Morgunblaðið - 13.12.1986, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
Nú í
DÝRTÍÐINNI
biðja allir um
ÓDÝRU
STJÖRNU
JÓLAKORTIN
Tvær góðar
til afþreyingar
Bækur
Frottesloppar
frá kr. 1.790.- 8 gerðir
— bundnir og með
rennilás, hálfsíðir og
FÁST í FLESTUM
BÓKA- GJAFA- OG
RITFANGAVERSLUNUM
SÍðir.
lympíi
LITBRA HF.
SÍMAR 22930 - 22865
Laugavegi 26. s. 13300 - Glæsibæ. s. 31300
Jóhanna Kristjónsdóttir
Harper í tvísýnu tafli
Gissur Ó. Eriingsson þýddi
Útg. Skjaldborg 1986.
HARPER er brezkur ævintýramað-
ur, sem á og rekur stóra skútu fyrir
auðmenn við Bermúdaeyjar. Einn
viðskiptavina hans, Nurul Khan frá
Bangladesh, biður hann koma í
heimsókn og heitir honum sumar-
leyfi þar, engu öðru líku. Harper fer
á staðinn og það stenzt á endum,
fyrsta kvöldið er ráðherra myrtur
að honum viðstöddum, skömmu
síðar varpar hann sér útbyrðis til
að bjarga ungri stúlku Mercedes,
hvar þau eru að sigia í mestu mak-
indum, hann að hitta Nurul Khan,
hún að leita Mánablómsins. Þau eru
handtekin og stúlkan pynduð, en
síðan er Harper allt í einu sleppt og
von bráðar er hann orðinn skipstjóri
á gömlum ryðkláfi og siglir viðsjár-
verðar kvíslir Ganges. Atburðimir
gerast nær því á hverri síðu og flest-
ir, sem verða á vegi Harpers eru
margfaldir í roðinu og fáum að
treysta. En Harper er sem betur fer
ekki bara með tvísýnt tafl, hann sér
ýmsa leiki fram í tímann og klórar
sig út úr furðulegustu kröggum.
Leiðir hans og Mercedes liggja
aftur saman og þau taka til sinna
ráða, afhjúpa eiturlyfjasmyglara,
fínna Mánablómið og sleppa að lok-
SPENNUSAGA ARS/NS
HHinr
LÍFSHÁSKI í LJÓNADAL
M Hér er komin nýjasta skáldsaga breska met
'W söluhöfundarins Ken Folletts, sem meö.al
annars er kunnur fyrir bækur sínar Þrenning,
Lykillinn aö Rebekku, Nálarauga og Maðurinn frá
Sánkti Pétursborg. Lífsháski í Ljónadal hefur
komiö út víöa um heim, vakiö mikla athygli og
veriö talin besta spennusaga ársins af gagn-
rýnendum.
í Lífsháska í Ljónadal er meistaralega
^ tvinnaö saman hraöa, spennu og ástar-
ævintýrum þar sem ung bresk kona, franskur
læknir og bandarískur blaðamaður lenda
í óvæntum átökum og ævintýrum.
Jk Njósnir, starfsemi skæruliða og
mögnuö átök setja svip á
þessa frábæru spennusögu
snillingsins Ken Folletts.
o
VJUCArjljrtgafdl
um sæmilega heil frá öllu saman.
Þetta er spennusaga eins og hún
gerist hressilegust.Framandleg dul-
úð Austurlanda, ókyrrt stjórnmála-
ástand og hörmung Bangladesh
fléttast inn í, býsna haganlega.Og
Bangladesh er heldur ekki eintóm
eymd og harmur, þar er líka fegurð
og þar er alþýðufólk gott og grand-
vart. Siglingarsagan er skemmtileg
og eiginlega var mig farið að langa
til að sækja heim þetta land, að
lestri loknum. Og Harper væri áreið-
anlega spennandi í kynningu.En
hann er sennilega kominn aftur til
Bermúda og kannski búinn að gift-
ast henni Mercedes. Þýðingin er
nokkuð góð, en kápumyndin fannst
mér ekki nógu skemmtileg.
Allt fyrir þig eftir Danielle Steel
Þýðandi:Skúli Jensson
Útg. Setberg 1986.
Það gildir hið sama um allar síðustu
bækur Danielle Steel, að þær eru
varla komnar úr prentsmiðjunni,
þegar þær tróna á metsölulistum í
Bandaríkjunum og Bretlandi og
kannski víðar. Ég hef áður minnzt
á nokkrar bækur Steel og reynt að
skyggnast fyrir um ástæður vin-
sældanna. í þessari nýju bók Allt
fyrir þig, sem ég hafði áður lesið á
ensku, gilda ámóta lögmál. Höfund-
urinn hefur náð leikni í að segja
sögu, þótt listræn tilþrif séu ekki til
að hrópa húrra fyrir. En nokkurn
veginn er hægt að ganga út frá því
sem gefnu, að bók eftir Danielle
Steel er þægileg lesning.
