Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
55
Á æfingu hjá Ríó Tríói. Frá vinstri: Ólafur Þórðarson, Ágúst Atlason, Gunnar Þórðarson og Helgi
Pétursson.
RíóTríó
enn á ferð
Það er vart ofmælt að segja
að hljómsveitin Ríó Tríó hafi
verið meðal hinna alvinsælustu
hér á landi. Eftir langan og mik-
inn frægðarferil lagði hún upp
laupana, en í hitteðfyrra tóku þeir
félagar höndum saman á ný og
slógu svo sannarlega í gegn í veit-
ingahúsinu Broadway, þar sem
þeir komu fram ásamt um 20
manna hljómsveit.
Nú berast þær fregnir að hljóm-
sveitin sé enn einu sinni að leggja
í hann og hafði blaðið samband
við Helga Pétursson og spurði
frétta.
Hvað kemur til að þið eruð að
byija á ný?
„ Við höfum mikið verið spurðir,
svona prívat og persónulega,
hvort við værum ekki tilíaðkoma
á árshátíðir og einkasamkvæmi
til þess að skemmta — og þá bara
við fjórir með kassagítarana og
bassann. Því miðurhöfum við
þurft aðslá hendinni á mótiþess-
um boðum, þarsem menn hafa
verið misuppteknir við önnur verk-
efni, íútlöndum o.s.frv. Nú er
hins vegar svo komið að við erum
lausir og liðugir og þá er ekki um
annað að gera en að hella sér út
í „bransann“.“
En hvað verður á dagskránni —
eitthvað svipað ogíBroadway?
„Nei, nei. Þetta verður miklu
lausar í reipunum en það. Nú erum
við bara fjórir og getum gert allar
kúnstir. Við verðum með þjóðleg-
an brag á þessu — ekki síst með
tilliti til Þorrablótanna, sem nú
fara í hönd — tökum lagið með
fólkinu og að sjálfsögðu er grínið
aldrei langt undan. Annars getum
við spilað hvað sem er, bara eins
og fólk vill.“
En hvað voruð þið lengi íBroad-
way?
„ Við vorum frá nóvember og
fram í júní. Blessaður vertu, þetta
stóð miklu lengur en okkur hafði
nokkru sinni komið til hugar."
Hvað komu margir í allt að sjá
ykkur?
„Jah, það hefur nú aldrei verið
tekið saman held ég. En það sagði
einhver við mig að líklega hefðu
um 30.000 manns séð okkur. Ég
þori nú ekki að halda þeirri tölu
á lofti þar sem að reikningsað-
ferðimar voru nú ekki þær
Nigel Callaghan, einn af
hinum þekktu leikmönn-
um Watford.
ábyggilegustu, en ég hugsa að
þær séu ekki mjög fjarri lagi.“
En það sem þið eruð að gera
núna; er þetta einhver endurvakn-
ing á þvísem þið voruð að gera
ígamla daga?
„Já, þetta er sams konar músík
og við vomm með þá og ekki
ósvipað fyrri hluta dagskrárinnar
í Broadway.
Hversu lengi ætlið þið að halda
áfram?
„Núna ætlum við að spila fram
á vor og hvenær við hættum veit
ég ekki. Meðan við og áheyrendur
hafa gaman af þessu höldum við
áfram."
úrvalsliðið leikurá gervi-
grasvellinum í Laugar-
dal á laugardag
kl.
SJÓNVARPIÐ
inear
Rokkar
auglýsir eftir
hugmyndaríku, hressu og
dugmiklu fólki til umsjónar
unglingaþáttunum
Rokkarnir geta ekki þagnab og
Unglingarnir í frumskóginum.
Umsækjendur þurfa
að geta starfað sjálfstætt
og með öðrum að
þáttagerð og hafið
starfið nú þegar.
Hafir þú áhuga þá liggja
umsóknareyðublöð frammi í
símaafgreiðslu sjónvarpsins
Laugavegi 176.
Umsóknarfrestur rennur út
föstudaginn 23. janúar næstkomandi.
SJONVARPIÐ
U wVtMtWFV f F'Tfl-TT HfltfMSVPHn
l -f Ff ¥f f f f 'f 11 i 4 Itlt
ww***w*»***Si~