fímmta mann-
inn“ auk þeirra Kims Philby,
Donalds MacLean, Guys Burgess
og Sir Anthonys Blunt. Thatcher
sagði á þingi árið 1981, að ná-
kvæm rannsókn hefði ekki leitt í
ljós neitt misjafnt um Sir Roger
Hollis, sem var yfirmaður MI5 á
ámnum 1956-65, en Wright segist
hins vegar vera „99% viss um, að
Hollis var sovéskur njósnari".