í upphafínu segir frá Ward Thy-
er, sem er ríkur og myndarlegur
pabbastrákur. Hann kemst í kynni
við Faye Price, sem er ein allra efni-
legasta leikkonan í Hollywood. Þau
fella hugi saman, en margt þarf að
íhuga, á hún að fóma frægð og
frama fyrir mann og böm? Og hvem-
ig stendur á því að auðæfin em allt
í einu gufuð upp og hjónabandið allt
í vitleysu. Ward er veikgeðja og
gefst upp og fer frá konu og fímm
Danielle Steel,
:»w4íí5
Marcus Aylward
börnum þeirra. En Faye er ekki
fisjað saman, hún fær tækifæri til
að spreyta sig sem aðstoðarkvik-
myndaleikstjóri og líður ekki á löngu
unz Oscarsverðlaunin fara að
streyma til hennar. Ward snýr heim
og fyrir hvatningu Faye nær hann
sér á réttan kjöl og hamingjan blas-
ir við þeim. Þó er bókin varla
hálfnuð.
En bömin fimm eru að vaxa úr
grasi. Þau em hvert með sínu móti
og glíma við ólíklegustu vandamál.
Foreldramir hafa vanrækt þau, með-
al annars vegna starfa sinna og
hvað þau vom upptekin hvort af
öðm. Seinni hlutinn er raunsærri og
betur gerður, að því er mér finnst,
en rómantíski bríminn í fyrri hlutan-
um. Þýðing Skúla Jenssonar er
ágætlega gerð, eins og hans er
vandi.
Eins og ljóð
=i
s
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Fríða Á. Sigurðardóttir:
Eins og hafið.
Útg. Vaka-Helgafell 1986.
Hús í litlum bæ úti á landi, kom-
ið að hmni og til óprýði í plássinu.
Einhvem tíma gerðust skrítnir at-
burðir í þessu húsi, jafnvel ævintýri
— var ekki sagt að riddarinn hefði
komið á hvíta hestinum að hitta
draumadísina sína. En það hvílir
einhver leyndardómur yfir öllum
þeim útgáfum, sem ganga manna á
meðal í bænum um húsið. Kannski
draga íbúamir dám af húsinu. Em
í álögum. Altjend em þeir í einhvers
konar upplausnarástandi. Kannski
vegna ytra ástands eða innri vanlíð-
unar. Fríða lætur okkur um að
komast að niðurstöðu um það, hvert
og eitt vænti ég.
Persónur hennar ení íbúamir í
húsinu, margir, dregnir hörðum
dráttum, virðast daufar útlínur við
fyrstu kynni. En höfundir fyllir upp
í mynd þeirra, hvers og eins hér um
bil án þess að maður taki eftir því.
Sagan virðist að mörgu leyti þraut-
hugsuð þótt hún sé ekki viðamikil,
né stór um sig.
Stúlkan Svana er kannski ekki
frumleg persóna, hún er konan sem
alla tíð elskar þennan eina mann
og lætur það gott heita þótt hún
sæti ámæli og umtali og atlögum
fyrir vikið. Hún hefur ekki sinnt
bömum sínum vegna þessa manns,
þótt hann sé faðir stúlkunnar Gullý.
En þó Svana sé ekki nýstárleg sem
slík em henni gerð afar hugþekk
skil og dóttirin Gullý verður kannski
bezta persónan í sögunni. Ég held,
Fríða Á. Sigurðardóttir
að Fríðu sé raunár mjög lagið að
skrifa um böm og unglinga, það
hefur komið fram í fyrri bókum
hennar.
Þetta fólk hefur búið í húsinu
óratíma en nú hefur einn íbúanna
móðgað eigandann, og þeim er öll-
um sagt upp. Og hvað verður þá
um þau? Geta þau átt sjálfstætt líf
utan þessa húss? Eða byrjar lífið
kannski þegar þau komast héðan?
Á síðum sögunnar em mikil átök,
þótt hljóðlát séu. Fólk og hús tvinn-
ast ævintýralega saman. Fríða hefur
ekki bara frásögnina á valdi sínu,
heldur ekki siður stemmningu húss-
ins. Eins og hafíð er kannski saga.
Á mig virkaði hún eins og ljóð. Ljóð
sem verður að lesa oft og segir allt-
af eitthvað fleira.