Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
45
Aldarminning:
Friðbjörn Níels-
son, Siglufirði
Einn þeirra manna, sem mót-
uðu Siglufjarðarbæ, stóð í
eldlínunni meðan sveit varð að
kaupstað, var Friðbjörn Níels-
son, kaupmaður og síðar
bæjargjaldkeri í Sigtufirði.
Hann hefði átt aldarafmæli í
dag, 17. janúar 1987, hefði hann
lifað. Það er því við hæfi að
minnast hans með nokkrum orð-
um.
Það má með sanni segja, að það
sé mikil gæfa hverjum manni að
fæðast heilbrigður á sál og líkama
og viðhalda heilbrigði sinni til ævi-
loka. Þeir, sem slíkt hnoss hljóta,
ætti að verða allt auðveldara í
lífsbaráttunni en hinum, sem berj-
ast við heilsuleysi eða fötlun alla
ævi.
Þess eru þó mörg dæmi að þeir,
sem við ævilanga líkamlega fötlun
stríða, eigi það sálarþrek og þá
viljafestu, að verða jafnokar hinna
heilbrigðu.
Einn þessara manna, sem mér
er minnisstæður, er Friðbjörn
Níelsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi
og bæjargjaldkeri í Siglufírði.
Hann var fæddur á Hallandi á
Svalbarðsströnd. Foreldrar hans
voru Níels Friðbjarnarson, bóndi á
Hallandi, Sigurðssonar söðlasmiðs
í Brekku í Kaupangssveit, Jónsson-
ar bónda sama stað, - og Anna
Sigurleif Björnsdóttir, bónda á
Svertingsstöðum í Kaupangssveit,
Guðmundssonar bónda á sama
stað, Jóhannessonar bóhda í
Grenivík.
Foreldrar Friðbjamar bjuggu að
Hallandi sína búskapartíð, eignuð-
ust átta börn og var Friðbjörn
elstur þeirra.
í fyrstu bemsku tók Friðbjöm
veiki, sem dró úr eðlilegum líkams-
vexti og varnaði honum að ná
fullkomnu líkamlegu atgeríí. Varð
hann, unglingurinn, ófær til allrar
líkamlegrar áreynslu.
Fjárhagsaðstæður foreldra
hans, með sjö börn í ómegð, vom
ekki burðugar. En með aðstoð
góðra manna komst Friðbjörn í
læri til Guðlaugs Sigurðssonar og
Valdimars Gunnlaugssonar, skó-
smiða á Akureyri. Að námi loknu
vann hann við iðn sína á Akureyri
um tíma.
Sumarið 1906, um það leyti er
þéttbýli tekur að myndast í Siglu-
firði, kemur hann fyrst þangað og
dvelur þar á sumrum það ár og
hið næsta. Árið 1906 sest hann
hér alfarið að og stundar iðn sína
eingöngu fyrst framan af, en setur
síðan á fót verzlun með margskon-
ar vörur, m.a. byggingarvörur, sem
var þá eina verzlun þeirrar tegund-
ar hér í bæ. Verzlun sína rak
Friðbjörn í Vetrarbraut 5, en það
hús var rifið fyrir nokkru.
Þá rak Friðbjöm einnig bóksölu
og stofnsetti bókaútgáfuna Heim-
dall, sem starfrækt var um árabil.
Árið 1915 verða þáttaskil í lífi
Friðbjarnar, en það ár fer hann
fyrir alvöru að skipta sér af opin-
berum málum í Siglufirði. Er
þáttur hans í menningar- og öðrum
framfaramálum Siglufjarðar all-
merkilegur. Hann fer til Dan-
merkur það ár og festir m.a. kaup
á prentvél, sem hann kemur með
til Siglufjarðar. Hann gengst fyrir
stofnun prentsmiðjufélags. Um
haustið hefur hann, ásamt Hann-
esi Jónassyni bóksala, útgáfu
blaðsins Fram, en fyrsta tölublað
þess kom út 22. nóvember 1916,
og var það fyrsta blað gefið út í
Siglufirði. Þeir félagar héldu blað-
inu út í tvö til þtjú ár en seldu það
síðan öðrum. Fram var vikublað,
sem kostaði 10 aura, en hefur trú-
lega verið og stórt fyrir ekki stærra
byggðarlag, en Siglufjörður var
þá með 1190 íbúa.
