Morgunblaðið - 17.01.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987
35
Skoðanakönnun Helgarpóstsins:
Dregur úr sókn
Alþýðuflokksins
HELGARPÓSTURINN birti á
fimmtudaginn niðurstöður skoð-
anakönnunar á fylgi stjórnmála-
flokkanna, sem gerð var 13. og
14. janúar sl.. Samkvæmt henni
hafa Alþýðuflokkur og Kvenna-
listi bætt við sig fylgi frá þvi í
kosningunum 1983, en aðrir
flokkar tapað fylgi. Miðað við
aðrar skoðanakannanir, sem
birtst hafa að undanförnu, hefur
hins vegar dregið úr fylgi Al-
þýðuflokksins.
Könnunin var gerð af fyrirtækinu
SKÁÍS. Hringt var í 800 einstakl-
inga skv. tölvuskrá yfir símanúmer
fyrir allt landið. Spurningunum var
beint til þeirra sem svöruðu og voru
18 ára eða eldri og var miðað við
jafnt hlutfall kynja. 534 þátttak-
endur (66,3%) tóku afstöðu til
einstakra flokka, 147 (18,4%) kváð-
ust óákveðnir, 47 (5,9%) sögðust
ekki ætla að kjósa eða skila auðu
og 72 (9,0%) neituðu að svara.
Niðurstaðan varð sú,' að 129
(16,1%) ætluðu að kjósa Alþýðu-
flokkinn í næstu kosningum, 84
(10,5%) Framsóknarflokkinn, 2
(0,3%) Bandalag jafnaðarmanna,
187 (23,4%) Sjálfstæðisflokkinn, 84
(10,5%) Alþýðubandalagið, 47
(5,9%) Kvennalistann og 1 (0,1%)
Flokk mannsins.
Ef aðeins er tekið tillit til þeirra
sem afstöðu tóku er fylgi Alþýðu-
flokksins 24,2%, Framsóknar-
flokksins 15,7%, Bandalags
jafnaðarmanna, 0,4%, Sjálfstæðis-
flokksins, 35,0%, Alþýðubandalags-
ins 15,7%, Kvennalistans 8,8% og
Flokks mannsins 0,2%.
Arild Martinsson gestur
á sýningii Intercoiffure
VETRARSÝNING hárgreiðslu-
samtakanna Intercoiffure verð-
ur haldin á íslandi sunnudaginn
18. janúar á Hótel Sögu kl. 21.00.
Intercoiffure eru alþjóðleg sam-
tök hárgreiðslufólks, sem hittist
á þingum, skiptist á skoðunum
og hugmyndum og styrkir vin-
áttusambönd þess. Markmiðið er
að auka þekkingu á faginu og
kynna almenningi. íslenskir fé-
lagar samtakanna eru 12 talsins
og standa sem hópur að sýning-
unni.
Sérstakur gestur sýningarinnar
er Arild Martinsson, forseti ICD í
Noregi. Hann var í raun fyrsti for-
seti samtakanna á íslandi, áður en
hér var stofnuð sérstök deild og er
mjög tengdur íslensku hárgreiðslu-
fólki. Kynnir sýningarinnar er
Magnús Axelsson, en Comelíus
Carter mun sjá um uppsetningu.
Sýndar verða línur í hártísku
komandi árs. Margt er í tísku nú,
svo sem sjá má þar. Mest áhersla
er lögð á að hárgreiðslan hæfí hvetj-
um viðskiptavini, hvort sem því er
náð fram með klippingu, þurrkun,
permanenti eða litun.
Fulltrúi verkalýðsfélagsins veitir bifreiðinni viðtöku.
Verkalýösfélag fékk bílinn
DREGIÐ var í byggingahapp- ósóttir en þeir komu á miða nr.
drætti Vegarins þann 22.des- 539 og nr. 577. Vinningur á báða
ember 1986 og kom aðalvinn- þessara miða er 25.000 króna
ingurinn, Suzuki bifreið, á miða vöruúttekt í versluninni Mikla-
nr. 9, en sá miði reyndist vera garði.
í eigu Verkalýðsfélagsins á Vegurinn, Kristið samfélag, vill
Akranesi. Var bifreiðin afhent nota tækifærið og þakka þeim
vinningshafa þann 2. janúar. sem studdu starfíð með þáttöku
Alls voru í boði sex vinningar sinni í happdrættinu.
og eru ennþá tveir vinninganna (Úr fréttatilkynningu)
Stjörnubíó:
Tvær nýjar kvikmyndir
STJÖRNUBÍÓ hóf sýningar á
nýrri kvikmynd, „Andstæður“, i
gær og mun frumsýna nýja
barnamynd fyrir í dag kl. 15.00,
„Kærleiksbirnirnir II“.
