Morgunblaðið - 17.01.1987, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 17.01.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANUAR 1987 37 Morgunblaðið/Frlða Proppé Af fundi kennara á kennarastofu Gagnfræðaskóla Akureyrar á meðan kennsla lá niðri i gær, föstudag. Fræðslusljóramálið: Morgunblaðið/Fríða Aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Reynir Kristinsson, í hvítri skyrtu við borðsendann. Við hlið hans er Hrólfur Birgir Leifsson. Myndin er tekin á fundi með starfsfólki á Fræðsluskrifstofu Norður- landsumdæmis eystra. Tekinn á 126 km hraða - Umsvifalaust svipt- ur réttindum UTANBÆJ ARMAÐUR var tek- inn á 126 kílómetra hraða á Drottningarbraut í fyrrakvöld. Hann var umsvifalaust sviptur ökuskírteininu. Að sögn lögreglunnar missir maðurinn réttindin a.m.k. í tvo mánuði. Nokkuð mikið hefur verið um of hraðan akstur og hefur lög- reglan mælt umferðarhraða síðustu kvöldin til að „ná niður hraðanum", eins og þeir kalla það. Samþykkt að slí ðra sverðin fram yfír helgi - Skólahald lamað í Norðurlands kjördæmi eystra vegna aðgerða skólasljórnenda og kennara í gær DEILUR virtust magnast á fund- um tveggja fulltrúa menntamála- ráðherra og starfsmanna fræðsluskrifstofu Norðurlands- kjördæmis eystra hér í gær vegna brottrekstrar Sturlu Kristjánssonar fræðslustjóra. Er menn komu út af löngum fundi fræðsluráðs og fulltrúa ráðu- neytis síðdegis var það eina sem menn voru sammála um að láta ekkert uppi við fjölmiðla um málið fyrr en eftir helgi. Skólastarf var lamað í kjördæm- inu í gær vegna aðgerða skóla- stjómenda og kennara, en kennsla var felld niður í velfelstum grunn- skólum í því skyni að mótmæla uppsögn Sturlu og afstöðu mennta- málaráðherra í skólamálum hér. Á meðan funduðu kennarar um málin og sendu þeir stuðningsyfirlýsingar og skeyti til Sturlu og fræðsluráðs og starfsmanna fræðsluskrifstof- unnar, sem funduðu með fulltrúum menntamálaráðuneytis í gær, þeim Reyni Kristinssyni aðstoðarmanni menntamálaráðherra og Runólfí Birgi Leifssyni úr áætlunardeild menntamálaráðuneytisins. Þá sátu og fundi með þessum aðilum for- maður Kennarasambands íslands, Valgeir Gestsson og fulltrúar Landssambanda kennara. Stjóm Fjórðungssamands Norðlendinga fundaði einnig í gær og ályktaði um málið. Reynir Kristinsson aðstoðarmað- ur menntamálaráðherra sagði, er hann kom út af fundi síðdegis, að menn hefðu orðið ásáttir um að slíðra sverðin fram yfi helgi. Það var að sjá og heyra, að fram hefði farið mikið orðaskak á fundunu.n og samkvæmt heimildum Morgua- blaðsins munu fomstumenn skóla- mála í kjördæminu hafa krafíst þess að fá svör við ýmsum spuming- um, sem þeir hafa sent ráðherra og reyndar ráðherrum, áður en þeir yrðu frekar til viðræðu um fram- tíðarskipan fræðslumála og stjóm- un fræðsluskrifstofunnar, en það hefur staðið hvað mest í mönnum hvemig sú tilhögun skal vera. Ekk- ert var ákveðið um næstu eða næsta fund með fullrúum ráðuneytis.