Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987 ísrael: Vinsældir stjórnar- innar fara dvínandi Tel Aviv, AP. VINSÆLDIR ríkisstjórnar ísra- els hafa minnkað verulega frá því Yitzhak Shamir, leiðtogi Likud-bandalagsins, tók við for- sætisráðherraembættinu fyrir þremur mánuðum. Kemur þetta Bretland: Enginn árangur af Gíbraltar- viðræðum - segir Francisco Femandez Ordonez, utanríkisráðherra Spánar London. Reuter. SPÆNSK stjórnvöld hafa varað við þvi, að samskipti Spánar og Bretlands geti beð- ið hnekki, takist ekki að leysa aldagamla deilu landanna út af yfirráðum á Gíbraltar. „Að mínum dómi varð enginn árangur af þessum fundum," sagði Francisco Fernandez Or- donez, utanríkisráðherra Spán- ar, á fundi með fréttamönnum, eftir að tveggja daga viðræðum hans við breska utanríkisráð- herrann, sir Geoffrey Howe, Iauk á miðvikudag án þess að samkomulag næðist. „Það er ákaflega óeðlilegt, að aðildarþjóð NATO skuli reka nýlendu í landi annarrar aðildar- þjóðar sömu samtaka," sagði spænski utanríkisráðherrann, áður en hann hélt tómhentur heim á leið. „Gíbraltarhöfðinn mun að öllu óbreyttu varpa skugga á sam- skipti Englands og Spánar, bæði tvíhliða samstarf landanna og samstarf þeirra innan NATO og Evrópubandalagsins," sagði Or- donez. Bresk stjómvöld kváðu við- ræðumar hafa verið vinsamleg- ar og opinskáar, en oddviti stjómarinnar á Gíbraltar, Sir Joshua Hassan, sem tók þátt í viðræðunum, sagði, að aðeins sárafáir íbúanna þar mundu kjósa að gangast undir stjóm Spánverja. í allsherjaratkvæða- greiðslu, sem fram fór á Gíbralt- ar 1967, kaus yfirgnæfandi meirihluti áframhaldandi stjóm Breta. fram í skoðanakönnun sem birt var í gær. 46% aðspurðra kváðu ríkisstjóm- ina standa sig vel en í skoðanakönn- un, sem birt var í september þegar Shimon Peres var forsætisráðherra, svöruðu 62% þeirri spumingu ját- andi. Könnunin var gerð um áramótin og tóku 1.200 manns þátt í henni. Fram kom að ísraelar voru einkum óánægðir vegna framgöngu ríkisstjómarinnar á sviði efnahags-, utanríkis- og félagsmála. í könnuninni kom einnig fram að Likud-bandalagið myndi fá 27 þingsæti ef gengið yrði til kosninga nú. í síðustu kosningum árið 1984 fékk flokkurinn 36 þingmenn kjöma. Verkamannaflokkur Shim- ons Peres fengi 38 þingmenn, einum færri en flokkuripn hefur nú. 120 þingmenn sitja á ísraelsþingi. ij ■'v-'' ftf V»« ip; ft, - f :M* m ^ $ Íií*»**»*i iSáS&tBSBttmíí&imwlmSzGKSSfa&SmmÍmn w f/ Fannfergi í austurrísku Ölpunum. Evrópa: Fómarlömb kulda- kastsins a.m.k. 233 Madríd, London, Bonn, Brttssel. Reuter, AP. EKKERT lát er á erfiðleikum vegna kuldakastsins í Evrópu og eru fórnarlömb þess nú talin a.m.k. 233. Óttast er að veðurfar- ið muni hafa áhrif á þátttöku í kosningunum í Vestur-Þýska- landi, sem fram eiga að fara 25. janúar og sagði forseti þingsins, Philipp Jenninger, að aldrei ætti aftur að ráðgera vetrarkosning- ar þar í landi. Flutningabíll hlaðinn 61 málverki eftir Pablo Picasso, sem metin eru á 24 millj- ónir dollara (um 960 milljónir ísl.), festist í snjó skammt frá borginni Guadalajara á Spáni á fimmtudag, er verið var að flytja þau til Frakklands. í Rúmeníu biðu 10 verkamenn bana og 47 særðust er þak á verk- smiðjuhúsi í bænum Satu Mare féll saman á fimmtudag, vegna snjó- þungans er á því hafði hvílt. Bresk hjón fundust látin í húsvagni skammt frá borginni Bordeaux í Frakklandi á fímmtudag, ekki var vitað hvort þau höfðu frosið í hel eða orðið gaseitrun að bráð. Að sögn AP fréttastofunnar hafa 77 farist í Sovétríkjunum í þessu kuldakasti, 10 í Rúmeníu, 14 í Ungveijalandi, 1 í Júgóslavíu, 36 í Póllandi, 34 í Bretlandi, 23 í Frakk- landi, 2 í írlandi, 6 í Vestur-Þýska- landi, 11 á Spáni, 1 í Portúgal, 3 í Hollandi, 1 í Belgíu, 3 í Grikk- landi, 2 á Ítalíu, 2 í Danmörku, 2 í Sviss og 1 í Austurríki. Þar að auki er óttast um líf fjögurra drengja í Tékkóslóvakíu sem höfðu verið við leik á ísilagðri á. Öll umferð skipa í Tékkóslóvakíu um Dóná stöðvaðist þar sem áin var ísilögð. í Vestur-Þýskalandi sprengdu sérfræðingar hersins ís á Saxelfi