Morgunblaðið - 04.12.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
39
Tekið á móti Margréti EA
MARGRÉT EA, hið nýja skip
Samheija hf. á Akureyri, kom
í fyrsta skipti til heimahafnar
á þriðjudag- eins og fram hefur
komið í blaðinu. Myndimar
vom teknar þegar skipið hafði
lagst að bryggju. A stærri
myndinni em eigendur Sam-
herja og yfirmenn á Margréd
EA í brú skipsins. Þeir em frá
vinstri: Sturla Einarsson skip-
stjóri á Margréd, Þorsteinn
Vilhelmsson skipstjóri á Odd-
eyrinni, Kristján Vilhelmsson
vélstjóri á Oddeyrinni, Baldvin
Loftsson yfirvélsljóri á Margr-
éti, Þorsteinn Már Baldvinsson
framkvæmdastjóri og Guð-
mundur Jónsson 1. stýrifmaður
á Margréti. A innfeldu mynd-
inni er Freyja Valgeirsdóttír
að taka á mótí manni sínum,
Sturlu Einarssyni, skipstjóra.
Prófkjör Alþýðuflokksins:
Stefnir í harða bar-
áttu um annað sætið
Framkvæmdir við Leiruveginn:
Vélar o g tæki óstarf-
hæf vegna mikils kulda
VINNA stöðvaðist að miklu leyti
við Leiraveginn í fyrradag vegna
hins gífurlega kulda sem var hér
nyrðra. Að sögn Franz Araason-
ar, framkvæmdastjóra Norður-
verks, stöðvuðust 11 vélar og
bílar vegna kuldans.
Frost var hér rúmlega 20 gráður
á þriðjudaginn og það var of mikið
af hinu góða fyrir tækin. Olía
þykknaði á vökvabúnaði og vatn
fraus á bremsubúnaði.
I gær var mun minna frost, kuld-
inn fór niður undir frostmark — en
samt sem áður var lítið hægt að
vinna við Leiruveginn. Vegna skaf-
rennings og ófærðar, inn í ljörð var
ekki hægt að sækja möl í námu á
Þveráreyrum — en þangað er sótt
það efni sem notað er til uppfylling-
ar við veginn. Nú hafa tveir
vinnudagar farið í súginn en Franz
var engu að síður bjartsýnn á að
Norðurverki tækist að skila vegin-
um af sér fyrir jól eins og ráðgert
er. Starfsmenn fyrirtækisins gátu
í vikunni ekið frá Drottningarbraut-
inni yfír í heiði — yfír nýju brúna.
Það er því aðeins uppfyllingarstarf
eftir áður en verkinu verður skilað.
Ólafur
Halldórsson
áttræður
ÓLAFUR Halldórsson, læknir,
Háalundi 4 á Akureyri, verður
áttræður í dag, 4. desember.
Hann tekur á móti gestum í dag
milli klukkan 16 og 19 á heimili
sínu.
Bæjarstjórn:
Mótmælir skerðingu á
f ramlagi Jöfnunarsjóðs
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
samþykkti samhljóða á fundi
sínum í fyrradag að mótmæla
harðlega þeirri 300—400 milljóna
króna skerðingu á lögbundnum
framlögum ríkisins tíl Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga sem gert er
ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga
ársins 1987.
Það var Sigfús Jónsson bæjar-
stjóri sem lagði tillöguna fram.
Ekki er Ijóst af hve miklu fé
bæjarsjóður verður vegna þessarar
skerðingar en reiknað er með að
það verði að minnsta kosti 8 milljón-
ir króna.
Bæjarstjóm skoraði á ríkisstjóm
og Alþingi að taka framangreind
ákvæði frumvarpsins til endurskoð-
unar.
Arekstrar
NOKKRIR árekstrar urðu á Ak-
ureyri í gærdag. Engin meiðsli
urðu á fólki en nokkrir bílanna
skemmdust allmikið. Að sögn
lögreglu var hálku á götum um
að kenna í öll skiptín en mjög
hált var i gær.
Fundur ungra sjálfstæðismanna:
„Þróunarhjálp -
ÞAÐ stefnir í milda baráttu um
annað sætíð á lista Alþýðuflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. Að minnsta kosti þrír
aðilar munu beijast um það sæti
— jafnvel fjórir. Prófkjör hefur
nú verið ákveðið 24. og 25. jan-
úar næstkomandi. Það era
laugardagur og sunnudagur.
