Morgunblaðið - 17.01.1987, Side 22

Morgunblaðið - 17.01.1987, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987 Alþjóðlegl rúmtak Myndlist Bragi Ásgeirsson Sú ásókn í myndlistarskóla, sem nú stendur yfir, á vafalítið eftir að skila af sér allnokkrum dugandi og metnaðarfullum mál- urum, teiknurum, grafíkerum og myndhöggvurum. Þó verður ekki ennþá séð fyrir með öilu, hvers konar listamenn þetta verða, hvort þeir leiti fanga í umhverfí sitt eða líti heiminn í gegnum gleraugu útlendra list- jöfra. Tíminn sker úr því sem öðru, en harla þykir mörgum það nei- kvæð þróun að sjá nútímalista- söfn vestan hafs og austan stöðugt líkjast hvert öðru meira og meira. Stórsýningar eru að vera líkt og markaðstorg höndl- ara með myndlist, þar sem þeir einir fá að vera með, sem falla inn í ijarstýrt hagkerfí dagsins. Hér verða sveiflur æ tíðari með aukinni tæknivæðingu íjölmiðla. Listin er strax komin inn í stofu hjá hinum almenna borgara, hvort sem honum líkar betur eða verr og hvort sem það er í formi beinna myndlistarþátta, auglýs- inga eða annars, sem dregur dám af tíðarandanum í listinni hveiju sinni. Þeir, sem rita um myndlist í virtustu tímarit heimsins, eru í sívaxandi mæli famir að benda á þessa þróun í skrifum sínum, jafn- framt því sem ýmsum áhrifavöld- um í listheiminum stendur alls ekki á sama. Nú eru listtímarit beint og óbeint kostuð af list- höndlurum, svo að þannig er verið að tala á móti ríkjandi stefnu. Menn taki einungis eftir því, hve samræmið er mikið á milli greina í ritunum og auglýsinga frá list- galleríum. Engum skyldi detta í hug, að hann rati á síður þessara blaða fyrirhafnarlaust og fyrir verðleikana eina og upphafna hugsjón. Slíkt er ekki nútímalegt og mun trúlega nefnast fordild og íhaldssemi á máli viðkomandi. En skyldi ekki þessi þróun ein- mitt leiða til þess að vekja upp andhverfu sína svo sem jafnan í listinni, þannig að einn góðan veðurdag verði það nútímalegt að vera sem ólíkastur öllum hin- um? Að sjálfstæði og sérkenni þjóða verði vísað til öndvegis? Það ætti að vera meira en trúlegt. En eitt mun hér alveg víst, að ef listin er ekki sprottin af innri þörf gerandans og áhrifum úr nánasta umhverfí ásamt því að Peugeot 205. „Besti bíll í heimi“ Peugeot 205 hefur verið valinn „besti bíll í heimi" annað árið í röð af hinu virta þýska bílablaði „Auto Motor und Sporf'. Peugeot 205 sameinar aksturseiginleika, þœgindi, öryggi og sparneytni betur en nokkur annar bíll í sínum verðflokki að mati kröfuharðra Pjóðverja. Peugeot 205 er framdrifinn, fjöðrun í sérflokki, kraftmikill og hljóðlátur. Komið, reynsluakið og sannfœrist. Verð frá kr.: 305.000.- Peugeot 309. Nýr bíll frá Peugeot Við bjóðum velkominn til íslands nýjan glœsilegan fulltrúa frá Peugeot, Peugeot 309. Miklar rannsóknir og reynsla af Peugeot 205, hárnákvœm vinnubrógð, því hann er að mestu settur saman af vélmennum, tryggja hátœknileg gœði. Peugeot 309 er 5 dyra framhjóladrifinn og með fjöðrun í Peugeot gœðaflokki. Pað ásamt eyðslu - grönnum vélum og lágri bilanatíðni gera 309 að bíl fyrir íslenskar aðstœður. Verð frá kr.: 386.200.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.