Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 64
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
VERÐ t LAUSASÖLU 50 KR.
Samningamir víð-
ast hvar samþykktir
Mörg fiskiskip héldu til
veiða ígærkvöldi eftir að
úrslit í atkvæðagreiðslu sjó-
manna lágu fyrir. Sjómenn
á stórum skipum ogsmáum
um allt land kepptust ígær
viðað gera klárt tilað halda
á veiðar að nýju. Myndin
er tekin við Reykjavikur-
höfn.
ísfirskir sjómenn felldu,
Bolvíkingar frestuðu verkfalli
Sjómannasamningarnir voru samþykktir af öllum samn-
ingsaðilum í gær, utan Sjómannafélags ísafjarðar sem
felldi þá. Fyrstu skipin héldu til veiða seint í gærkvöldi
og var búist við að mörg færu í nótt. Búist er við að fiski-
skipin haldi almennt til veiða i dag, ef veður leyfir.
1.179 félagar í Sjómannasam-
bandi íslands tóku þátt í allsheijar-
atkvæðagreiðslu um samningana.
685 sögðu já (58%), 480 sögðu nei
(41%) og 14 atkvæðaseðlar vorú
auðir eða ógildir. í atkvæðagreiðslu
yfirmanna innan Farmanna- og
fískimannasambandsins sögðu 453
já (73%), 159 nei (26%) en 11 at-
kvæðaseðlar voru auðir.
Atkvæði voru talin sameiginlega
hjá sjómönnum um allt land nema
á Vestfjörðum, þar fór talning fram
hjá hveiju félagi.
Sjómenn í Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Bolungarvíkur hafa
frestað áður boðuðu verkfalli um
óákveðinn tíma. Á fundi sjómanna
var ekki tekin afstaða til samning-
anna, enda hafa samningamenn
Bolvíkinga ekki skrifað undir þá.
Hins vegar var öllum gögnum um
samningana dreift til trúnaðar-
manna sjómanna, en einn slíkur
er um borð í hveiju skipi. í gær-
kvöldi átfu a.m.k. Dagrún og
Heiðrún að fara til veiða og munu
sjómenn greiða atkvæði um borð.
Talning hefst því ekki fyrr en sjó-
menn koma aftur í land. Ef
samningamir verða þá felldir mun
verkfall skella á fyrirvaralaust.
Á Patreksfirði voru samningam-
ir samþykktir með 30 atkvæðum
gegn 1, á Flateyri vom þeir sam-
þykktir með eins atkvæðis mun,
11-10.
Yfírmenn á Vestfjörðum, í Bylgj-
unni, samþykktu samningana með
52 atkvæðum gegn 12, en undir-
menn felldu þá með 28 atkvæðum
gegn 22. Fundur verður haldinn á
Isafirði þar sem samninganefnd
sjómannafélagsins segir af sér og
kosin ný. „Þeir sem eru óánægðir
verða að leysa þetta," sagði Sigurð-
ur Finnbogason, einn af forystu-
mönnum sjómanna, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Stjóm Landssambands íslenskra
útvegsmanna samþykkti samning-
ana. Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði í gærkvöldi, þegar úrslit
í atkvæðagreiðslu sjómanna lágu
fyrir: „Ég lýsi ánægju minni með
að sjómenn skuli hafa samþykkt
þá samninga sem forystumenn
þeirra gerðu. Þetta eru góðir samn-
ingar fyrir þá, auk þess sem með
þeim eru viðurkenndir mikilsverðir
sameiginlegir hagsmunir útgerðar-
manna og sjómanna. Jafnframt
harma ég að sjómenn á ísafirði
skuli hafa fellt samningana, en
vona bara að þeir sjái að sér þegar
þeir sjá hvað einangraðir þeir eru
í afstöðu sinni.“
Veður og' vélarbilanir
settu flug úr skorðum
EKKI mátti miklu muna í
Reykjavíkurhöfn í gær-
Konu leitað
á Botnsheiði
UMFANGSMIKIL leit hófst í
gærkvöldi að fullorðinni konu
á Botnsheiði, sem er á milli
Súgandafjarðar og ísafjarðar.
