Morgunblaðið - 17.01.1987, Page 12

Morgunblaðið - 17.01.1987, Page 12
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987 Skúlptúrar og málverk á sýningu Kjarvalsstaða á abstaktmálverkum Abstraktmyndir í vestursal Morgunblaðið/Einar Falur Kjarvalsstaðir: Sýning á abstraktverk- iim íslenskra listamanna Verið að leggja síðustu hönd á undirbúning Punktar úr sögu íslenskrar ab- straktlistar Sýningarskrá Kjarvalsstaða/ÓIafur Kvaran HIN klassiska raunsæja mynd- gerð leggur áherslu á tálmynd af veruleikanum/myndefninu og rökrétta heild milli tíma, myndrýmis og allra einstakra þátta myndefnisins. Hugtakið abstraktlist má hins vegar skil- greina almennt með hliðsjón af tengslum við veruleikann. Annars vegar þegar formum umhverfisins er umbreytt á þann hátt að þau verða ekki staðfærð sem ákveðið mynd- efni , heldur bera fyrst og fremst merkingu sem form og litur, og hins vegar þegar við þekkjum alls ekki i verkinu þætti úr umhverfi okkar og dæmum það án viðmiðunar við ytri veruleika. Árið 1925 efndi Finnur Jónsson til sýningar í Reykjavík sem mark- ar kaflaskipti í islenskri listasögu. Hann sýndi þá verk þar sem bæði er hafnað þeirri klassísku skoðun Óhlutkennd form ogmyndimar eiga sinn eiginn veruleika að málverkið eigi að vera tálmynd af veruleikanum og kröfunni um rökrétta heild milli myndefnis og myndrýmis. Enda þótt myndgerð af þessum toga hafi fyrst komið fram hér á landi á sýningu Finns, þá er rétt að geta þess að nokkr- um árum áður hafði Baldvin Bjömsson einfaldað myndefni í geómetrísk abstrakt form, en hann var búsettur í Þýskalandi og var mikill áhugamaður um róttæk viðhorf í myndlist. Svavar Guðnason efndi til sýn- ingar í Reykjavík 1945. Hann hafði verið búsettur í Danmörku frá árinu 1935 og skipað sér í fremstu röð róttækra listamanna þar í landi. Á sýningunni í Reykjavík sýndi Svavar ma „fúgu- myndir" sínar, en þær leiða hugann að flugi, hraða og árekstr- um. Formgerðin einkennist af smágerðum litaflötum sem af- markast af brotnum skurðlínum og framkalla margrætt mynd- rými, en hröð og tilviljunarkennd pensilskrift magnar hljómrænt gildi litanna. Haustið 1947 efndu tíu lista- menn til sýningar í Reykjavík sem bar heitið Septembersýning. Hóp- urinn samanstóð annars vegar af þeim sem komu heim frá námi í lok stríðsins, Jóhannesi Jóhannes- syni, Kjartani Guðjónssyni, Krist- jáni Davíðssyni, Valtý Péturssyni og hinsvegar af listamönnum sem fram komu á fjórða áratugnum, Þorvaldi Skúlasyni, Siguijóni Ól- afssyni, Nínu Tryggvadóttur, Snorra Arinbjamar og Gunnlaugi Scheving. Auk þeirra sýndi Tove Ólafsson. Sýninguna má skoða sem tákn andstæðna sem komnar voru upp í íslenskri list milli þeirra sem gerðu þá kröfu að listin skyldi gera mynd af veruleikanum sam- kvæmt klassískri hefð og þeirrar skoðunar sem var grundvöllur Septemberhópsins, að listamaður- inn eigi að skapa list sem sé nýr veruleiki sem notið verði á eigin forsendum og eigi sín sérstöku lögmál. Þessi skoðun er öðru fremur samnefnari hópsins því að þar fyrir utan er um að ræða mjög svo ólíka listamenn. Septemberhópurinn efndi til nokkurra sýninga fram til ársins 1952. Þá var þörfin fyrir breið- fylkingu listamanna eins og Septemberhópsins, með jafn lítinn listrænan samnefnara og til var stofnað í upphafí, að hlutverk lit- arinnar væri ekki að líka eftir veruleikanum, var ekki raunhæf lengur. Þá komu jafnframt heim listamenn eftir nám erlendis sem aðhylltust geómetríska myndgerð og stóðu fyrir utan hópinn, eins og Hörður Ágústsson, Eiríkur Smith og Benedikt Gunnarsson. Þarmeð var kominn fram hópur listamanna í íslenskri myndlist sem á vitrænan hátt byggði upp abstrakt myndheim út frá form- rænni nýsköpun, en hafnaði í senn einföldun á þekkjanlegum form- um umhverfisins og sjálfsprott- inni tilfinningalegri tjáningu. Gunnar B Kvaran, listfræðingur: Veisla fyrir listunnendur Gunnar B Kvaran, listráðunaut- ur Kjarvalsstaða, er annar tveggja aðila sem hönnuðu yfir- litssýningu á verkum abstrakt- listamanna, sem opnar á Kjarvalsstöðum í dag. Morgun- blaðið hafði samband við Gunnar, til að forvitnast um þessa sýningu. „Menningarmálanefnd Reykjavíkur samþykkti á síðast- liðnu hausti að efna til yfirlitssýn- ingar að Kjarvalsstöðum á íslenskri abstraktlist," sagði Gunnar. „Þetta er fyrsta sýningin á þessu ári hér á Kjarvalsstöðum og