Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987 29 Chile: Aflétt banní við starf- semi stjórnmálaflokka Santiago, AP. Herforingjastjórnin í Chile samþykkti í gær lög, sem munu heimila stjórnmálaflokkum að starfa í landinu. Þar með verður aflétt 13 ára banni við stjórn- málastarfsemi í landinu. Margir stjómmálamenn í Chile lýstu í gær yfir megnri óánægju með lögin. Heimilt er að mynda stjórnmálasamtök ef ströngum reglum stjómvalda varðandi skipu- lag og rekstur þeirra er fylgt. Flokkum verður ekki heimilt að þiggja fjárstuðning erlendis frá og stjómvöld verða að samþykkja nöfn þeirra. Ennfremur er kveðið á um að nýir formenn verði kjömir á þriggja ára fresti. Þá er flokkunum skylt að láta yfírvöldum í té nöfn allra meðlima. Marxískum flokkum verður ekki heimilt að starfa. „Þeir flokkar sem heimilt er að stofna samkvæmt þessum lögum em flokkar sem stjómvöld vilja starfrækja. Ekki verður um að ræða samtök fijálsra einstaklinga," sagði Carlos Briones, leiðtogi sósíalista- flokksins. Herforingjastjómin bannaði starfsemi stjórnmálaflokka eftir að hún rændi völdum árið 1973. Hins vegar lagðist ekki öll stjórnmála- starfsemi niður í landinu. Hinir ýmsu flokkar hafa starfað leynilega og hafa stjórnvöld ekki séð ástæðu til að hefta starfsemi þeirra frekar. Ameríkubikarinn: Svíþjóð: Vildi játa á sig morðið á Palme AP/Símamynd Áströlsku skúturnar Australia IV (fjser) og Kookaburra III sigla hnífjafnar í undanúrslitum Ameríkubikarsins. Náði síðarnefnda skút- an síðan forystu og hélt henni alla leið í mark. - en var sleppt eftir yfirheyrslur Stokkhólmi, frá Erík Liden, fréttarítara Morgunbladsins. LÖGREGLAN í Stokkhólmi sleppti í gær rúmlega fertugum manni, sem bar það upp á sjálfan sig að hafa myrt Olof Palme. Gat hann ekki sýnt fram á, að hann hefði verið á eða nálægt morðstaðnum 28. febrúar í fyrra og því síður bent á morðvopnið. Maðurinn var í yfirheyrslum hjá skamms láta fara frá sér skýrslu lögreglunni vegna þess, að hann hafði haft í hótunum um að myrða bæði núverandi og fyrrverandi ráð- herra en Palme var þó ekki á meðal þeirra. I flestum morðmálum, sem mikla eftirtekt vekja, skjóta upp kollinum menn, sem vilja gangast við þeim þótt yfirleitt sannist að þeir hafi hvergi nærri komið. Palmenefndin mun innan um rannsókn málsins og er það haft fyrir satt, að þar muni margir fá illa útreið. Lögreglan og herinn munu harðlega gagnrýnd fýrir slæ- legan viðbúnað og einnig slök fréttamennska ríkisútvarpsins og sjónvarpsins. Þar á bæ hafa menn þó tekið sér nokkurt tak því nú er fréttum útvarpað á klukkustundar- fresti alla nóttina. Dicksqn vann þnðja einvígið við Conner Australia IV stóðst Kookaburra III ekki snúning* Fremantle, AP. Reuter. CHRIS Dickson hafði heppnina með sér er hann sigraði Dennis Conner í þriðja siglingaeinvígi þeirra í undanúrslitum Ameríku- bikarsins í gær. Conner náði forystu í upphafi og var skútan Brak úr flugvélunum dreifðist yfir þriggja ferkílómetra svæði í Salt Lake City. Flugslysið við Salt Lake City: Ratsjárbilun tal- in orsök slyssins Tíu manns fórust Kearns, Utah, AP. TIU manns fórust í fyrradag er lítil einkaflugvél rakst á far- þegaflugvél í lofti yfir borginni Salt Lake City í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Að sögn starfsmanna á flugvellinum í Salt Lake City kom einkavélin hvergi fram á ratsjá. Áreksturinn varð í 7.000 feta hæð yfir borginni og rigndi braki yfir hús í nágrenninu. Mesta mildi þykir að enginn skyldi slasast á jörðu niðri. Að sögn sjónarvotta rakst vinstri vængur einkavélar- innar í nef farþegaflugvélarinnar, sem var í eigu flugfélagsins Skywest og var á leið frá Pocat- ello í Idaho til Salt Lake City. Átta menn voru um borð í far- þegavélinni, sex farþegar og tveir flugmenn, en í einkavélinni voru tveir menn. Enn hefur ekki tekist að bera kennsl á lík allra þeirra sem fórust. Einkavélin fór á loft frá litlum flugvelli í nágrenninu 26 mínútum áður en áreksturinn varð. Að sögn flugumferðarstjóra á alþjóðaflug- vellinum í Salt Lake City var einkavélin ekki í talstöðvarsam- bandi við flugtuminn þar og kom ekki fram á ratsjá. Að sögn þeirra fylgdi