Vegiirinn á Botnsheiði er
ófær, en konan ætlaði að
ganga á milli bila á heiðinni.
Konan, sem er frá Suðureyri,
var á leið til ísafjarðar. Hún lét
aka sér upp á heiðina eftir hádeg-
ið í gær og hugðist ganga ófæra
kaflann að bfl sem beið Isafjarð-
armegin. Hún kom ekki fram á
tilsettum tíma og var þá farið
að svipast um eftir henni. Meðal
annars var farið á snjóbíl Hjálp-
arsveitar skáta á ísafirði upp á
heiðina og um kvöldmatarleytið
var hafin leit. Konan var ekki
fundin seint í gærkvöldi, þegar
blaðið hafði síðast spurnir af, en
þá var að heíjast umfangsmikil
leit sem björgunarsveitir ná-
grannabæjanna tóku þátt í.
Veður var slæmt á þessum slóðum.
kvöldi þegar landfestar
togarans Þryms slitnuðu.
Togarinn var mannlaus en
ein taug hélt og tókst að
ná honum aftur að bryggju.
Erfiðleikar voru í innanlands-
flugi síðdegis í gær vegna veðurs
suðvestanlands. Rok var og 8—10
vindstig. Flugleiðir þurftu að af-
lýsa tveimur ferðum til Akur-
eyrar, einni til Húsavíkur og einni
til Sauðárkróks. Þá var ekkert
flogið til Isafjarðar og Vest-
mannaeyja í gær. Ekki verður
eins hvasst í dag, en kaldara.
Enska knattspymuliðið Wat-
ford lenti í smávægilegu ævintýri
á leið sinni til landsins. Flugleiða-
vél sem þeir voru farþegar í bilaði
og varð að lenda í Glasgow. Sér-
stök vél var send til að ná í
farþegana og var hún væntanleg
til landsins snemma í morgun,
þannig að leikurinn á að geta
hafist á gervigrasinu í Laugardal
á tilsettum tíma í dag, klukkan
13. Heimsókn ensku knattspymu-
mannanna hingað til lands á
þessum árstíma hefur vakið mikla
athygli í Bretlandi.
Húsnæðisstof nun:
600 lánsloforð hafa ver-
ið send umsækjendum
Þau fyrstu koma til greiðslu 1. mars
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins verður um næstu mánaðamót búin
að senda út bréf til allra þeirra umsækjenda sem sóttu um hús-
næðislán í september, október og nóvember. „Þá höfum við náð
endum saman miðað við nýju vinnureglurnar og tveggja mánaða
afgreiðslukerfið í reynd komið til framkvæmda," sagði Sigurður
E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar í gær.
Húsnæðisstofnun hefur nú gefið
út 600 lánsloforð auk 7—900 bréfa
með beiðni um frekari gögn. Láns-
loforðin eru dagsett til greiðslu í
ár og á næsta ári. Fyrstu láns-
loforðin koma til greiðslu 1. mars,
en það er út á hluta af þeim um-
sóknum sem Húsnæðisstofnun tók
við dagana 1.—3. september.
Búið er að fara tvisvar yfir allar
umsóknir, sem bárust til stofnunar-
innar í september. Eftir um það bil
viku verður búið að senda út bréf
til allra þeirra sem lögðu inn um-
sóknir í október og um mánaðamót-
in verður búið að senda bréf til allra
senda bréf til allra þeirra sem sóttu
um húsnæðislán í nóvember.
Nýju húsnæðislánin, þau sem
verða veitt í janúar—mars, eru á
bilinu 1.206—2.461 þúsund krónur.
Hámarkslánið er 2.461 þúsund
krónur, en það er veitt út á nýbygg-
ingar, til fólks sem ekki á íbúð
fyrir. Fólk sem á íbúð fyrir fær
1.723 þúsund króna lán ef það
ræðst í nýbyggingu. Sama lán er
veitt þeim sem ekki eiga íbúð og
kjósa að kaupa eldri íbúð. Lægsta
lánið, 1.206 þúsund krónur, er veitt
út á kaup á eldri íbúð til fólks sem
á íbúð fyrir.