Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987 AF INNLENDUM VETTVANGI eftir ÓLA BJÖRN KÁRASON Með auglýsingu hámarksvaxta hefði Seðlabankinn unnið gegn stefnu ríkisstjórnarinnar Alþingi veitti undanþágu frá okurlögunum árið 1983 og staðfesti í raun að okurlögin væru úrelt STEINGRÍMUR HERMANNSSON JÓHANNES NORDAL DÓMUR Hæstaréttar í okurmálinu svokallaða kom líklegast flestum ef ekki öllum á óvart. Niðurstaða dómsins er sú að frá ágústmánuði 1984 og allt til loka árs 1985 hafi engir hámarksvextir verið í gildi og því refsiheimild okurlaganna ekki fyrir hendi. í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur orðið grundvallar breyting á stjóm peningamála, og skiptir kerfísbreytingin í vaxtamálum, sem vikið verður að síðar, mestu. Þegar í upphafi lýsti ríkisstjómin því yfír að gerðar yrðu breytingar á bankamálum og síðustu daga fyrir jólaleyfi 1983 veittu alþingismenn undanþágu frá okurlögunum. Þá þegar var mönnum orðið ljóst að okurlögin væm úr- elt. Matthías Á. Mathíesen, þáverandi viðskiptaráðherra, ætlaði að afnema okur- lögin í kjölfar aukins vaxtafrelsis, en honum vannst ekki tími til þess. Eftirmaður hans Matthías Bjamason, féll hins vegar frá þess- um áformum, eftir að okurmálið, svokallaða, kom upp í nóvember 1985. í framsöguræðu fyrir Seðlabankafrum- varpinu 5. febrúar á síðasta ári sagði viðskiptaráðherra að nauðsynlegt væri að breyta gildandi ákvæðum okurlaga til sam- ræmis við ákvæði frumvarpsins um vaxta- frelsi: “Hefur verið ákveðið að leggja til að ákvæðin verði færð í fmmvarp til vaxtalaga sem lagt verður fyrir Alþingi innan skamms. (Fmmvarpið hefur ekki enn komið fram og er raunar í vinnslu í ráðuneytinu, innsk. Mbl) Ákvæði þessa fmmvarps gera ráð fyr- ir að innlánsstofnanir muni við gildistöku nýrra seðlabankalaga njóta frelsis til að ákveða vaxtakjör sín nema Seðlabanki telji nauðsynlegt að nota heimild sína í 10 gr. seðlabankafrv. (Með því getur bankinn grip- ið inn í vaxtaákvarðanir ef vaxtamunur verður óhóflegur eða raunvextir hærri en í viðskiptalöndum, innsk. Mbl) Að öðm leyti verði lánamarkaðurinn bundinn í vaxtaák- vörðunum sínum af hæstu útlánsvöxtum banka og sparisjóða eins og þeir verða skráðir hjá Seðlabanka á hverjum tíma nema sérlög mæli á annan veg.“ Okurlög og vaxtafrelsi ósamrýmanleg Yfirlýsingar Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra, vegna dóms Hæstaréttar hafa verið óvenjulegar. Hann hefur sakað yfírmenn Seðlabankans um vanrækslu og í fyrstu krafðist hann opinberrar rannsóknar á starfsemi bankans, en hann hefur tekið hefur verið óvenju harðorður í garð Seðlabankans, en hann telur bankann bera ábyrgð á því hvernig fór f okurmálinu. Ef Seðlabankinn hefði ákveðið og auglýst hámarksvexti hefði hann verið að vinna gegn stefnu og vilja ríkisstjórnarinnar. um og hallarekstrar í ríkisbúskapnum og hins vegar vegna samdráttar í afla og erfið- leika á útflutningsmörkuðum. Aðgerðir stjómarinnar í ríkisfjármálum, peninga- og lánamálum miðuðu að því að draga úr þenslu, með því að fresta ríkis- framkvæmdum, lækka útgjöld ríkis, breyta skipulagi í ákvörðun vaxta, eins og síðar verður vikið að, hækka almenna sparisjóðs- vexti um 2%, auka heimild Seðlabankans til innlánsbindingar, sem þó var ekki nýtt, og takmarka erlendar lántökur innlánsstofn- ana. Með breytingum á vöxtum átti að hvetja til aukins spamaðar og draga úr útlánum til neyslu og fjárfestingar. Þá var auknu lánsfé beint til útflutningsatvinnu- veganna, með tilfærslu afurðalána til bankanna og þau hækkuð. Auk þessa vom ýmsar ráðstafanir gerðar í málefnum sjávar- útvegsins, sem ekki verða raktar hér. Ríkisstjórnin gekk lengra í fréttatilkynningu ríkisstjómarinnar seg- ir um vexti: „Ríkisstjómin vill hvetja til aukins spamaðar og er því samþykkt að Seðlabankinn hækki vexti af almennum sparisjóðsbókum tímabundið um 2%. Jafn- framt veitir Seðlabankinn innlánsstofnunum svigrúm til sjálfstæðrar ákvörðunar annarra innlánsvaxta og útlánasvaxta, en þess verði þó gætt, að þetta leiði ekki til aukins vaxt- amismunar. “ Samkvæmt þessu var bönkum og spari- sjóðum heimilt að ákveða inn- og útláns- vexti, að undanskildum almennum spari- sjóðsbókarvöxtum, vöxtum afurðalána og dráttarvöxtum, sem Seðlabankinn ákvað. Ákvarðanir innlánsstofnana vom þó háðar samþykki Seðlabanka. Seðlabankinn ákvað Árangur af f rjálsrœAinu 1984 kom m.a. annars f ram í því að sparifó bar í fyrsta skipti jákvœða raunvexti f heild frá sjöunda áratugnum. Vextir af almennum sparisjóðsbókum voru neikvœðir um 16% árið 1982 og um 21,8% 1983. Árið eftir voru þeir jákvæðir um 1,2°/o, en 1985 neikvæðir um 12% og á síðasta ári um 2,8%. þá kröfu til baka. Forsætisráðherra er ekki sjálfum sér samkvæmur og bera yfírlýsing- ar hans keim af komandi kosningabaráttu og endurspegla skoðanaágreining innan ríkisstjómarinnar. Ætlun viðskiptaráðherra um að afnema okurlögin ber þess vitni að menn gerðu sér grein fyrir því að ákvæði þeirra laga og frelsi innlánsstofnana í vaxta- málum em ósamrýmanleg. Þetta var eða mátti öllum vera Ijóst, ekki síst ráðhermm. Ríkisstjómin samþykkti á fundi 30. júlí 1984 umfangsmiklar ráðstafanir í efnahags- málum. Þrátt fyrir mikinn árangur undan- gengna 12 mánuði, vom blikur á lofti. Fyrstu sex mánuði ársins hafði innflutning- ur aukist meira en reiknað hafði verið með og vom horfur á að viðskiptahalli yrði 4% af þjóðarframleiðslu í stað 2%, eins og fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þetta ásamt erfiðleik- um í sjávarútvegi, einkum togaraútgerðinni, knúði ríkisstjómina til aðgerða. Mikill við- skiptahalli og erfíðleikar í sjávarútvegi stefnu að óbreyttu árangri í efnahagsmálum í hættu. í fréttatilkynningu ríkisstjómarinnar 30. júlí segir að orsakir þessa vanda séu annars vegar vaxandi eftirspurnarþensla innan- lands, vegna jafnvægisleysis í peningamál-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.