við Hamborg þar sem vatns- borðið hafði hækkað vegna ísstíflu og var álitið að 15.000 manna byggð væri í hættu. í Bretlandi hlýnaði smávegis í gær og urðu þá víða vatnsskemmdir er vatn lak úr sprungnum vatnsleiðslum. Gripið hefur verið til umfangsmikilla að- gerða í Bretlandi og Frakklandi til að aðstoða heimilislaust fólk. Framkvæmdanefnd Evrópu- bandalagsins (EB) tilkynnti á fímmtudag að 2,75 milljónum doll- ara (um 110 millj. ísl. kr.) úr sérstökum neyðarsjóði, yrði varið til að hjálpa þeim er illa eru stadd- ir vegna kuldanna. Verið er að undirbúa áætlun, er lögð verður fyrir fund landbúnaðarráðherra bandalagsins nk. mánudag, um dreifingu matvæla til hinna bág- stöddu. Er ætlunin að matvælin verði tekin af hinum miklu um- frambirgðum sem til eru í EB- löndunum. Bandaríkin: Níu ára útflutningsbanni til Sovétríkjanna aflétt Washingfton, AP. Bandaríkjastjórn hefur ákveð- ið að aflétta banni við útflutningi á olíuborum og öðrum útbúnaði, sem nauðsynlegur er við olíu- og gasvinnslu, til Sovétríkjanna. Að sögn Malcolms Baldridge, við- skiptaráðherra Bandaríkjanna, er þetta gert til að styrkja stöðu bandariskra iðnfyrirtækja, sem eiga nú undir högg að sækja sök- um samkeppni erlendis frá. Úflutningsbannið var sett í tíð Bandaríkin: Verður fyrsta alnæm- islyfið samþykkt? Dregur úr sjúkdómseinkennum en læknar ekki Rockville, Maryland. AP. BANDARÍSKA lyfjaeftirlitið ætlaði í gær að ræða um og jafnvel taka afstöðu til nýs al- næmislyfs, sem kallast azt. Segja framleiðendur þess, að það vinni ekki bug á alnæmis- veirunni, heldur dragi úr sjúkdómseinkennunum. Ráðgjafamefnd lyfjaeftirlitsins boðaði í gær til fundar, sem standa átti daglangt en ekki var vitað með vissu hvort gengið yrði til atkvæða um nýja lyfið, azt eða azidothymidine. 30. september sl. leyfði nefndin auknar tilraunir með þetta lyf en þá hafði komið í ljós, að það dró úr sjúkdómsein- kennum sumra alnæmissjúklinga. Átti það einkum við um þá, sem þjáðust af fágætri lungnabólgu- tegund en hún leggst á um helming alnæmissjúklinga. Þeir, sem fengu lyfíð, sýktust auk þess sjaldnar af öðrum sjúkdómum og krabbameini. Sá böggull fylgdi skammrifí, að lyfið veldur blóð- leysi og dregur úr beinmergs- myndun. Dr. Anthony S. Fruci, yfírmað- ur ofnæmis- og smitsjúkdóma- stofnunar ríkisins, sagði í gær á fundi einnar nefndar öldunga- deildarinnar, að tilraunir með bóluefni gegn alnæmi gætu hafist á þessu ári eða snemma næsta árs en þó væri viðbúið, að fímm ár liðu enn áður en það yrði al- mennt fáanlegt. Þvi er spáð, að’ árið 1991 muni 270.000 Bandaríkjamenn hafa sýkst af alnæmi og að 179.000 verði fallnir í valinn. Útgjöld þjóð- arinnar vegna sjúkdómsins eru þá talin munu verða á bilinu átta til sextán milljarðar dollara á ári. Carters Bandaríkjaforseta í mót- mælaskyni við mannréttindabrot Sovétstjómarinnar. Baldridge sagði í gær að bannið hefði glatað til- gangi sínum, þar eð Sovétmenn gætu nú keypt sams konar útbúnað frá öðrum iðnríkjum. Embættis- menn í bandaríska iðnaðarráðu- neytinu og forráðamenn fyrirtækja fögnuðu því í gær að unnt yrði að heija sölu á olíuborum til Sovétríkj- anna á ný, en talið er að tap iðnfyrirtækja vegna bannsins nemi alls tveimur milljörðum Banda- ríkjadala. Sögðu forráðamenn fyrirtækjanna að störfum við iðn- framleiðslu • kynni að fjölga um 46.000 í kjölfar þessa. Sérfræðing- ar bentu hins vegar á að ekki væri tryggt að Sovétmenn kærðu sig um að kaupa varning þennan frá Bandaríkjunum. Malcolm Baldridge sagði ekki unnt að nota útbúnað þennan í hemaðarlegum tilgangi og bætti við að bann við útflutningi á tækja- búnaði til hemaðamota væri að sjálfsögðu enn í gildi. Bandaríkjastjóm leggur nú höf- uðáherslu á að bæta samkeppnis- stöðu bandarískra iðnfyrirtækja ( því skyni að draga úr gífurlegum viðskiptahalla, sem nam 170 millj- örðum dala á síðasta ári. Þá hyggst stjómin einnig koma í veg fyrir að Bandaríkjaþing samþykki lög um viðskiptahöft en slíkri lagasetningu er Reagan forseti andvígur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.