flugmaður farþegavélarinn- ar fyrirmælum flugumferðar- stjóra í hvívetna. Búnaður sem skráði samtöl og flug vélarinnar fannst í gær og hefur hann verið afhentur yfirvöldum til rannsókn- ar. Þegar áreksturinn varð var skyggni 50 kílómetrar og skýja- hæð um 7.000 fet. hans, Stars & Stripes, 21 sekúndu á undan skútu Dickson, _ New Zealand, við fyrstu bauju. Á öðr- um áfanga leiðarinnar varð hins vegar óhapp um borð hjá Conner með þeim afleiðingum að Dick- son sigldi hann uppi og komst fram úr. Það sem eftir var leiðar- innar hélt Dickson Conner fyrir aftan sig með mikilli krókasigl- ingu. Kunnugir töldu að forskot Conn- er í lok fýrsta 3,25 sjómílna (6 km) áfanga af átta dygði til sigurs, en þegar annar áfangi siglingarinnar var hálfnaður brast festing í belg- segli svo það hrundi niður og dró úr hraða skútunnar. Þrátt fyrir snör handtök við að koma seglinu í samt lag tókst Conner ekki að koma í veg fýrir að New Zealand sigldi Stars & Stripes uppi og komst Dickson fram úr andstæðing sínum. Það sem eftir var leiðarinnar í mark reyndi Conner ákaft en árang- urslaust að komast fram úr Dick- son. í því skyni venti Conner skútu sinni samtals 132 sinnum í einvígi gærdagsins, en Dickson átti alltaf mótleik, sem dugði. Skúta hans er liprari og snarari í snúningum og náði hann að halda Stars & Stripes fyrir aftan sig með því að venda jafnóðum og Conner. Einvígið varð því allsheijar krókasigling. Á áttunda og síðasta 3,25 sjómílna kafla leiðarinnar gekk hvað mest á. Venti Conner þá 55 sinnum í þeirri von að geta losnað úr kjölfari Dicksons svo hann kæm- Gengi gjaldmiðla London, AP. GENGI Bandaríkjadollara hækk- aði gagnvart helstu gjaldmiðlum heims í gær. Verð á gulli hækk- aði lítillega. í Tókýó kostaði dollarinn 153,10 japönsk jen (152,40) þegar gjald- eyrisviðskiptum lauk. I London kostaði sterlingspundið 1,5160 dollara (1,5067) síðdegis í gær. Gengi annarra helstu gjaldmiðla var á þann veg að dollarinn kost- aði: 1,8456 vestur-þýsk mörk (1,8345), 1,5500 svissneska franka (1,5345), 6,1750 franska franka 86,3825), 2,0780 hollensk gyllini (2,0670), 1.312,50 ítalskar lírur (1.309,50) og 1,3633 kanadíska dollara (81,3616). í London kostaði trójuúnsa af gulli 415,25 dollara (415,00). ist upp með hlið hans og fengi þar með tækifæri til raunverulegrar kappsiglingar. „Dickson réð ferð- inni að þessu sinni og á hrós skilið. Hann er erfiður viðureignar ef hann kemst fram úr. Bátur hans er betri í krókasiglingu af þessu tagi,“ sagði Conner eftir keppnina, en hann kom 38 sekúndum á eftir Dickson í mark. Staðan í einvígi Conner og Dick- son er því 2-1 þar sem Conner vann tvær fyrstu kappsiglingamar. Þeir etja kappi aftur í dag, en sá þeirra hlýtur sæti í úrslitakeppninni um Ameríkubikarinn sem verður fyrri til að vinna fjögur einvígi. I flokki veijenda kom Kooka- burra III 46 sekúndum á undan Australia IV í mark. Hafði hún for- ystu alla leiðina og er staðan í einvígi þeirra nú 2-0 fyrir Kooka- burra. Fyrsta kappsigling skútanna var dæmd ógild. Vestur-Þýskaland: Skilyrt fram sal flugræningja Bonn, AP. TALSMAÐUR vestur-þýska dómsmálaráðuneytisins sagði í gær, að Líbaninn sem handtek- inn var á Frankfurt-flugvelli sl. þriðjudag og álitinn er eiga aðild að ráni bandarískrar flugvélar árið 1985 verði sennilega fram- seldur til Bandaríkjanna, svo framarlega sem stjórnvöld þar skuldbyndu sig til að sjá til þess að maðurinn verði ekki tekinn af lífi. Dauðarefsing er ekki í gildi í Vestur-Þýskalandi og því mega stjórnvöld ekki framselja einstakl- inga til landa þar sem hætta er á að þeir verði dæmdir til dauða, nema gengið sé að vissum skilyrð- um. í Bandaríkjunum er hægt að dæma menn til dauða fyrir aðild að flugráni. Líbaninn, Mohammed Ali Hamadi, var handtekinn er skarpskyggn tollþjónn athugaði innihald vínflaskna, sem voru í handfarangri, og reyndust inni- halda efni er nota má við sprengju- gerð. Annar Líbani var handtekinn í Mílanó á Ítalíu sl. mánudag með 10 kg. af sprengiefni í farangrinum. Verið er að athuga hvort um tengsl geti verið að ræða milli þessara tveggja manna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.