Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
7
ÆVISÖGUR í ÖrSDVEGI
A misjöfhu
þrífast
bömin best
Emil Bjömsson skrifar um
eigið líf og aldarfar
Málsnillingurinn séra Emil Björnsson, fyrrum fréttastjóri
sjónvarps, lýsir eigin lífi og aldarfari. Fersónulegur stíll hans,
alvara, skop og skáldleg efnistöK gera frásögnina einstæða og
atburði ljóslifandi. Svona sKrifar sá einn sem er af Kynþætti aust-
HrsKu sKáldanna.
Segja má að þessi þroskasaga sé oft líkari skáldsögu en
æviminningum, þótt heimildarsaga sé. Það gerir einmitt
gæfumuninn að skáldleg sýn ræður búningnum svo hann verður
aldrei hversdagslegur. Þó er það hversdagslífið sjálft og baráttan
fyrir því sem er efni bókarinnar.
Framan af er frásögnin eins konar fagnaðarljóð ungs hjarðsveins
með tregablöndnum undirtóni, sem naumast lætur nokkurn
ósnortinn. Er á líður harðnar tónn hörpunnar og þá fer bókarheitið,
Á misjöfnu þrífast börnin best, að skiljast betur.
rekur minningar sinar
6m 06 Q&Í.X&W
HUjNKHí e.
sm;iri)sso\
Minningar
Huldu A. Stefánsdóttur
2. bindi — Æska
Billn á að brúa
MalldórE. Sigurðsson rekur minningar sínar
— síðara bindi
Hrafn á Hallormsstað og
lífíð kringum hann
Skráð af Ármanni Halldórssyni
í öðru bindi endurminninga sinna rifjar Hulda
upp æskuárin á Akureyri og unaðsstundir í
Höfn. Fólk og atvik verða Ijóslifandi. Hulda
rifjar upp kynni af æskuvini sínum, Davíð
Stefánssyni, og bregður upp myndum af
samverustundum þeirra uns leiðir skiljast.
í bókinni eru rúmlega 80 gamlar Ijósmyndir
sem varpa lífi og lit á horfinn tíma og
umhverfi þeirra ævi- og menningarsögu sem
þar er sögð.
„Hulda Á Stefánsdóttir er ein þeirra kvenna
sem sett hafa svip á öldina og þjóðin öll
þekkir og ann."
Litríkur stjórnmálaferill, átök innan fiokks og
utan, samherjar og andstæðingar, minnis-
verðir atburðir og uppákomur, hnyttni og
gamansemi. Allir þessir þættir koma við
þessa sérstæðu sögu.
í fyrra kom út fýrra bindi endurminninga
Halldórs E. Sigurðssonar fyrrum ráðherra,
sem skipaði sér þegar í röð mest seldu bóka.
Hér er komið síðara bindið þar sem Halldór
heldur áfram að rekja minningar sínar og
lýsir þátttöku í stjórnmálum undanfarna
áratugi. Við sögu koma fjölmargir samferða-
menn sem mótað hafa íslandssöguna um
skeið.
Hrafn á Hallormsstað hefur margt lifað og
reynt, slarksamar ferðir á Lagarfljóti ísilögðu
og á Fagradal í vetrarveðrum á bernsku-
dögum bílaaldar. Frá mörgum samferða-
mönnum segir hann í þessari bók og má þar
t.d. nefna GunnarGunnarsson skáld á Skriðu-
klaustri, en kynni þeirra urðu mjög náin.
Hrafn hefur séð austfirskar byggðir taka
miklum stakkaskiptum síðastliðna hálfa öld.
Sjálfur hefur hann stundað búskap,
vegavinnu, skógrækt, vörubílaakstur og
sitthvað fieira.
Lýsingar Hrafns á aldarfari og lífsháttum á
Héraði og niðri á Fjörum eru þess eðlis að
bókin mun verða talin merk heimild um það
efni er stundir líða.
BÓMÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866