í Andstæðum er fylgst með
David Basner, sem er ungur maður
á uppleið. Hann er í góðu starfi,
kvenhollur mjög og nýtur lífsins út
í ystu æsar. Þá fær hann símtai,
sem breytir öllu. Faðir hans tilkynn-
ir honum að eiginkonan hafi yfír-
gefið sig eftir 34 ára hjúskap. Þar
kemur að David verður að velja á
milli foreldra sinna og starfsframa.
Jackie Gleason fer með hlutverk
Max Basners og Eva Marie Saint
leikur eiginkonu hans. Tom Hanks
fer með hlutverk Davids.
Austurbæjarbíó hefur að undanf-
ömu sýnt teiknimyndina Kærleiks-
bimi I, en í mynd II segir frá
mömmu og pabba, krökkunum,
frænkunum og frændunum. Saman
beijast þau við drekann ógurlega,
sem getur breytt sér f venjulegan
skólastrák, frosk og ref. Drekinn
ætlar að leggja undir sig heiminn
og stjóma af grimmd og vonsku.
Aðeins Kærleiksbimimir geta
bjargað málunum.
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins um fram-
boðslista Kvennalistans á Vestur-
landi, sem var í blaðinu miðvikudag-
inn 14. janúar sl., misritaðist nafn
frambjóðanda í 7. sæti. Rétt nafn
er Dóra Jóhannesdóttir, húsmóðir.
AF ERLENDUM VETTVANGI
Persaflóastríöiö:
eftir ASGEIR SVERRISSON
Valkestir hrannast upp
og engar horfur á friði
Síðustu þrjár vikur hafa íranir tvivegis blásið til stórsóknar
gegn írökum. Fréttir af gangi styrjaldarinnar geta tæpast
talist áreiðanlegar. Bæði ríkin lýsa yfir glæstum sigrum en vest-
rænum fréttamönnum er sjaldan leyft að fylgjast með átökunum.
Eitt er þó ljóst; blóðbaðið er óskaplegt og ekkert bendir til þess
að lát verði á bardögunum
Þann 24. desember hrundu ír-
anir af stað sókn sem kallaðist
„Karbala 4“. Giskað hefur verið
á að 60.000 menn hafí tekið þátt
í henni. í fyrsta skipti frá því
stríðið hófst fyrir rúmum sex
áram var árásarliðið eingöngu
skipað svonefndum „byltingar-
vörðum“. Þykir þetta benda til
ákveðinnar togstreitu innan her-
stjórnar írana. Herinn hefur lagst
gegn skipulegum árásum á stöðv-
ar Iraka þar sem þær kosta jafnan
gífurlegar mannfómir. „Karbala
4“ reyndist ekki undantekning á
þeirri reglu. íranir sóttu yfír
Shatt-al Arab-vatnasvæðið, sem
skilur ríkin tvö að í suðri, og hugð-
ust ná fjóram eyjum íraka á sitt
vald. Eftir heiftarlega bardaga,
sem stóðu í tvo sólarhringa, var
árásinni hrandið. Þúsundir
manna, jafnvel tugþúsundir, féllu
og írakar fögnuðu sigri með því
að heimila fréttamönnum að ferð-
ast til vígstöðvanna. Reyndustu
stríðsfréttaritara skorti orð til að
lýsa óhugnaðinum, sem fyrir augu
bar.
Áfangasigur írana
í fyrstu töldu menn að íranir
hefðu hafið „lokasóknina", sem
þeir hafa lengi boðað. Ayatollah
Hashemi Rafsanjani, forseti
íranska þingsins, sagði svo ekki
vera heldur hefði verið um „tak-
markaðar hernaðaraðgerðir" að
ræða. Þó svo að árásin um jólin
hafí ekki verið „lokasóknin" bend-
ir stærð árásarliðsins tæpast til
skyndiárásar. Fréttaskýrendur
virðast almennt sammála um að
„Karbala 4“ hafí verið írönum
mikið áfall og bent hefur verið á
að mannfallið hafí verið með
þvílíkum eindæmum að jafnvel
klerkunum í íran hafí verið bragð-
ið.
Ekki var þó látið staðar numið.
Föstudaginn 9. janúar hófu íranir
sókn á ný yfír Shatt-al Arab. Sem
fyrr var gríðarlegum fjölda manna
safnað saman og segja írakar að
ellefu herdeildir myndi árásarliðið.
Ef það er rétt má gera ráð fyrir
að 110.00 íranir séu nú á
vígstöðvunum. íranir kveðast
hafa náð landsvæði austur af
Bashra, næststærstu borg íraks,
á sitt vald og segjast vera í seiling-
arfjarlægð frá borginni. Að sögn
vestrænna hemaðarsérfræðinga
er þetta stærsti áfangasigur írana
frá því í febrúar 1986 þegar þeir
náðu hluta Faw-skaga á sitt vald.