- Sjónvarp Akureyri DAGSKRÁ Sjónvarps Akur- eyri í kvöld, laugardagskvöld 17. janúar er svofelld: Kl. 20.30 Gúmmíbimir. Teiknimynd fyrir yngri áhorf- enduma. Kl. 20.55 Brúðumjmdin Jack Frost. Bresk brúðumjmd um moldvörpu sem segir sögu snjós- ins. Kl. 21.40 Myndrokk. Kl. 22.40 f eldlínunni. Nýr íslenskur umræðuþáttur um máleftii líðandi stundar. Kl. 23.25 Miami Vice. Banda- ríski framhaldsmyndaflokkur- inn góðkunni um löggumar tvær Sonny og Richardo. Kl. 00.15 Dagskrárlok. Svæðisútvarp Akueyrar: Sverrir vinsælli en Sturla SVERRIR Hermannsson mennta- málaraðherra fékk 105 atkvæði í vali um vinsælasta mann vik- unnar í svæðisútvarpinu hér á Akureyri í gærkvöldi. Sturla Kristjánsson fyrrverandi fræðslustjóri hlaut 94 atkvæði. Fjölmargir hringdu í útvarpsstöð- ina til að lq'ósa mann vikunnar eins og atkvæðafjöldinna ber með sér, en um fátt er meira talað á Akur- eyri en deilu skólamanna og ráðuneytismanna í málinu. Morgunblaðið/Fríða Proppé. Óli G. Johannsson við eina af myndum sínum í Alþýðubankanum. Málverkasýning í Alþýðubankanum MENNINGARSAMTÖK Norð- lendinga og Alþýðubankinn h.f. kynna að þessu sinni myndlist- armanninn Óla G. Jóhannsson með sýningu á verkum hans í Alþýðubankanum. Sýndar eru níu myndir unnar í akrýl og olíu á striga. Óli G. er fæddur árið 1945 á Akureyri. Hann er sjálfmenntaður í mjmdlist og hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Hann var eigandi og starfrækti sýningarsal- inn Gallery Háhól um árabil. Myndimar á kynningunni í Al- þýðubankanum eru allar málaðar á síðasta ári. Kynningin stendur frá 12 janúar til 16. marz. Morgunblaðið/Guðmundur Svansson Cape Hunter við bryggju á Akureyri skömmu áður en hann sigldi heim á leið. Slippstöðin: Kanadískt skip afhent eft- ir lengingu og lagfæringu SLIPPSTÖÐIN á Akureyri af- henti sl. miðvikudag kanadískt skip, Cape Hunter, eftir lengingu og stjTkingu til siglinga í ís. Þá er unnið i Slippstöðinni við að breyta Sléttbak í frystitogara, lengja bátinn Otur og eftir mán- aðamótin kemur Dalborgin frá Dalvík í slipp til að láta skipta um yfirbyggingu. Að sögn Sigurðar Ringsted, yfir- verkfræðings hjá Slippstöðinni, var skipið Cape Hunter lengt um 6,4 metra. Þá var það styrkt fyrir íssigl- ingar og lestinni breytt, svo hún geti tekið ískassa. Cape Hunter er Leikklúbburinn Saga: Síðasta sýning á Pældíði Síðasta sýning á leikritinu Pæld íði verður í kvöld, laugardags- kvöld, kl. 20.30 í Djmheimum á Akureyri. nú á heimleið en skipið er skráð í Halifax. Sigurður sagði, að afrakst- ur af breytingunni á Cape Hunter væri ekki eins og búist hefði verið við, því verksamningurinn væri í dollurum og gengi hans hefði lækk- að mikið síðan hann var gerður. Þá er unnið við að breyta togara Útgerðarfélags Akureyrar, Slétt- bak, í frystitogara og lengja hann um 8 metra. Skipt verður og um velflest í vél hans og annað end- umýjað að sögn Sigurðar. Verið er að lengja bátinn Otur. Sigurður sagði, að nóg hefði ver- ið að gera við lagfæringar á skipum og bátum, en auðvitað væri óska- verkefni þeirra að smíða ný skip, en slíkt mætti ekki. Slippstöðin af- hendir þó eitt nýtt skip nú um helgina, en smíði á því hófst fyrir fjórum ámm. Blaðbera vantar Blaðbera vantar í Innbæ Upplýsingar í síma 23905. jRtajgtni&Iiifeffr Hafnarstræti 85.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.