þetta er í fyrsta sinn sem stað- ið er að slíkri úttekt á íslenskri abstraktlist. Það er líka einsdæmi að listasafn geri svo ítarlega út- tekt á einni tegund myndlistar. Þessi ákvörðun kom í framhaldi af annarri ákvörðun Menningar- málanefndarinnar, þe að Kjarvals- staðir skyldu sjálfir standa fyrir auknu sýningahaldi . Á þessari yfirlitssýningu yfír abstraktverk er fyrst og fremst lögð áhersla á að spanna söguna og gefa áhorfendum þarmeð heildaryfirlit yfir abstraktlist frá upphafí til vorra daga. Hér eru því verk frá 1913-14, eftir Bald- vin Bjömsson og Finn Jónsson og verk eftir Kjarval frá 3. áratugn- um. í þessu samhengi er litið á þessa einstaklinga sem einhvers konar fyrirrennara óhlutlægrar myndlistar, þar sem þeir vinna með greinilega tilvísun í raun- veruleikann. Síðan er sögunni fylgt eftir, allt til dagsins í dag. Á sýning- unni er að finna listaverk eftir listamenn af yngstu kynslóðinni, td Björgu Örvar, Rósu Gísladóttur og Ivar Valgarðsson. Til þess að gera sýninguna sem aðgengilegasta fyrir áhorfendur er henni stillt upp í tímaröð, þann- ig að listamennimir fái ákveðið samband. Við tókum eftir því hvað þeir voru að fást við lík spursmál í myndlistinni og hvað þeir komust að líkum niðurstöðum í listinni. Ennfremur fylgjumst við með því hvemig þeir öðlast smám saman persónuleg einkenni og verk þeirra fá dýpri meiningu. Þetta myndlistarform kemur fram eftir aldamótin, um 1910. Listasaga 20. aldar hefur verið mjög hlaðin af abstraktlistaverk- um, en sl 20 ár hefur aftur verið Gunnar B. Kvaran ákveðin leitun á hefðbundnum aðferðum í myndlist. Abstrakt- málverkið hefur verið mjög afskipt en nú á síðustu mánuðum eða örfáum árum hefur aftur far- ið að bera á abstraktmyndmáli, þótt við getum vart talað um ný- sköpun á þeim vettvangi. Það virðist frekar að með þessu ab- straktmálverki sé verið að endur- meta gömul gildi og sannindi í abstraktlistinni. Við getum því vænst þess að á næstu árum komi fram abstrakt- lausnir sem okkur getur ekki órað fyrir í dag. Þessi sýning er tæki- færi til að skoða abstraktlist síðustu áratuga, sjá og rifja upp um hvað var rifist og á hveiju var hneykslast fyrir 30 árum. Við höfum hér tækifæri til að endurmeta fyrri umsagnir og um leið veita áhorfendum upplýsingar sem gætu eflt, eða örvað skilning fólks á þessari myndgerð, sem er jú, óumdeilanlega, hluti af okkar umhverfí." Þú talar um rifrildi og hneyksl- un. Á hveiju var hneykslast? „Á þessum tíma, eða fyrir 30 árum, þótti fáránlegt að mynd (málverk) væri bara form og litir. Fólki þótti þetta vera klessuverk og það fólk sem gerði slíkar klessumyndir væru hinar verstu persónur. Þetta fólk áleit að myndlist ætti að vera af einhveiju og skildu ekki að myndin gæti verið veruleiki út af fýrir sig. En það er liðin tið. Þessi sýning hér á Kjarvals- stöðum hefur tvíþætt gildi. í fyrsta lagi, er svona stór og viða- mikil sýning veisla fyrir listunn- endur, einstakt tækifæri til að sjá svo ólíka listamenn samankomna, en þó innan sama myndmáls. í öðru lagi, hefur sýning sem þessi upplýsandi gildi. Þetta er myndmál sem er mörgum ákaf- lega framandi. Það er ekki nóg að hengja myndimar upp á veggi, heldur verðum við að reyna að koma öllum upplýsingum sem skilmerkilegast til áhorfandans, þannig að sýningin verði ekki ein- göngu upplifun eða skynjun, heldur líka ákveðinn skilningur á því hvemig abstrakt myndlist virkar. Þessvegna höfum við gefið út mjög veglega sýningarskrá, þar sem birtar eru greinar um íslenska abstraktlist. í þessa sýningarskrá ritar Ólafur Kvaran grein um upphaf íslenskrar abstraktlistar, Guðbjörg Kristjánsdóttir um geo- metríska og lýríska abstraktion, Halldór B. Runólfsson skrifar grein um íslenska abstraktlist síðastliðna tvo áratugi og síðan rita ég einnig grein um abstrakt höggmyndalist. Auk þessa eru í sýningarskránni viðtöl við Valtý Pétursson og Bjöm Th Bjömsson. Þessi sýningarskrá er mjög ríku- lega myndskreytt og er 96 blað- SÍður Það hefur ekki verið gerð nein úttekt á abstraktlist sfðan árið 1950, þannig að það vantar ýmis stór nöfn inn í myndlistarsöguna. Við vonum að með þeirri vinnu sem við höfum lagt í þessa sýn- ingu, bætum við að einhveiju leyti úr því. Við emm allavega komin með vísi að áframhaldi," sagði Gunnar Kvaran að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.