En Friðbjöm lét ekki deigan
síga. Árið 1923 stofnaði hann ann-
að blað, Siglfirðing. Það blað
kemur enn út og gegnir sama hlut-
verki og frá upphafi, að vera
málgagn Sjálfstæðisflokksins á
staðnum. Árið eftir stofnun Sigl-
firðings ræðst hann í að gefa út
„TILRAUN til daglegs frétta-
blaðs" í Siglufirði, er flutti stað-
bundnar fréttir og svonefndar
„símafréttir", m.a. frá Alþingi. Til-
raun þessi stóð ekki lengi. Menn
vom tómlátir gagnvart hug-
kvæmni og framtaksemi af þessu
tagi. Mér er til efs að tilraun til
útgáfu fréttablaðs, sem koma átti
út daglega, hafi fyrr verið gerð
hér á landi, utan Reykjavíkur.
Friðbjöm var kjörinn í fyrstu
bæjarstjórn Siglufjarðar, en stað-
urinn fékk kaupstaðarréttindi
1918 og var bæjarfulltrúi um all-
langt skeið. Hann hafði áður setið
í hreppsnefnd. Hann lagði virka
hönd á margvísleg framfaramál,
sem þá vom í deiglu, enda sigl-
firskt samfélag I mótun.
Friðbjöm var sjálfmenntaður í
besta lagi. Átti margt góðra bóka
og las Norðurlandamál. Hann gekk
að vísu aldrei heill til skógar,
líkamlega, en bjó að sálarþreki og
góðum gáfum. Var glöggskyggn á
menn og málefni ótrúlega vel að
sér í lögum, sem kom sér vel, ekkj
sízt eftir að hann tók við starfi
bæjargjaldkera. Tölvísi hans var
og við bmgðið og minnið var trútt.
Leituðu seinni tíma bæjarfulltrúar
oft til hans varðandi lögfræðileg
efni.
Þegar ég kynntist Friðbimi
bæði sem bæjargjaldkera og ötul-
um talsmanni Sjálfstæðisflokksins
fylltist ég hrifningu á þessum
óvenjulega manni, sem hafði unnið
sér virðingu og aðdáun samtíðar-
manna sinna fyrir óvenjulega
starfsorku ogtrúmennsku í starfi.
Friðbjörn kvæntist Sigríði Stef-
ánsdóttur frá Móskógum árið
1918, hinni ágætustu konu, sem
studdi mann sinn í blíðu og stríðu.
Sigríður dvelur nú á Sjúkrahúsi
Sigluíjarðar á 92. aldursári. Börn
þeir em: Níels, fyrverandi banka-
starfsmaður, Kjartan, kaupsýslu-
maður og endurskoðandi, Ánna
Margrét, umboðmaður Olíuverzl-
unar íslands í Vestmannaeyjum,
Stefán, fyrverandi bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks og bæjarstjóri í
Siglufirði - nú þingfréttamaður
Morgunblaðsins, Jón Kolbeinn, fyr-
verandi bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalags og formaður Vöku í
Siglufirði, og Jóhann Bragi, af-
greiðslumaður.
Friðbjörn lét af störfum hjá
Siglufjarðarkaupstað 1947 vegna
sjúkleika og andaðist mánudaginn
13. október 1952, aðeins 65 ára
að aldri.
Þegar saga Siglufjarðar verður
skráð, sem vonandi verður á næstu
ámm, verður það ekki gert svo vel
sé, nema minnst verði þessa litríka
persónuleika, sem var einn af
brautryðjendum í framfara- og
menningarmálum Siglufjarðar.
Hann verður og lýsandi tákn til
eftirbreytni þeim, sem við líkam-
lega fötlun eiga að búa, að gefast
ekki upp, heldur berjast til þrautar
- því þrautsegja og vilji skipta
mestu máli.
Siglufírði í janúar 1987.
Óli J. Blöndal
(Heimild: Blaðið Siglfirðingur).