Frestur tU að skila þátttökutíl-
kynningum rennur út á laugar-
dagskvöldið klukkan 22 en
enginn hefur enn tilkynnt þátt-
töku.
Allar líkur em á því að Ámi
Gunnarsson, fyrrverandi alþingis-
maður, sé sá eini sem sækist eftir
fyrsta sætinu. Baráttan verður hins
vegar hörð um annað sætið ef að
líkum lætur. Kolbrún Jónsdóttir,
alþingismaður, hefur lýst því yfír
að hún sækist eftir öðm sætinu. í
fyrrakvöld ákvað Sigbjöm Gunn-
arsson, verslunarmaður á Akureyri
að sækjast eftir öðm sætinu og það
gerir Hreinn Pálsson bæjarlögmað-
ur einnig. Þá hefur Freyr Ófeigsson,
héraðsdómari og oddviti Alþýðu-
flokksins í bæjarstjóm Akureyrar,
verið nefndur til sögunnar í barát-
tunni um 2. sætið — og sumir
Alþýðuflokksmenn halda því jafnvel
fram að hann stefni á 1. sætið.
Freyr vildi ekki tjá sig um málið í
gær. Sagði það koma í ljós þegar
fresturinn rynni út hvort hann yrði
með eða ekki.
Prófkjörið verður aðeins um tvö
efstu sæti listans. Kjörgengir til
prófkjörs em þeir sem uppfylla
ákvæði laga um kjörgengi við al-
þingiskosningar og hafa skrifleg
meðmæli minnst 25 flokksbundinna
Alþýðuflokksmanna í kjördæminu,
18 ára og eldri. Frambjóðandi sem
býður sig fram í 1. sæti er auk þess
i framboði í 2. sæti listans. Sá sem
býður sig fram í 2. sæti listans er
einungis í kjöri í það sæti. Niður-
stöður prófkjörsins era bindandi um
skipan sæta á framboðslista ef
frambjóðandi hlýtur í viðkomandi
sæti og þar fyri ofan minnst 20%
af kjörfylgi Alþýðuflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra við síðustu
alþingiskosningar.
Prófkjörið verður opið, þannig
að allir sem lögheimili eiga í Norð-
urlandskjördæmi eystra og orðnir
verða 18 ára þann 30. apríl 1987
mega taka þátt í því svo fremi þeir
séu ekki flokksbundnir í öðmm
flokkum.
sóun eða skynsemi“
VORÐUR, félag ungra sjálfstæð-
ismanna á Akureyri, heldur fund
með dr.phil. Arnóri Hannibals-
syni á sunnudaginn klukkan 14
í Kaupangi. Yfirskrift fundarins
er: „Þróunarhjálp - sóun eða
skynsemi“. Almennar umræður
verða á eftír framsögn dr. Ar-
nórs. Allir era velkomnir.
Blaðbera
vantar í Innbæ, Vanabyggð og Fyrarlandsveg.
Upplýsingar í síma (96) 23905.
ilforgtia&lfifeife
Hafnarstræti 85, Akureyri.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Aðalfundur Sjálfstæðis-
félags Akureyrar
verður í dag fimmtudaginn 4. desember kl. 20.001 Kaupangi við Mýrarveg.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Jólaglögg. Stjómin.
Hóla- og Fellahverfi
Aðalfundur
Félags sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi verður haldinn fimmtu-
daginn 4. desember nk. kl. 20.30 i sjálfstæðishúsinu Valhöll.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál. S(yöm/n.
Sjálfstæðisfélagið
Þjóðólfur Bolungarvík
heldur almennan félagsfund fimmtudaginn 4. desember kl. 20.00 i
Verkalýðshúsinu.
Dagskrá: Bæjarmálaumræða og önnur mál. Stjómin.
Kópavogur — Kópavogur
Jólafundur sjálfstæðiskvennafélagsins Eddu verður haldinn laugar-
daginn 6. desember kl. 19.00. í Hamraborg 1, 3. hæð.
Dagskrá:
1. Kvöldverður.
2. Skemmtiatriöi.
3. Jólahugvekja.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi fyrir fimmtudagskvöld til Friðbjargar
s: 45568 eða Ertu s: 41707.
Stjómin.