Undanfarin fjögur ár hafa íran-
ir freistað þess að einangra Basra
frá Baghdad, höfuðborg íraks, en
árásum þeirra hefur jafnan verið
hrandið. Vafasamt er talið að ír-
anir nái að halda svæðinu nærri
Basra. Að sögn arabískra stjóm-
arerindreka í ríkjunum við Persa-
flóa hafa írakar reist 80 kílómetra
langa vamarlínu austur af Basra
þar sem safnað hefur verið saman
öflugum stórskotaliðsbyssum, eld-
flaugum og skriðdrekum. „Slag-
kraftur íraka er einfaldlega of
mikill og það mun skipta sköp-
um,“ sagði einn þeirra í viðtali
við AP fréttastofuna.
Furðuleg herfræði
Herfræði írana hefur vakið
undran margra. Á undanfomum
áram hafa þeir gert skyndiárásir
með góðum árangri. Talið er að
foringjar í hemum hafí skipulagt
þær en ekki ráðamenn stjómar-
innar. Nú er þúsundum manna
safnað saman gegn öflugum vöm-
um íraka og att út í opinn
dauðann í krafti trúarhita og of-
stækis. Ef íranir taka ekki upp
aukinn sveigjanleika í hemaða-
raðgerðum sínum má gera ráð
fyrir að áhlaup þeirra verði fram-
vegis sem spegilmynd af „Karbala
4“.
Hingað til hafa herdeildir íraka
gegnt vamarhlutverki en hinum
öfluga flugher þeirra verið beitt
þeirra er að hrani kominn þar sem
olíuútflutningurinn hefur dregjst
saman um helming," segir Kopi-
etz. Talið er að striðsreksturinn
muni kosta írani 7 milljarða
Bandaríkjadala á þessu ári. Hins
vegar munu olíutekjur þeirra í ár
tæpast nema 5 milljörðum dala.
Loftárásir íraka á olíuvinnslu-
stöðvar þeirra valda þar mestu
um auk þess sem olíuverð hefur
lækkað eins og alkunna er. „Ef
írönum tekst ekki að hrinda loft-
árásum Iraka era þeir í vanda
staddir," segir Kopietz.
Engfar friðarhorfur
Þann 26. þessa mánaðar hefst
ráðstefna ríkja múhameðstrúar-
manna í Kuwait og verða þar
ræddar leiðir til að binda enda á
átökin fyrir botni Persaflóa. í
byijun mánaðarins fór Saddam
Hussein, forseti íraks, óvænt í
heimsókn til Saudi-Arablu til við-
ræðna við Fahd konung og
snerast samtöl þeirra einkum um
iasra
& I I
ARÁSfcANA |«.=
• rrannshahc
\Abu a! khasib^^'r' fRAfsj n
AzZubayr—-4 — C-L
IRAK^j
-- -v al Rassas
1 Ki—va \\ \\ \ _— \- —
- ”lu.~ ~
- -votlendi—
| GAGNS0KN IRAKA K
i-~_- - -- zr-z
Z- ---- -- votlendi - ~
.“j* __
Qasr~
KUWAIT
v..... “■ - _ -
0 IQ^km ~
Neðra kortið sýnir sókn írana yfir Shatt-al Arab skönunu fyrir
áramót.
gegn innrásarliðinu auk þess sem
loftárásir hafa verið gerðar á olíu-
vinnslustöðvar og borgir í fran. í
þessu samhengi er fróðlegt að
minnast þess að írakar hófu
Persaflóastriðið árið 1980 þegar
hersveitir þeirra sóttu yfír Shatt-
al Arab. Svo virðist sem þeir hafi
látið öll áform um landvinninga
lönd og ieið og treysti nú að flug-
her þeirra geti lamað olíuútflutn-
ing írana og þar með allan
efnahag landsins. Að sögn Hans-
Heino Kopietz, sem starfar við
Alþjóða herfræðistofnunina í Lon-
don, eiga íranir nú þegar f
veralegum erfíðleikum. „Iranir
verða nú að grípa til einhverra
ráða til að efla baráttuþrek hers-
ins og þjóðarinnar. Efnahagur
Persaflóastríðið og ráðstefnuna í
Kuwait. Að mati fréttaskýrenda
var heimsókn Husseins veikleika-
merki. Honum hefur hvorki tekist
að binda enda á stríðið, sem hann
sjálfur hóf, með samningaviðræð-
um né vopnavaldi og bindur nú
vonir sínar við ráðstefnuna í
Kuwait.
Ólíklegt er talið að ráðstefnan
skili einhveijum árangri. íranir
hafa lýst því yfir að ekki komi til
greina að semja um frið á meðan
Saddam Hussein er við vökL Aya-
tollah Khomeini, leiðtogi írana,
er raunar orðinn aldurhniginn
mjög en fullvíst má telja að blóð-
ugir bardagar muni geisa allt þar
til hann safnast til feðra sinna.
Heimildir: Economist, Newsweek og AP.